Björn Berg Pálsson, þjónustu- og gæðastjóri Sundlauga Reykjavíkur, segir málið vera komið á borð lögreglu en að ef græna ljósinu sé fylgt eigi það að vera öruggt að lenda ekki á annarri manneskju í rennibrautinni.
„Þetta er alveg útmælt hjá okkur en við erum að vísu með rennibrautina lokaða núna,“ segir hann í samtali við blaðamann Vísis og að ljósið sé í skoðun, sem og annað.
„Við erum alltaf í ákveðnum viðhaldslokunum og yfirferðum á sumrin, þetta er bara partur af því,“ segir Björn einnig og bætir við að það sé reglulega gerð áhættugreining á öllum verkferlum í sundlauginni.
Varðandi atvikin sem upp komu um síðustu helgi segir hann starfsfólk laugarinnar hafa staðið að öllu eftir bókarinnar reglum. Hann hafi sjálfur verið ræstur út en í samtali við lögregluna um málið kom fram að einn drengjanna hafi farið á slysadeild ásamt forráðamönnum eftir að maðurinn veittist að þeim.
„Við hringjum alltaf á lögreglu ef það koma upp atvik. Þannig að þau fylgdu algjörlega verkferlinum.“