Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík á mesta málefnalega samleið með Framsóknarflokknum og Miðflokknum, ef litið er til svara í kosningaprófi RÚV. Samfylkingin á hins vegar mesta málefnalega samleið með Pírötum og því næst Vinstrinu.
Viðreisn hefur nokkra sérstöðu því enginn annar flokkur í borgarstjórn mælist jafnlangt frá næsta flokki. Þá vekur athygli að Viðreisn mælist nær flokkunum í meirihluta borgarstjórnar, Samfylkingu, Vinstrinu, Sósíalistum og Pírötum, en nokkuð lengra frá Framsókn og Sjálfstæðisflokki.
Alls svöruðu 1.549 frambjóðendur í sveitarfélögum um allt land kosningaprófi RÚV. Hér er sjónum beint að svörunum í Reykjavík, þar sem 139 frambjóðendur frá öllum ellefu listum svöruðu prófinu. Í höfuðborginni voru 32 spurningar lagðar fyrir frambjóðendur. Öllum frambjóðendum gafst kostur á að svara, en hér eru svör oddvitanna notuð.
Samgöngur og heimgreiðslur til foreldra umdeildastar
Skipulagsmál og leikskólamál eru þau sem skilja flokka helst að.
Sú spurning þar sem lengst er á milli flokka er hvort ljúka eigi við borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir.
Næst á eftir kemur spurning um framtíð Reykjavíkurflugvallar, en svörin þar skiptast eftir sömu línum.
Því næst er spurning um hvort bjóða eigi heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því fæðingarorlofi lýkur og þar til börn fá pláss á leikskóla.
Spurningar sem sameina flokkana
Það eru ekki öll mál umdeild.
Mikil samstaða er meðal flokkanna í nokkrum málum. TIl dæmis segjast allir flokkar ósammála því að einkavæða Orkuveitu Reykjavíkur. Þá styðja allir flokkar fyrirhuguð Miklubrautargöng.
Eins mælist mikill stuðningur við lengri opnunartíma sundlauga og að sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.
Hvert snýr Viðreisn sér?
Samkvæmt skoðanakönnunum eru líkur á að Viðreisn verði í oddastöðu eftir kosningar.
Í kosningabaráttunni má segja að frambjóðendur flokksins hafi reynt að fjarlægja sig Samfylkingunni. Björg Magnúsdóttir oddviti sagði í kosningaþætti Sýnar á miðvikudag að samstarf til hægri væri fyrsti kostur flokksins.
Flokkarnir tveir, Viðreisn og Samfylking, stóðu saman að meirihluta síðustu tvö kjörtímabil eða allt þar til í febrúar í fyrra þegar Einar Þorsteinsson sleit meirihlutasamstarfi Samfylkingar, Framsóknarflokks Viðreisnar og Pírata. Björg Magnúsdóttir var einmitt aðstoðarmaður Einars.
Það vekur því athygli að í kosningaprófinu skuli Viðreisn mælast nær Samfylkingunni og öðrum vinstri flokkum heldur en Sjálfstæðisflokknum.
Sjálfstæðisflokkurinn næstur Framsókn og Miðflokki
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ítrekað mælst stærstur í könnunum og líklegt þykir að flokkurinn verði leiðandi í nýjum meirihluta eftir kosningar.
Flokkurinn á mesta málefnalega samleið með Framsóknarflokknum og eru flokkanir samstiga í flestum lykilmálefnum. Skrefin á milli flokkanna, samkvæmt kosningaprófinu, eru 13 og skýrast að mestu af misafgerandi afstöðu, þ.e. þegar annar flokkurinn segist vera mjög sammála einhverri fullyrðingu en hinn sammála.
Aðeins eru þrjár spurningar í prófinu þar sem flokkarnir eru beinlínis með ólíka sýn. Framsóknarflokkurinn telur að auka þurfi fjárhagsaðstoð við þá sem lifa undir fátækarmörkum en Sjálfstæðisflokkurinn er ósammála því. Þá vill Framsóknarflokkurinn að foreldrar verði hvattir til að stytta vistunartíma í leikskólum með afslætti af leikskólagjaldi, en Sjálfstæðisflokkurinn er ósammála því.
Miðflokkurinn kemur þar næst. Skrefin á milli Sjálfstæðisflokks og Miðflokks eru 15. Flokkarnir eru sammála í flestum málum, en greinir þó á um íbúakosningar, leikskólavistun og hversu mikla áherslu á að leggja á ný hverfi í stað uppbyggingu innan borgarmarkanna.
Samfylkingin næst Pírötum og Vinstrinu
Fylgi Samfylkingarinnar hefur dalað nokkuð síðustu mánuði og margt bendir til þess að sextán ára samfelld valdatíð flokksins í Reykjavík sé komin á enda.
Flokkurinn mælist engu að síður næststærstur í könnunum og ekki hægt að afskrifa hann að svo stöddu.
Mesta samleið á Samfylkingin með Pírötum, en flokkarnir tveir hafa verið saman í meirihluta frá árinu 2014. Helst vekur athygli að flokkana greinir á um heimgreiðslur. Píratar segjast hlynntir þeim en Samfylkingin mjög á móti.
Þá kann að vekja athygli að Píratar segist frekar vilja leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar. Samfylkingin segist nokkuð ósammála því.