Norrænar rannsóknir sýna, að verulegur hluti fanga er með geðrænar áskoranir, eða fíknisjúkdóma. Heilbrigðisstarfsmönnum hefur fjölgað í fangelsum enda eiga fangaverðir að ganga í þeirra störf. Þetta er meðal efnis í níunda þætti Betrunar sem var á dagskrá Rásar 1 á þriðjudag klukkan 13.
Fólk sem á ekki heima í fangelsum
Anna Kristín Newton, sálfræðingur og fyrrverandi sviðsstjóri meðferðarsviðs Fangelsismálastofnunar, segir að yfirleitt séu um 8 til 10 manns í fangelsi sem eigi ekki heima þar heldur ættu að vera þar sem hægt er að veita þeim meiri aðstoð en mögulegt er í fangelsum. Ágreiningsefnið er hins vegar hver eigi að sinna þeim. Það sé hræðilegt að horfa upp á að ekki sé hægt að veita fólki þá aðstoð sem það þarf svo sannarlega á að halda.
„Ég finn mikið til og þá sérstaklega með fangavörðum sem eru þarna allan daginn alla daga og hafa mjög lítið ráðrúm til að íhlutast eða gera eitthvað. Ég ætla bara að segja að almennt séð eru fangaverðir frábærir starfsmenn og ótrúlega góðir meðferðaraðilar,“ segir Anna Kristín í þættinum.
Andri Þór Sturluson, formaður Félags fangavarða, hóf störf sem fangavörður fyrir tveimur áratugum. Hann starfar í fangelsinu á Hólmsheiði og segir að það sé sennilega stærsta fíknigeðdeild landsins. Þetta geri allt starf flókið og rýri tækifæri og lífsgæði þeirra sem sitja inni á sama tíma en eiga ekki við andleg veikindi að stríða. „Af því að það þarf svo flóknar umgengnisreglur og stundum værum við til í að gera eitthvað sem er bara ekki hægt því einstaklingarnir sem eru inni núna geta það ekki.“
Dæmi eru um fárveikt fólk í fangelsum. Veikindi fanga geta verið af ýmsum toga, segir Andri og nefnir sem dæmi að fólk með langt gengið krabbamein hafi verið í afplánun sem og fólk með heilabilun. Jafnframt fólk með fatlanir, svo sem lögblindir og fólk sem notar hjólastól. Andri þakkar fyrir að aðgengi að heilbrigðisþjónustu hafi batnað mikið og sé í raun mjög gott á Hólmsheiði. Þar séu tveir hjúkrunarfræðingar í fullu starfi auk lækna.
Þannig að það hefur margt gott gerst en á sama tíma hefur fólki fjölgað í fangelsum sem eykur álagið á alla sem þar starfa, segir Andri.
Endurhæfing lykilatriði
Í níunda þættinum er einnig rætt við Guðmund Inga Þóroddsson, formann Afstöðu, og Helga Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands sem eru sammála um að þann tíma sem fólk afplánar í fangelsum mætti nýta betur í endurhæfingu en nú er gert. Ekki síst þegar haft er í huga hversu endurkomuhlutfallið er hátt hjá þorra þeirra. Ekki megi gleyma því að fólk snýr aftur út í samfélagið.
Helgi segir að á sama tíma og fólk tali um að herða refsingar megi ekki líta fram hjá þeirri staðreynd að því lengur sem menn eru í lokuðu fangelsi því skaddaðri koma þeir út. „Við vitum að það eru framin alvarleg brot og það eru hættulegir einstaklingar sem þurfa úrræði, lokuð úrræði og fleira, en við vitum líka að meirihluti þeirra sem eru í fangelsi getur snúið aftur sem betri menn og ekki hættulegir öðrum. Þess vegna eigum við að einhverju leyti að gefa mönnum færi á að snúa aftur sem nýtir þjóðfélagsþegnar.“
Andri segir að margt hafi breyst á þeim 20 árum sem hann hefur verið fangavörður. Þegar hann hóf störf í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg var starfið miklu rólegra og fangahópurinn öðruvísi samsettur. Langflestir þeirra sem eru með minni háttar brot á bakinu og eiga góðan möguleika á að snúa aftur í samfélagið taka í dag út refsingu í samfélagsþjónustu. Í henni felst tímabundið, ólaunað starf sem getur komið í stað fangelsisvistunar, bæði vegna óskilorðsbundinna refsinga og vararefsinga fésekta. Ákvörðun um samfélagsþjónustu og framkvæmd hennar er í höndum Fangelsismálastofnunar.
Þeir sem dæmdir hafa verið í allt að 24 mánaða óskilorðsbundið fangelsi geta afplánað refsingu með samfélagsþjónustu uppfylli þeir öll skilyrði.
Þeir fara þá ekki í fangelsi en þeir sem fremja alvarlegri glæpi og eru fastagestir eru þeir sem afplána inni í fangelsum.
Þurfa að vera góðir í látbragðsleik
Andri segir að erlendum konum hafi fjölgað mikið í íslenskum fangelsum. Þær séu frá ólíkum menningarheimum og tali alls konar tungumál en ekki endilega ensku. „Þannig að fangaverðir þurfa að vera góðir í látbragðsleik,“ segir Andri og bætir við að það endi oft með því að fangaverðirnir kenni þeim íslensku því það sé erfitt að halda uppi öllum samskiptum með aðstoð þýðingarforrita. Stundum þarf að ræða afar flókin mál, til að mynda þegar fólk á börn í heimalandinu og þau eru jafnvel í pössun hjá nágrönnum sem eiga ekki einu sinni tölvu til að vera í samskiptum á milli landa.
Andri segir að það skipti sköpum fyrir fólk í fangelsum hvernig því lyndir við samfangana því það er, þegar upp er staðið, það sem hefur mest áhrif á lífið innan fangelsisveggjanna.
Í þættinum er talað um nýja bók Rósu Ólafar Ólafíudóttur um bróður hennar, Lalla Johns. Lalli, sem hét Lárus Björn Svavarsson, var einn þekktasti góðkunningi lögreglunnar um áratugaskeið.
„Ég strauk aldrei af Jaðri“
Meða útgáfu bókarinnar efnir Rósa loforð við Lalla sem bað hana að skrifa söguna alla áður en hann dó í maí í fyrra, 74 ára að aldri. „En þau kölluðu mig Lalla litla og reyndu að kenna mér að lesa og reikna. Stundum varð ég ofsalega pirraður og reiður vegna þess að stafirnir snerust á hvolf og breyttust í tölur og tölurnar í stafi.
Ég reyndi að læra að lesa og reikna vegna þess að þau urðu glöð og ánægð þegar mér tókst að stauta mig fram úr orðunum eða átta mig á tölunum. Þau voru líka góð við mömmu, voru kurteis og ljúf. Ég strauk aldrei af Jaðri,“ er haft eftir Lalla í bókinni.
Sumir jafnvel ólæsir
Andri segir að það nám sem er í boði í fangelsum henti alls ekki öllum. Það er einfaldlega of erfitt fyrir marga sem flosnuðu snemma upp úr námi meðal annars vegna fíkniefnaneyslu. „Svo eru bara sumir þeirra ekki læsir og það segir þér enginn ef hann kann ekki að lesa. Þeir fela það.“
Andri segir að menntaráðuneytið sé það ráðuneyti sem hefur sinnt fangelsunum minnst. Það geti gert betur. Það sem vel er gert í skólamálum sé einfaldlega starfsfólkinu að þakka. „Því það er svo auðvelt í fangelsismálunum fyrir ráðuneytin að vísa hvert á annað. Menntamálaráðuneytið hefði getað gert betur.“
Lögðu niður starf sérkennara
Fjallað verður um nám í fangelsum á Íslandi í ellefta þætti Betrunar sem er á dagskrá Rásar 1 þriðjudaginn 8. desember. Þar kemur meðal annars fram að staðnám er aðeins í boði á Litla-Hrauni og Sogni. Starf sérkennara á Hólmsheiði var lagt niður fyrir nokkrum árum þegar kennarinn fór á eftirlaun. Konur eiga því ekki möguleika á að stunda á nám í fangelsi nema þær komist í opið úrræði á Sogni. Þar eru námstækifærin færri en á Litla-Hrauni. Verknám er bara í boði á Litla-Hrauni. Fjölbrautaskóli Suðurlands annast kennslu í fangelsunum tveimur.
Aðeins tíu ár eru síðan fangelsið á Hólmsheiði var tekið í notkun en byggingarsagan er mun lengri. Andri vonast til þess að það taki ekki 50 ár að sjá nýtt fangelsi rísa á Stóra-Hrauni eins og fangelsi á höfuðborgarsvæðinu.
Pólitísk afskipti
Ef verknám á að standa föngum til boða þarf að taka tillit til þess þegar við hönnun byggingar eins og gert er á Stóra-Hrauni. Á Hólmsheiði er ekkert rými fyrir kennslu. Þar eru aðeins 56 pláss og Andri segir að þar hafi pólitísk afskipti haft mikið að segja.
„Þeir fengust ekki til að spila með, þá til dæmis þingmenn Suðurlands á sínum tíma. Af því að þeir vildu sjá uppbyggingu á Litla-Hrauni, þar voru þeirra kjósendur. Við gátum ekki beðið lengur og því var komist að einhverju samkomulagi. Þannig að Hólmsheiði er þetta stórt og það var meira að segja sett inn að það mætti ekki stækka það einmitt til að vernda þessi störf á landsbyggðinni. Það er allt rosalega flókið og skrýtið í þessum málum.“
Til stendur að byggja öryggismiðstöð á Hólmsheiði fyrir allt að 17 manns sem er gert að sæta öryggisráðstöfunum og geta ekki vistast í hefðbundnum fangelsum, þar á meðal fólk sem hefur jafnvel verið úrskurðað sakhæft og lokið afplánun en er of hættulegt samfélaginu. Þetta er sérstök bygging sem er greind frá starfsemi fangelsisins. Andri segir að öryggisvistun sé allt annað úrræði en fangelsi, þó er hún innan fangelsanna.
Stundum fangelsi það eina sem er í boði
Andri segir að fyrir suma sé fangelsi eini staðurinn sem er í boði og öll orkan fari í að sinna þeim veikustu í fangelsunum. „Við sinnum fólki ekki eins vel og áður,“ segir hann. „Þetta er bara eins og í skólakerfinu. Við þurfum svolítið að vera mest með þeim sem eru óþekkastir og þá gleymast þeir sem við gætum látið líða aðeins betur, sem er bara mjög sorglegt en þannig er það.“
Hátt hlutfall Íslendinga í afplánun er í virkri vímuefnaneyslu. Þeir eru fastir í því mynstri að þegar þeir fara út úr fangelsiskerfinu byrja málin gegn þeim að safnast upp og þeir eru því meira og minna inni í kerfinu. Þó kemur fyrir að þeir hætti að koma í fangelsi og það er afar jákvætt og gott, segir Andri.
Há endurkomutíðni í fangelsi eigi ekki að koma neinum á óvart og vandamálin séu víðar, svo sem í skóla- og heilbrigðiskerfinu. Oft sé erfitt að koma föngum á geðdeild. Andri skilur sjónarhorn starfsfólks á geðsviðinu því svo margir aðrir þurfi á þjónustu þess að halda, fólk sem á kannski engan að. „Fólkið okkar er þó alla vega hjá okkur á meðan, það er ekki bara úti, þannig að ég skil alveg forgangsröðina.“ Þrátt fyrir það sé þetta oft erfitt.
Fangar í sjálfsvígshættu eru þar á meðal. Það er mjög vont, segir Andri en bætir við að staðan hafi batnað. Fyrr á árinu tók Landspítalinn við geðheilsuteymi fangelsa og það er nú hluti af réttar- og öryggisgeðþjónustu spítalans.
Andri segir öll þessi kerfi fjársvelt og ef fólki finnst skóla- eða heilbrigðiskerfið ekki nógu gott þá megi eiginlega tífalda það á fangelsiskerfið.
Eins og hefur komið fram í þáttaröðinni Betrun hefur erlendum konum fjölgað mikið í fangelsum landsins.
Raunverulega spurning um mansal
Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur segir að margar kvennanna hafi ekki neina tengingu við landið. „Það sem við sjáum líka er að mörg þessara burðardýra, þessar konur sem eru að smygla, eru í mjög erfiðri stöðu og ég hef stundum litið á það þannig að þetta sé raunverulega spurning um einhvers konar mansal. Þær eru með mjög erfiða efnahags- og félagslega stöðu og oft kannski háðar fíkniefnasala eða einhverju slíku og eru að reyna að leysa úr þeim málum með því að smygla einhverju magni af fíkniefnum hingað til lands og enda svo hér í fangelsi hjá okkur. Þetta hefur skapað mikinn þunga í okkar kerfi, það er að segja afplánun þessara einstaklinga hjá okkur og tekið auðvitað mikið pláss og skapað álag á kerfið. Þetta eru einstaklingar sem búa ekki hér. Þetta eru einstaklingar sem ætla ekki að búa hér og það er oft eitthvað sem gleymist í þessari umræðu um að útlendingar séu mikið að fylla kerfið hjá okkur, brjóta af sér og fleira, að þá er bara hluti af þeim sem býr hérna,“ segir Helgi.
Rannsókn sem Helgi gerði fyrir tíu árum leiddi í ljós að um helmingur þeirra útlendinga sem afplána hér bjó á Íslandi. Hann telur að ef þetta yrði skoðað í dag yrði hlutfall þeirra sem ekki hefðu tengsl við landið enn hærra. Það veki spurningar um hvort það eigi yfirhöfuð að aðlaga þá íslensku samfélagi svo sem með afplánun í opnu úrræði þar sem viðkomandi ætlar sér aldrei að búa hér. „Samfélagi sem þau hafa aldrei tengst og ætla sér aldrei að tengjast,“ segir Helgi. Ný ákvæði um að hleypa útlendingum út eftir að hafa afplánað þriðjung refsingar með skilyrði um endurkomubann séu því spor í rétta átt. „Einmitt vegna þess að við ætlum okkur ekki að fara að setja einhver dýr úrræði í að aðlaga þessa einstaklinga að samfélagi sem þeir hafa ekki hugsað sér að búa í,“ segir Helgi.
Sæmir okkur ekki sem velferðarsamfélagi
Helgi hefur með nemendum sínum rannsakað fíkniefnaneyslu í fangelsum landsins og segir að hún sé mismunandi eftir fangelsum. „Hún er verulega til staðar til dæmis á Litla-Hrauni sem er auðvitað fangelsispláss sem er gjörsamlega úr sér gengið, bara sæmir okkur ekki sem velferðarsamfélag að bjóða upp á slíkt. Þar hafa fíkniefnin verið töluvert grasserandi en það er alveg rétt að stór hluti þeirra fanga sem eru hjá okkur á við áfengis- og vímuefnavanda að stríða og sumir vilja meina að það sé kannski rótin að þeirra vanda. Þess vegna skiptir miklu máli að þeir fái aðstoð við hæfi, svo sem félagslega og heilbrigðisaðstoð, við að vinna bug á þessum vanda sem gæti gert það að verkum að þeir gætu stigið aftur út í samfélagið og orðið nýtir borgarar,“ segir Helgi í níunda þætti Betrunar.
Það sé ekki möguleiki að halda fíkniefnum frá fangelsunum ekkert frekar en samfélaginu að öðru leyti. „Þarna eru menn lokaðir inni og mikið eftirlit og umgjörð. Þá fer maður líka að velta fyrir sér hvernig eigi að halda samfélaginu að öðru leyti fríu af fíkniefnum þegar okkur tekst ekki einu sinni að gera það í lokuðu fangelsi. Þannig að þetta ætti að fá okkur til þess að hugsa upp á nýtt stefnu okkar í áfengis- og vímuefnamálum. Hvort það sé ekki hægt að beita mýkri aðferðum til þess að takast á við vandann með svona félags- og heilbrigðishætti frekar en að hugsa strax um refsingar,“ segir Helgi.
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir að Ísland sé aftarlega á merinni í fangelsismálum. Félagið er réttindafélag fanga.
Dómsmálaráðherrar hafa haft lítinn áhuga
Við eigum engan rétt á að bera okkur saman við hin Norðurlöndin þegar kemur að fangelsismálum, segir Guðmundur Ingi í Betrun. „Auðvitað hefur þessi málaflokkur verið skilinn algjörlega út undan og sveltur fjárhagslega. Það hafa ekki valist góðir dómsmálaráðherrar í gegnum tíðina sem sinna þessum málaflokki vel eða hafa áhuga á honum,“ segir Guðmundur Ingi. Hann bindur miklar vonir við skipun Páls Winkels í embætti ráðuneytisstjóra. Páll var forstjóri Fangelsismálastofnunar um langt árabil.
Guðmundur Ingi segir að margt hafi vissulega batnað í fangelsimálum á undanförnum árum en stefnan hér sé refsingar á sama tíma og horft er á endurhæfingu og betrun annars staðar á Norðurlöndum. Hvert sem litið er sigli Íslendingar alltaf í gagnstæða átt. Hann bætir við að hin löndin hafi boðið fram aðstoð en íslensk stjórnvöld vilji alls ekki þiggja hana. „Þannig að við viljum bara halda áfram að finna upp hjólið, við getum gert þetta sjálf sem við því miður getum auðvitað ekki. Vegna þess að það er ekki settur tími, mannskapur eða peningar í þennan málaflokk.“
Þegar Guðmundur Ingi er spurður hvers vegna þetta sé svona segir hann að það þyki þægilegt að loka fólk inni, sem sé glapræði því það verði að hugsa um hversu vel tekst til þegar manneskjan kemur aftur út. „Ef okkur tekst ekki vel til með það þá erum við ekki bara að bregðast þeim einstaklingum heldur erum við að bregðast næsta brotaþola og samfélaginu. Á endanum kostar þetta allt miklu, miklu meira en ef tekið er á þessu strax í byrjun.“
Hvernig nágranna viljum við?
Guðmundur telur að endurkomutíðnin sé hærri en yfirleitt er talað um. Hún sé yfir 50% og tölfræðin sýni það þegar komið er inn í fangelsin. „Þetta er eitthvað sem við stöndum okkur afar illa í og þurfum að taka á. Stjórnvöld verða að átta sig á því að það sparar gífurlega peninga að taka á þessu í upphafi og að það bjargar mannslífum. En það er bara ekki það sem ríkisstjórnir hingað til hafa verið að horfa í. Þannig að það þarf viðhorfsbreytingu í þessum málaflokki og fólk þarf að átta sig á kostnaðinum.“
Til séu endalausar skýrslur, bæði innlendar og erlendar, um það sem er að. Þegar þær eru kynntar verði allt brjálað en aðeins í stuttan tíma því svo gleymist þær bara. Skiptir engu hvort það myndi spara mikið að hafa endurhæfingu að leiðarljósi í fangelsiskerfinu, meðal annars með aðkomu jafningja. Stjórnendur geðsviðs Landspítalans hafi áttað sig á þessu og ráðið jafningja en því miður sé það ekki komið annars staðar hjá þessari fordómafullu og dómhörðu þjóð.
Guðmundur Ingi segir að það þyrfti að horfa á málin út frá því þegar fólk losnar úr fangelsi, eða eins og Norðmenn segja: Hvernig nágranna viljum við? Viljum við endurhæfðan nágranna sem hefur farið í meðferð og tekið á sínum málum eða viljum við mann sem hefur verið í neyslu og afbrotum, jafnvel allan tímann inni í fangelsinu? „Það er alveg klárt hvað Norðmenn vilja en það er ekki það sama og við viljum. Svo kvörtum við mikið yfir ástandinu þegar út er komið enda er ekki hægt að ætlast til þess að fólk komi betra út ef það fær ekki sína aðstoð. Og við getum ekki alltaf horft bara á afbrotadaginn; hvað gerðist á þessum degi. Við þurfum að skoða sögu einstaklingsins vegna þess að ef við skoðum ekki sögu einstaklingsins og vinnum út frá þeim málum þá mun annar afbrotadagur koma seinna,“ segir Guðmundur Ingi í níunda þætti Betrunar.
Anna Kristín Newton sinnir enn fólki sem hefur verið í fangelsiskerfinu þótt hún hafi látið af störfum hjá Fangelsismálastofnun. Hún tekur undir með Guðmundi Inga um að það þurfi að gera betur þegar afplánun lýkur, hvernig fólk kemur út í samfélagið að nýju. Í þættinum fer hún yfir Exit-verkefnið sem er samstarfs um stuðning við fólk sem er að ljúka afplánun.
„Við þurfum að horfa til þess að fólk eigi einhvern möguleika. Þegar þú ert búinn að gera það sem er ætlast til af þér gegnum þína afplánun og bæta það sem þú getur bætt undir þeim kringumstæðum þá þarf að vera eitthvað sem tekur við þér. Ef þú átt ekki samastað eða húsnæði þegar afplánun er lokið þá ertu strax kominn á jaðarinn. Þá eru möguleikar þínir á að byggja þig upp og halda áfram á réttri braut takmarkaðri.“ Í þættinum fer Anna Kristín yfir hversu erfið staðan er og eins stöðu ungs fólks. Hvernig fullorðna fólkið hefur misst sjónar af hlutverki sínu gagnvart börnum og ungmennum. Það sé meðal ástæðna þess að ungu fólki hefur fjölgað að nýju í fangelsiskerfinu.
Sá hópur sem hafi síst fengið þann stuðning sem hann þarf samkvæmt farsældarlögunum sé hópurinn sem er með alvarlegastan vanda, eins og kemur fram í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar. „Það eru því miður kannski einstaklingarnir sem eru líklegastir til að enda inni í fangelsum.“
Anna Kristín telur að ef betur væri gert mætti koma í veg fyrir að þessi börn enduðu sem skjólstæðingar Fangelsismálastofnunar. „Börnin eru ekki vandamálið ef maður getur sagt sem svo. Allt umhverfið þarfnast stuðnings og aðhalds líka, ef maður getur sagt sem svo, í sumum tilvikum svo þetta er stærri pakki en bara að horfa á einstaklinginn. En jú, við getum klárlega gert betur og ættum að gera betur,“ segir hún þegar hún er spurð hvort snemmtæk íhlutun strax í æsku geti breytt stöðu þessara barna. Mikilvæg skref hafi verið stigið í að koma börnum úr áhættuhópnum og færa þjónustuna nær þeim, svo sem inn í skólana í stað þess að senda börnin í burtu sem hafi sýnt sig að skilar ekki árangri.
Byrjað að afplána en það dregst ekki frá refsingunni
Ítrekað hefur verið fjallað um yfirfull fangelsi og langa boðunarlista. Andri segir að fólk sem hefur fengið dóm en þarf að bíða eftir að hefja afplánun sé í raun þegar byrjað að afplána en biðtíminn dragist ekki frá refsingunni. Sá dæmdi getur ekki byrjað í nýrri vinnu, hafið nýtt samband eða gert eitt eða neitt án þess að hafa í huga að hann þurfi einhvern tímann að fara í fangelsi. Fleiri hundruð manns séu í þessari stöðu og bíði jafnvel árum saman, „Það er held ég rosalega erfitt að hafa yfir sér,“ segir Andri Þór.
„En það er horft í hverja krónu og við ráðum þessu ekki. Það er fólkið sem er kosið til fjögurra ára í senn þannig að við fáum sjaldan einhverja framtíðarsýn sem verður að veruleika.“
Í yfirlýsingu frá því í vor lýsir stjórn Félags fangavarða yfir þungum áhyggjum af yfirfullum fangelsum sem geri erfitt að tryggja öryggi fanga og starfsfólks og halda uppi eðlilegri þjónustu. Dæmi séu um 14 fangaa á deild fyrir átta og að fangar þurfi að vera í einangrun eða á lögreglustöðvum langtímum saman við ófullnægjandi aðstæður.
Fangelsiskerfið sé algjörlega komið að þolmörkum þegar kemur að getu starfsfólks til að viðhalda öryggi og eðlilegri þjónustu.
Fyrir tveimur árum réðst fangi fyrirvaralaust á fangaverði, þrír þeirra slösuðust og þurftu að leita aðhlynningar á spítala.
Veigra sér við að tilkynna ofbeldi
Dæmi eru um að fangaverðir veigri sér við að tilkynna ofbeldi sem þeir eru beittir til að lengja ekki vist fangans í fangelsi. Andri segir að þetta sýni hversu flókið málið er. Það sem er tilkynnt getur farið fyrir dóm sem þýðir að viðkomandi situr lengur inni. Það verði enn flóknara ef fanginn er andlega veikur. Fangaverðir tilkynni í sumum tilvikum ekki alla skapaða hluti sem fanginn gerir í mjög erfiðu andlegu ástandi. Auðvitað eigi að tilkynna allt en það er mikið að gera.
Viðtölin við Andra Þór Sturluson, Önnu Kristínu Newton, Guðmund Inga Þóroddsson og Helga Gunnlaugsson eru mun ítarlegri í þættinum. Þar er einnig stutt viðtal við Ásgeir Þór Arnarsson sem er meðal viðmælenda í tíunda þætti Betrunar sem er á dagskrá Rásar 1 á þriðjudaginn.
Það er hægt er hlusta á 9. þáttinn í heild hér fyrir ofan, í spilara RÚV og á hlaðvarpsveitum