Allir helstu vegir sem liggja að og í gegnum þjóðgarðinn á Þingvöllum verða lokaðir frá miðjum degi þann 20. júní og til miðnættis vegna tónleikahátíðarinnar Bergmáls. Frá þessu er greint á vef Þingvallanefndar.
Tónleikarnir hefjast klukkan 11 við Valhöll en klukkan 14 færist dagskráin að Efri Völlum, neðan við Öxarárfoss. Fjöldi hljómsveita og tónlistarmanna stígur á svið á Þingvöllum þennan dag, þar á meðal Kaleo.
Í tilkynningu Þingvallanefndar segir að það sé fyrirséð að verulegur fjöldi gesta muni gera sér ferð til Þingvalla eða allt að 20 þúsund manns.
„Vegna þessa hefur lögreglan farið fram á tímabundnar vegalokanir frá kl. 15:00 á öllum helstu vegum sem liggja að og í gegnum þjóðgarðinn. Takmarkanir verða settar á: að vestan við Grafningsafleggjara, við Miðfell að austanverðu og norðan við Þingvelli á Uxarhryggjarvegi á tímabilinu frá kl. 15:00 til miðnættis.“
Loka nokkrum gönguleiðum
Gönguleiðir frá útsýnispalli við Hakið niður Almannagjá að Lögbergi og Drekkingarhyl verða opnar. Þaðan verður hægt að ganga til austurs að Peningagjá og Flosagjá.
Nokkrar gönguleiðir verða lokaðar öðrum en tónleikagestum. Það á við um Langastíg og gönguleiðina um Almannagjá norður frá Lögbergi að Köstulum og í átt að Öxarárfossi.
Þá er ferðaþjónustufyrirtækjum bent á að þau geta ýmist látið gesti sína út á Haki og beðið eftir þeim þar eða sótt þá við Flosagjá og Peningagjá. Vallavegur (vegur 361) verður aðeins opinn fyrir rútuumferð til suðurs frá Leirum.
Í tilkynningu Þingvallanefndar segir að kort af lokunum verði uppfært þegar nær dregur tónleikunum.
Ekki allir á eitt sáttir um tónleikahald
Sitt sýnist hverjum um fyrirhugaða tónleika en miðaverðið nemur rúmum 20 þúsund krónum. Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi formaður Þingvallanefndar Álfheiður hefur til að mynda kallað eftir því að nefndin afturkalli leyfi til tónleikahalds í þjóðgarðinum. Í Kastljósi í vikunni gagnrýndi hún það að Þingvöllum yrði lokað öðrum en miðahöfum.
Sigurður Helgi Pálmason, núverandi formaður nefndarinnar, sagði það eitt af markmiðum nefndarinnar að laða fleiri Íslendinga að Þingvöllum.