Drenglyndi svarar framsóknarmanninum á Akureyri

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Gunnar Már Gunnarsson sendi Drenglyndi, hópi foreldra og kennara, „pillu“ á Akureyri.net og það átti að vera svar við spurningum hópsins í kjölfar kosninganna. Eins og áður var sagt, trúðurinn í sirkúsnum.
Aðeins L- listinn hefur svarað spurningum Drenglyndis, en svarið var út í hött og svaraði engum spurningum. Betur heima setið en af stað farið.
Nú hafa félagar í Drenglyndi svarað Gunnari Má, í sama blaði. Það þykir víst við hæfi.
Það er sorgleg staðreynd að stjórnmálamenn noti skólann sem áróðurssvæði en líti ekki á hann sem hlutlausa stofnun fyrir saklaus börn. Börn sem eru skikkuð til að mæta og horfa á áróðurs tákn og flöggun hagsmuna- og baráttusamtaka.

Gunnar Már Gunnarsson.
Hér er stiklað á stóri í svari Drenglyndis
„Þakka þér kærlega fyrir svarið, Gunnar. Það gleður okkur að við erum sammála um margt. Þú talar um ærnar og hrútana, og veist að annað fer upp á hitt og engin önnur kyn spila fleiri hlutverk í því ferli; hvorki sauðstálp né kindkvár.“
Leyfðu okkur að upplýsa þig, þetta er mikilvægt, og þetta vefst eflaust fyrir fleirum: Meginefni laga um kynrænt sjálfræði er að veita fólki ótakmarkað frelsi til að skilgreina kyn sitt eftir eigin kynvitund. Kynvitund er hugtak sem lýsir huglægri afstöðu einstaklinga til eigin kyns. Með lögum um kynrænt sjálfræði var kynvitund, þ.e. upplifun fólks af eigin kyni, gefið meira vægi en líffræðilegt kyn. Segist karlmaður vera kona hlýtur hann lagalega stöðu konu og á rétt á allri þjónustu og réttindum sem konur hafa, t.d. aðgengi að kvennaklefum og kvennasalernum. Það eitt og sér ætti að hringja viðvörunarbjöllum þar sem rýmin voru aðskilin af góðri ástæðu er varðar öryggi, friðhelgi og blygðunarsemi stúlkna og kvenna. Hið upprunalega fyrirkomulag var gott á meðan það varði en hefur nú verið selt fyrir upplifun karlmanna sem telja sig konur.“
„Þ.a.l. hefði dæmdur, fúlskeggjaður glæpamaður með typpi og pung löglegt aðgengi að ungum stúlkum í kvennaklefa Akureyrarlaugar og eina vörn stúlknanna er von um að þeir mæti ekki í klefana. Réttur karla á upplifun er æðri blygðunarsemi og friðhelgi ungra stúlkna.Lög um kynrænt sjálfræði hafa komið sérstaklega illa við heilbrigðisstarfsfólk, en læknum og heilbrigðisstarfsfólki ber lagaleg skylda til að framkvæma inngrip sem veikja og skemma fullkomlega heilbrigða líkama, þvert á samvisku, sérfræðiþekkingu, og svarinn eið; læknaeiðinn. Líffræði spyr ekki um upplifun eða skoðanir, sem kynrænt sjálfræði er. Starfsfólk heilbrigðisgeirans fæst ekki til að tjá sig – atvinna þess er í húfi!
Tungumálinu hefur verið breytt til að rúma einstaklinga sem telja sig ekki falla undir líffræðilegan raunveruleika. Meðgönguvernd (áður mæðravernd), leghafar (áður konur), fæðingarforeldri (áður móðir), fólk með PCOS, fólk með endó, ófrískt fólk.“
„Við erum sammála um að það sé hægt að treysta kennurum til þess að fræða börnin, en okkur þykir ekki skrýtið að þegar fullorðnir menn í bæjarstjórn þykjast ekki sjá muninn á milli fæðingargalla og hugtaka, að kennarar: menntað fólk með gagnrýna hugsun sem veit að námsefni á fyrst og fremst að byggja á vísindalega gagnreyndum grunni, sé farið að ruglast á raunveruleika og hugmyndafræði.Lofaðu okkur að styðja við þig þar sem þú hrasar í gegnum grýtt landslag rétttrúnaðar: Námsefni barna á að vera rétt og satt.Í námsefni grunnskóla er talað um að börnum sé úthlutað kyn við fæðingu og að foreldrar geti sér til um kyn eigið barns. Þú svarar með neglu um hrúta og ær og talar um mikilvægi þess að börnum líði vel í eigin skinni. Mikilvægi þess er okkur sameiginlegt grundvallarmál. Það er frábært ef börnum líður betur í dag en í gær en okkur er þó einnig umhugað um morgundaginn. Þar sem þú ert í leiðtogastarfi fyrir bæinn, Gunnar, þá mælum við með að þú lítir örlítið fram á við, framhjá dyggðarflöggum og atkvæðum, og beint framan í þann raunveruleika sem verður ef við ljúgum að börnum og gefum í skyn að líkamar þeirra séu mögulega einhvers konar gallað púsluspil, ótengdir kyni þeirra, sem hægt sé að leiðrétta með því að skipta út bitum.“
Allt svarið má lesa á heimasíðunni: Svar til Gunnars Más framsóknarmanns á Akureyri