Óháð raknnsóknarnefnd með störfum lögreglu í Bretlandi (IOPC) skoðar nú hvort tveir lögreglumenn hafi brotið af sér í starfi þegar þeir handtóku ungan mann sem hafði verið stunginn með hnífi skömmu áður.
Vickrum Digwa stakk hinn 18 ára Henry Nowak með hnífi á götu úti í borginni Southampton í desember. Þegar lögregla kom á vettvang sagði Digwa að Nowak hafi veist að sér með kynþáttahatri og svo hrasað. Í búkmyndavélum lögreglu sést hvar lögreglumenn handjárna Nowak þar sem hann liggur á jörðinni og segist ekki geta andað. Hann hafi verið stunginn.
Lögreglumaður heyrðist þá segja: „Það held ég ekki, félagi.“
Nowak missti fljótlega meðvitund og þá hófu lögreglumenn endurlífgunaraðgerðir sem báru ekki árangur. Í frétt BBC segir að átta mínútur hafi liðið frá því að lögreglumennirnir mættu á svæðið þar til þeir uppgötvuðu stungusárin.
BBC hefur eftir IOPC að gögn bendi til þess að lögreglumennirnir hafi farið á svig við reglur lögreglu með því að virða að vettugi fulyrðingar Nowaks um árásina.
Fulltrúar IOPC hafa meðal annars rætt við fjölskyldu Nowaks.
Talsmaður IOPC segir ljóst að framkoma lögreglumannanna hafi komið niður á trausti almennings til lögreglu og það verði að taka með í reikninginn. Ekki sé sjálfgefið að lögreglumennirnir muni sæta viðurlögum vegna þessa. Það skýrist þegar niðurstaða rannsóknarinnar liggur fyrir.
Málið olli mikilli úlfúð þegar það komst í hámæli eftir að Digwa var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir drápið og myndefnið úr búkmyndavélunum var gert opinbert.
Mótmæli brutust út í Southampton þar sem lögregla var sökuð um að hafa tekið öðruvísi á málinu en ella þar sem Nowak hafi verð hvítur á hörund.
Boðað hefur verið að opinber rannsókn á málinu fari fram á næsta ári.