Hjalti Árnason, þriðji maður á lista Miðflokksins í Mosfellsbæ:
Það eru gríðarleg félagsleg verðmæti fólgin í því að fólk hittist og ekki er verra ef hægt að er auka hreyfingu og bæta lýðheilsu í leiðinni. Núverandi stjórnendur í Mosfellsbæ hafa því miður staðið fyrir hreinsunum að Varmá þar sem lokað var á aðgengi fatlaðra að líkamsrækt í bænum, einnig var eldri borgurm og almenningi úthýst æyr mannvirkjum Mosfellsbæjar þar sem rekstur og húsnæði telur í milljörðum. Það hljómar einkennilega að aðkomuíþróttmönnum sé greitt fyrir að æfa í íþróttamannvirkum Mosfellsbæjar en skattgreiðendur sem borga brúsann geti ekki keypt sér aðgang að líkamsrækt.
Það var einnig ákveðið að frjálsar íþróttir skyldu vera í mýflugumynd í framtíðinni og algjört bann við spjótkasti, kringlukasti, sleggjukasti, tugþraut og sjöþraut.
Engin mót hafa verið í frjálsum íþróttum síðustu ár í Mosfellsbæ, keppendur fyrir Mosfellsbæ hafa varla sést á Íslandsmótum, bikarmótum eða landsmótum UMFí og engin verðlaun hafa komið í hlut okkar í fullorðinsflokkum síðustu ár. Þar fyrir utan verða engin mót haldin hér í framtíðinni þar sem nýi frjálsíþróttavöllurinn að Varmá er lítill og ólöglegur til mótahalds. Landsmót UMFÍ var haldið hér í Mosfellsbæ 1990 þar sem Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands setti mótið og tugir þúsunda streymdu í Mosfellsbæ á stærsta íþróttaviðburð sem haldin hefur verið í bænum og Jón Arnar Magnússon ásamt fjölmörgum framtíðaríþróttamönnum mættu til leiks. Í raun og veru hafa núverandi stjórnendur Mosfellsbæjar slitið tengsl sín við ungmennafélagshreyfinguna með því að banna hluta frjálsra íþrótta í bænum og tryggja að engin lögleg mót verið haldin eða met verði sett í Mosfellsbæ .
Staða kraftlyftinga og ólympískra lyftinga er ekki góð þar sem á síðasta ári voru settar verulegar hömlur á starfsemina og nú hefur starfseminni verið úthýst síðustu 5 mánuði. Algjört bann hefur verið í Mosfellsbæ varðandi mótahaldi í þessum greinum í rúmt ár.
Þrátt fyrir að núverandi stjórnendur Mosfellsbæjar keyri nú á slagorðum eins og „Fyrir Mosó“ eða „Þetta snýst um Mosó“ er ekki að sjá að svo sé.
Miðflokkurinn er eini flokkurinn sem getur snúið við þessari óheilla þróun.
@midflokkurinn.mos Hjalti kíkir á varmávöll #miðflokkurinn #kosningar2026 #mosfellsbær #iceland #sveitarstjórnarkosningar2026 ♬ original sound – XM Mosfellsbær