Katrín Jakobs­dóttir er kona með for­tíð - Vísir

Katrín Jakobs­dóttir er kona með for­tíð - Vísir

Katrín Jakobs­dóttir er kona með for­tíð - Vísir

Erfitt reynist að ná í Katrínu til að fá hana í viðtal, hún er önnum kafin kona og ekki með fjölda fólks í vinnu eins og hún átti lengi að venjast. Katrín viðurkennir reyndar að hún svari ekki númerum sem hún ekki kannast við og einhverra hluta vegna var hún ekki með símanúmer blaðamanns Vísis vistað í símanum sínum! Hvað er það? Jæja. Vetrarblót kom út í lok október.

Klippa: Í bóli Bjarnars - Katrín Jakobsdóttir

„Já, en ég er búin að vera að hugsa þessa bók í raun og veru frá svona miðju ári 2024. Þá byrjaði eitthvað að gerjast í hausnum á mér.“

Hún er svolítið Agöthu Christie-leg?

„Já, enda er hún nú áhrifavaldur hjá mér.“

En samt ekki án fyrirvara, eða hvað? Svo ég vitni í bókina: „En mér leið eins og ég væri staddur í Agöthu Christie-mynd þarna inni. Sem ég þoli ekki,“ segir persónan Egill á einum stað snemma í bókinni.

„Já, það eru nefnilega margir sem þola ekki Agöthu Christie eða þessa hugmynd sem Agatha Christie var meistari í, að raða einhverju fólki saman, hvort sem það var á bát á Níl eða í einhverju óðalsetri eða einhverju litlu þorpi og fremja svo morð í huggulegu samhengi. 

Katrín vitnar í Chandler og segir að tímabært sé að taka morðið burt úr þessum ostakökuboðum á óðalsetrum og færa það þangað sem það á heima.vísir/vilhelm

Og eins og bara títt er um bókmenntir þá verða alltaf uppreisnir. Þegar hún er að skrifa sínar bækur og tilheyrir gullöld glæpasagnanna þá auðvitað verður uppreisn og Raymond Chandler skrifar fræga ritgerð sem segir: „Nú þarf að taka morðið burt úr þessum ostakökuboðum á óðalsetrum og færa það þangað sem það á heima, sem er auðvitað út á götur.“

Fellur aldrei verk úr hendi

Þannig er þetta öðrum þræði óður til Agöthu Christie og lokaður hópur fólks sem til greina kemur sem morðinginn. Það er mikið að gera hjá Katrínu, er hún ekki bara að dúlla sér með pennann einhvers staðar?

„Nei, ég er að sinna allt of mörgum verkefnum. Það er líklega persónuleikinn. Það kemur á daginn þegar maður fer úr svona starfi þar sem mikið er að gera þá hugsa allir: Já, nú er hún bara eitthvað að róast. En þá kemur á daginn að maður ræður ekkert við persónuleikann. Hann bara fleytir manni eitthvert áfram.“

Ertu svona dugleg?

„Ég veit ekki, þú veist, er ég ekki bara Íslendingur? Við erum nú dálítið svona æst að vera alltaf að. Íslendingar eru bara dálítið svona þannig. Ég veit ekki hvort maður á að kalla þetta dugnað. Þetta er nú kölluð einhvers konar manía stundum af mínum nánustu. Að falla aldrei verk úr hendi, en þannig hafa nú löngum íslenskar konur verið. Þeim fellur aldrei verk úr hendi.“

Þetta er ekki fyrsta bókin sem þú skrifar af þessu tagi. Það kom á óvart á sínum tíma þegar þið Ragnar Jónasson senduð frá ykkur tvær bækur sem heita Franski spítalinn sem kemur 25 og Reykjavík 22. Hvernig kom þetta samstarf til?

„Það er auðvitað löng saga. Ég sem sagt skrifaði um glæpasögur fyrir mörgum árum þegar ég var í íslenskunámi við Háskóla Íslands. Þá skrifaði ég sem sagt BA-ritgerð og seinna meistararitgerð um glæpasögur.“

Fékk vírursinn algjörlega á heilann

Katrín var algjörlega ein um þessa hitu um langt skeið.

„Þetta var 1999 og 2004 sem ég var að klára þessar ritgerðir. Og eftir það var ég alltaf viðloðandi, eða kölluð til að stýra umræðum og fjalla um glæpasögur. Svo fer maður á þing og það verður minna um þetta. En ég fylgist alltaf með og var alltaf dugleg að lesa. 

Katrín segir þau Ragnar Jónasson gerólík þegar kemur að stíl.vísir/vilhelm

Ég kynnist Ragnari, sem er sem sagt jafn gamall mér, í dómnefnd um bestu þýddu glæpasöguna. Þar sátum við árum saman og lásum þýddar glæpasögur. Svo gerist það að hann byrjar svona að tala um þetta. En það var bara alltaf allt of mikið að gera til að hugsa um þennan möguleika. Ragnar er svona ýtinn maður, eins og ég segi gjarnan, hann gefur ekkert eftir. Hann gafst ekki upp þrátt fyrir að ég reyndi að forða mér út úr þessu umræðuefni.“

Kurteislega?

„Já, á kurteislegan hátt. En svo gerist það sem sagt 2020 að hér skellur á heimsfaraldur og þá breytist náttúrulega allt lífið. Maður er einhvern veginn auðvitað mjög mikið í vinnu en maður er ekki að ferðast, maður er ekki að halda stjórnmálafundi. Það breytist aðeins rytminn.“

Katrín segist hafa fengið þennan vírus, eða Covid 19, algjörlega heilann og átti mjög erfitt með að hugsa um neitt annað. 

„En þá einhvern veginn kemur aftur til mín þessi hugmynd hans Ragnars; að ég ætti kannski bara að reyna að dreifa huganum á kvöldin áður en ég færi að sofa og skrifa kafla og kafla. Og svo tók þetta náttúrulega ægilega langan tíma að koma þessari bók saman, Reykjavík, en það tókst.“

Ég hef oft velt því fyrir mér af hverju það er ekki meira um að fólk taki sig saman og skrifi bækur. Það er ekkert mjög algengt?

„Nei, sko, það er auðvitað allt öðruvísi og það er ég búin að læra núna. Þegar maður skrifar bók með einhverjum öðrum en fólki gerir maður það náttúrulega á allan hátt. Við skrifuðum bókina þannig að við sáum fyrir okkur hvenær hver var drepinn, hvernig, hver og allt það. Reykjavík er náttúrulega svona nostalgísk saga, gerist 1986. Þá er einmitt Stöð 2 að byrja og það er Reagan og Gorbatsjov í Höfða og skemmtileg fortíðarþrá í þessu öllu saman.“

Hesturinn gerði það

Bak við þessar luktu dyr…

„Akkúrat. Sem ég horfði á mjög spennt tíu ára gömul. Afmæli Reykjavíkurborgar sem mér fannst á þeim tíma náttúrulega bara það merkilegasta sem hafði gerst. Þá stillir maður í raun og veru upp söguþræðinum, öllum köflunum, ákveður hvað eigi að gerast í hverjum kafla og svo skiptum við með okkur köflum. Og það sama vinnulag höfðum við þegar við skrifuðum um Franska spítalann þremur árum seinna. En þegar maður skrifar bara einn og sjálfur þá leggur maður af stað. Jú, maður veit svona sirka hvern maður ætlar að drepa og hver gerir það. Svo tekur sagan völdin.“

Er þetta yfirleitt alltaf þannig með svona krimmahöfunda, og þetta hefur kannski verið gagnrýnt þá sem svona einhvers konar formúlubókmenntir, að skapa lón og svo fylla inn í?

„Já, svo má deila um hvort bókmenntir almennt séu ekki formúla. Ég meina, að einhverju leyti passar glæpasagan best inn í skilgreiningu Aristótelesar á skáldskapnum. Þú veist, allt virðist vera í góðu lagi. Svo kemur á daginn að það er ekki allt í góðu lagi; það er einhver drepinn og einhver er ekki sá sem hann sýnist vera. Og svo er mál rannsakað. 

Draumur einnar aðalpersónunnar er að verða einhvers konar gúrú, sem var samt ekki á kafi í meinlætalífi heldur meira svona hress og kátur gúrú sem átti smá pening.vísir/vilhelm

Það eru mikil vonbrigði ef þú lest glæpasögu þar sem morðinginn næst ekki. Eða ef morðinginn, ef þetta reynist vera slys eða, eða norska glæpasagan sem ég las einu sinni þar sem hesturinn gerði það. Þú veist, það eru vonbrigði. Þú vilt að morðinginn fái makleg málagjöld og þá upplifir maður þetta sem Aristóteles kallaði kaþarsis eða lausnina, sko. Maður gleðst yfir verðskulduðum málagjöldum.“

Frelsið er yndislegt ég geri það sem ég vil

Ég og Hrafn Jökulsson störfuðum saman á tímabili og hann sagði einmitt: „Hvaða skáldsaga fjallar ekki um glæp?“

„Rétt. Við erum alltaf eitthvað að fjalla um þetta en það eru kannski ekki allar sögur um glæp sem fylgja þessu mynstri. Ég þykist nú eitthvað hafa stúderað þetta og þetta er það sem gerir glæpasöguna að glæpasögu. Þessi ákveðna leið þar sem við endurheimtum frið og ró í lok bókar.“

Fannst þér erfitt að standa í þessu ein eða er kannski bara gott að vera laus við Ragnar?

„Sko, báðar aðferðir hafa kosti og galla. Það er auðvitað gaman að hafa einhvern að tala við um karakterana. Við Ragnar vorum ekkert alltaf sammála um hvert þeir ættu að fara. Þú veist, það eru ákveðnir karakterar sem mér finnast alveg frábærir og hann vill helst bara senda þá út á land og losna við þá. Og öfugt. 

Katrín segir samstarfið við Ragnar Jónasson hafa verið gjöfult. Hún var með vírusinn á heilanum og þurfti um annað að hugsa en hann, þegar hún loks gaf kost á samstarfi.vísir/vilhelm

Og alls konar skrýtnir hlutir sem koma upp í svona samstarfi þar sem kannski öðru okkar finnst að einhver verði bara að heita þetta eða búa þarna og annars sé allt ómögulegt. Þannig að það getur auðvitað verið svona heilbrigð togstreita og það er líka skemmtilegt og gaman að kynna bækur með einhverjum öðrum. En á móti kemur að það er mikið frelsi að sitja bara og segja: Hey, ég ætla bara að gera þetta núna í bókinni. Sem maður er ekkert búinn að ákveða fyrir fram.“

Þarna er kannski komin skýringin á því hvers vegna það er ekki algengara að fólk sé að skrifa saman bækur. Það er frelsið?

„Það er frelsið. Svo er stundum sagt að það verði líka ójafnvægi og leiðindi í kringum samskrif. En það höfum við nú ekki upplifað. Við höfum bara haft gaman að þessu.“

Lélegasti nemandinn á hugleiðslunámskeiðinu

Það er talsvert stórt persónugallerí í bókinni, sem getur reynst ruglingslegt en þú gefur þér gott svigrúm til að kynna alla til sögunnar. En atburðirnir eiga sér stað um hugleiðsluhelgi? Og stundum finnst mér eins og þú sért að gera góðlátlegt grín að öllu saman? „… enda var draumur hennar að enda sem einhvers konar gúrú, sem var samt ekki á kafi í meinlætalífi heldur meira svona hress og kátur gúrú sem átti smá pening“ (bls. 12)?

„Já, ætli ég sé nú ekki fyrst og fremst bara að gera grín að sjálfri mér. Af því að hérna, ég sem sagt bara, þegar ég sem sagt hætti í stjórnmálum og varð ekki forseti eins og kunnugt er. Þá situr maður eftir svona atvinnulaus og svona hugsar: Já, hvað hérna, hvað geri ég nú?“

Og þá bauðst Katrínu að læra grunnatriði hugleiðslu.

„Sem mér fannst algjörlega frábært. Ég lærði mikið á því. En um leið einhvern veginn sér maður sjálfan sig svona utan frá og hugsar: Hér er ég kona á miðjum aldri, mætti einhvern veginn í einhverja svona sjálfsleit, getum við orðað. Og þá gerist það að þessi saga fer að gerjast með mér; að tefla saman fólki sem allt hefur sína djöfla að draga og er allt í leit að sjálfu sér. Og sko, eins og ég segi nú í lokin, þetta er ekki byggt á neinum sem ég hef kynnst í þessum fræðum því það er ekki svoleiðis. 

Katrín segir Hveragerði frábæran stað og var einkar áhugasöm um heilsuhælið þar.vísir/vilhelm

Konan sem þú varst að vitna til, hún Vigdís, er svona aðeins búin að tæpa á þessu, hún er aðeins búin að kynna sér grunnatriðin og hugsar: Hér sé ég tækifæri til að græða svolítinn pening. Og hún er svona búin að vera í löngu, mjög löngu doktorsnámi í heimspeki og er orðin svolítið þreytt á Kant og Heidegger, og hvað þeir allir heita, þreytt á misheppnuðum sambúðum og sér þarna tækifæri til skjótfengins gróða. Og nýtir sér auðvitað veikleika fólks sem er að eiga við sín vandamál að stríða. Það væri hægt að skrifa mjög alvarlega bók um þetta.“

En þú hefur sem sagt kynnt þér þessi fræði vel?

„Já, eða, þú veist, ég var náttúrulega lélegasti nemandinn í þessu öllu saman. Í staðinn fyrir að ná fullum tökum á hugleiðslunni fór ég og skrifaði morðsögu. Ég er líklega lélegasti hugleiðslunemandi allra tíma.“

Hefur aldrei farið á sveppatripp

En þú hefur ekki farið á ayahuasca-tripp eða sveppatripp? Sleikt froska eða eitthvað ævintýralegt?

„Nei. Ég er svo ferköntuð, maður. Allt sem ég geri er innan ramma laganna. Það eru örugglega einhverjar sneiðar af mér í ýmsum karakterum þarna.“

„Já, en eins og þú kemur nú inn á þá hafa nú yfirvöld svolítið verið að horfa í gegnum fingur sér með þessi ofskynjunarlyf sem hafa verið notuð í heilunartilgangi.

„Já, já, en ég þekki í raun og veru ekkert til með þetta. En nú bara býr maður við það að maður getur skoðað allt á internetinu og kynnt sér alls konar umræður um þessi mál, hugvíkkandi efni sem maður heyrir auðvitað eitthvað um og mér fannst ágætt að blanda því aðeins inn í söguna.“

Glæsilegt og þú, sko, þú lætur þess svo getið hérna í, í niðurlagsorðum að þú hafir farið á, á hérna heilsuhælið í Hveragerði. Varstu alveg búin eftir þetta stjórnmálastúss?

„Nei, ég hérna, það er þannig að maður getur fengið að dvelja þarna í rithöfundabústað. Ég komst að í slíkt. Ég fékk ekkert að fara neitt í leirböðin eða neitt svoleiðis.“

Núnú, ég hef misskilið þig. Sveinn Rúnar Hauksson, minn heimilislæknir, sendi mig einhvern tíma alveg á mörkum „burn outs“ á heilsuhælið þar sem ég dvaldi afar lukkulegur að svamla í leir og lystisemdum.

„Já, sko, ég sá að öllum leið rosalega vel sem voru þarna. En ég var bara þarna eitthvað ráfandi um og skrifandi og fannst þetta stórkostlegur staður. Það eru sumir bestu kaflarnir skrifaðir þar. Sem sagt í Hveragerði þar sem auðvitað sagan gerist að hluta og svo í Reykholti í Borgarfirði. 

Vinnuheiti Vorblóts var nú Morðið á Hugleiðslusetrinu. Sem útgefandanum fannst nú ekki gott heiti.vísir/vilhelm

Það er gott að komast aðeins út úr sínu. Það er heilmikið ógnvænlegt við það þegar þú ert að skrifa skáldskap. En hann gerist samt í einhverju sem fólk kannast við og við köllum veruleika. Og þar eru margir pyttir til að forðast. Til dæmis bara það að lýsa störfum lögreglunnar. Ég fékk töluverðar skammir í ferlinu og var mér hreinlega tilkynnt að væru þessir lögreglumenn í vinnu hjá alvörulögreglu þá væru þeir reknir umsvifalaust. Þannig að ég þurfti að endurskoða það.“

Samfélagsmiðlaumræðan herðir fólk að innan

Ég aðhyllist það að maður skuli nálgast bókmenntaverk bara út frá því sem það er og vera ekki alltaf að leita að einhverjum tilteknum í bókum. Er þetta ekki örugglega hann þessi? Og svo framvegis. Engu að síður þá kemstu kannski ekkert endilega frá því að vera sú sem þú ert. Og ég hnaut um nokkrar línur. Hér er ein: „… hún þótti ekki sýna mikla samhygð í störfum sínum [sem félagsmálaráðherra] og þegar hún lá yfir samfélagsmiðlum og kommentakerfum og las um sjálfa sig hafði hún smám saman harðnað að innan“ (Guðný, bls. 29). Er þetta kannski Katrín öðrum þræði?

„Nei, ekki endilega. Þetta er auðvitað fyrrverandi þingmaður og ráðherra sem hefur hætt heldur fyrr en hún vildi. En sko, ég held að þessi lýsing sé eitthvað sem hver einasta manneskja sem hefur starfað í opinberu lífi tengi við. Þessir samfélagsmiðlar og áhrif þeirra á umræðuna eru þannig að ég held að býsna margir harðni ansi hratt að innan eftir að hafa kynnst þeirri orðræðu. Ég held að það sé nú því miður þannig. Ég hef stundum sagt að það sé ekki alltaf mannbætandi starf að vera í stjórnmálum.“

Hér er önnur lína: „Egill viðurkenndi fyrir sjálfum sér að líklega þyrftu stjórnmálamenn að geta lesið fólk ef þeir ætluðu að ná einhverjum árangri“ (bls. 100)

„Já, já, það er einhver góður maður, kollegi minn í stjórnmálum, sem sagði að það væri æskilegt að stjórnmálamenn hefðu annaðhvort hugmyndir eða áhuga á fólki og best ef þeir hefðu hvoru tveggja. En þó ekki endilega algengt, sagði hann. Ég ætla ekki að leggja mat á það. En ástæðan fyrir því að ég var í stjórnmálum í meira en 20 ár er víst sú að ég hef rosalegan áhuga á fólki.“

Býr til heilan heim byggðan á tali saklausra sundlaugagesta

Og þessi er meðal annars ástæðan fyrir því að Katrínu þykir gaman að skrifa.

„Mér finnst fólk skemmtilegt. Maður situr kannski og sér einhvern í strætó eða maður er í sundi og heyrir svona, heyrir á tal einhverra – þetta hefur alltaf loðað við mig – og allt í einu er ég farinn að hugsa, ætli þetta sé svona og svona? Og allt í einu er kominn heill heimur með eitthvað aumingja fólk í sundi sem á sér einskis ills von.“

Af hverju er fólk að skrifa bækur?

„Það er nú það. Sko, ég ... Ég veit það eiginlega ekki.“

Katrínu vefst tunga um tönn.

„Ég skrifa af því að mér finnst gaman að lesa. Ég hef alltaf lesið ofboðslega mikið. Mér finnst það bara það besta sem ég geri að lesa góða bók og meira að segja bækur sem eru kannski ekki bestu bækur í heimi. Það er gott að lesa. Þú ferð inn í einhvern heim sem einhver annar er búinn að búa til og leggja á borð fyrir þig og þú færð að vera þar í smátíma. Og þess vegna skrifa ég af því að mig langaði bara að spreyta mig á því að búa til heim og bjóða fólki inn og leyfa því bara aðeins að vera þar.

Katrín er afar áhugasöm um fólk og hún þarf ekki annað en sjá einhvern í strætó eða sundi og þá er hún búin að teikna heilan heim um þann hinn sama.vísir/vilhelm

En svo hugsar maður mikið í þessum nútíma, þar sem mikið er talað um tæknibyltingar og gervigreind, hvað verði um okkur sem erum að skrifa bækur eða þau sem eru að semja tónlist eða hvað sem er. Nú geti gervigreindin gert þetta allt. Ég vona svo sannarlega að við finnum einhverja leið í því að takast á við það hvað við viljum að gervigreind geri og hvað við viljum að hún geri það ekki. Því það er auðvitað merkilegt að hugsa til þess að gervigreind semji tónlist en geti ekki hlustað á tónlist. Og að hún semji bækur en hún geti ekki lesið þær og horfið inn í þann heim. Þannig er auðvitað þessi skrýtna staða sem við erum einhvern veginn komin í þegar kemur að sköpuninni sjálfri.“

Íslenska sumarið sem aldrei ætlar að koma

Ég spyr því þegar ég var að lesa bókina þína í vikunni að Stefán Árni Pálsson íþróttafréttamaður gekk fram á mig og spurði einlæglega: „Af hverju ertu að lesa?“ Mér vafðist tunga um tönn. Ég hafði ekki svarið á reiðum höndum.

„Ég lít á lestur sem eitt form af hugleiðslu. Í hugleiðslunni ferðu inn á við og hverfur úr hugsunum dagsins. Þú einbeitir þér að því í raun og veru að vera ekki á valdi hugsana þinna. Lestur er kannski önnur leið til þess að hverfa úr hugsunum sínum og inn í einhvern annan heim.“

Þetta er reyndar um það bil sem ég sagði við hann, með öðrum orðum.

„Við erum einhvern veginn í þessum heimi þar sem er svo mikið áreiti. Ég hitti fólk sem segir: Ég get bara ekki lesið af því að síminn er alltaf að kalla á mig eða það er að koma „ping“ frá einhverjum tækjum. Ég held að fólk ætti kannski að velta því fyrir sér hvort það ætti bara stundum að leggja símann frá sér, fara inn í annað herbergi og prófa bara. Af því að ég held að þetta gefi fólki svo mikla núvitund. Heitir það ekki það?“

Jú jú.

„Einbeitingu.“

Þú ættir að vita það eftir að hafa stundað alla þessa hugleiðslu. Af hverju heitir bókin Vorblót?

„Sko, vinnuheiti þessarar bókar var nú alltaf bara Morðið á Hugleiðslusetrinu. Sem útgefandanum fannst nú ekki gott heiti. Þá kom það upp í huga mér að þetta tónverk Stravínskíjs, sem hefur nú alltaf verið mikið eftirlæti hjá mér, Vorblót. Og ein persónan er að hlusta á það í bílnum á leiðinni austur fyrir fjall. Bókin gerist að vori og vorið getur verið svo grimmt á Íslandi. Það er svo napurt og manni finnst að það ætti að vera komið gott veður. Svo kemur það bara ekkert, þetta veður. Maður er lengi í þessu millibili þar sem manni líður eins og vorið ætti að fara að koma en það er alltaf grámi og rok og rigning. Þannig að þetta er bara saga inn í íslenska vorið. Mig langar að halda að hún sé pínu íslensk þessi saga.“

Arnaldur brýtur ísinn með Mýrinni

Þú talaðir um það áðan að þú hafir verið farin að stúdera glæpasögur þegar fáir, ef nokkur, vildu kannast við þær. En undanfarin tuttugu ár hefur glæpasagan trónað á toppi metsölulista. Það sætir tíðindum ef Arnaldur er ekki á toppnum. Ég man að einhvern tímann var ég að ræða þetta við Jóhann Pál Valdimarsson, eða hvort þetta var ekki örugglega hann, sem sagði að sveiflur í mismunandi tegundum bóka væru eins og sveiflur í rjúpnastofninum. Það kæmu reglubundnir toppar og svo lægðir og svo aftur toppar. Mér þótti þetta góð kenning en svo kemur glæpasagan sem hefur haldið sínu í 20 til 30 ár. Það er ekki alveg að marka þessa metsölulista enn sem komið er, nema nú bregður svo við að það eru bara Bergur Ebbi, Margrét Bjarnadóttir og Guðrún Eva sem eru auk barnabóka á toppnum?

„Já, ég var réttilega að skoða glæpasögur áður en þær urðu vinsælar. Sem gerist samt svona í kringum 2000. Ég tel að Mýrin eftir Arnald marki ákveðin tímamót í þessum vinsældum glæpasagna. Að því leytinu til að það höfðu verið gefnar út glæpasögur hér alveg frá sko 1910. 

Katrín komin í hið akademíska umhverfi þar sem hún nýtur sín vel.vísir/vilhelm

Þá voru að koma út glæpasögur á Íslandi. En þessar sögur sem komu út voru stopular að því leytinu til að höfundur skrifaði eina bók en ekki miklu fleiri, í mesta lagi tvær, þrjár. Þær voru yfirleitt gefnar út undir dulnefni og þær voru ekki geymdar. Þær voru ekki uppi í bókahillu við hliðina á Laxness. Þær gengu á milli fólks og voru lesnar. Og það var auðvitað þannig þegar ég var að skrifa um glæpasögur á sínum tíma. Það var svona í árdaga – það var ekki hægt svo mikið sem að leita að öllu á internetinu. Þannig að þetta var auðvitað hálfbrjáluð hugmynd að fara að fást við þetta.“

Svolítið.

„Þannig að ég byrjaði eiginlega mínar rannsóknir á því að fara á bókasöfn og horfa yfir kilina. Þegar ég segi fólki frá þessu í dag horfir það á mig svona forviða: Fórstu á bókasöfn og horfir bara á kilina? Hvort þú sæir einhverja vænlega titla? En þetta gaf mér heilmikið og svo ræddi ég við eldra fólk sem mundi og það gat sagt mér heilmikið. Þannig að mér tókst að smíða svona nokkuð heillega mynd af því hvað hafði verið gefið út. Svo þegar Arnaldur byrjar að skrifa 97 þá skrifar hann Syni duftsins og þá koma fram fleiri höfundar. Stella Blomkvist…“

Sem er enn að?

„Já, Árni Þórarins. Alltaf bætist í þessa flóru Ævar Örn Jósepsson og það koma höfundar sem skrifa kannski eina bók en ekki fleiri. En þegar sem sagt Mýrin kemur 2000 þá varð allt í einu lögmætt að lesa þessar sögur, þær fara að sjást á metsölulistum og hafa verið þar síðan.“

„Pabbabókin“ einstakt íslenskt fyrirbæri

Nefnilega.

„Og valdið jafnvel því að það var heilmikil umræða á fyrsta áratug þessarar aldar um þetta væri nú eiginlega orðið algjörlega óþolandi. Það væri bara ekkert hægt að skrifa nema það væri glæpasaga.“

Já, þeir hafa margir verið að pirra sig á þessu.

„Já, já, fólk var svolítið pirrað. Og síðan hefur þetta bara haldið áfram. Ég meina, en alltaf fleiri og fleiri sem skrifa. Ég bætist í hópinn núna en ég er bara ein af tugum höfunda sem eru að spreyta sig á þessu formi. Þannig að vinsældirnar eru töluverðar en það eru svona ákveðnar tilhneigingar á þessum metsölulistum. Ég lagðist aðeins í að skoða þá í tengslum við námskeið sem ég kenndi. Bara í fyrra. Og ég er með kenningu.“

Lát heyra!

„Hún var smíðuð með þátttakendum á námskeiðinu því þetta var svona lærdómsferli. Þar benti Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, mér á að bókamarkaðurinn á Íslandi væri auðvitað sérstakur. Þetta er ekki markaður sem gengur út á að kaupa bækur til að lesa heldur kaupa bækur til að gefa. Og ég bjó þá til kenninguna um pabbabókina.“

Íslenskur bókamarkaður er einstakur hvað varðar jólabókaflóðið.

„Að glæpasaga sé bókin sem hægt er að gefa pabba í jólagjöf. Og það eru ákveðnir höfundar sem rata inn í pabbabækur því það er vel þekkt að pabbar lesa kannski minni skáldskap en mömmur. Rannsóknir benda til þess að konur séu öflugri skáldskaparlesendur en karlar. 

Katrín býður upp á kenningu sem útskýrir hvers vegna glæpasögur hafa tröllriðið metsölulistum undanfarin þrjátíu ár eða svo.vísir/vilhelm

Þannig að þú hefur fleiri bækur sem þú getur gefið mömmu þegar þú stendur frammi fyrir þessu vandamáli. Arnaldur hefur náð þeim status, þetta er kannski ástæðan fyrir því að útkallsbækur Óttars Sveinssonar eru alltaf á metsölulistum. Stefán Máni ratar ansi oft inn á þessa lista. Og svo framvegis. Þetta eru bækur fyrir pabba, meðan dreifingin er miklu meiri fyrir mömmurnar. En þetta er bara kenning.“

Ekki tímabært að afskrifa glæpasagnahöfundana

Mér finnst þetta frábær kenning og Katrín heldur áfram að botna hana.

„Þú kaupir aðrar bækur til að gefa en til að lesa sjálfur. Það var þessi setning frá Bryndísi sem kom mér af stað með þetta. Auðvitað breytir það aðeins hegðun manns í bókabúð ef þú ert að kaupa bækur til að gefa. Þú ert ekki bara að kaupa hvað sem er.“

Katrín segir að það eigi eftir að skýrast betur með metsölulistana.

„Þar hafa auðvitað þau Arnaldur og Yrsa og Ragnar verið gríðarlega áberandi. Og aðrir glæpahöfundar og Stefán Máni er tvímælalaust einn þeirra. Ég held nú að hann sé sá sem oftast hefur hlotið verðlaunin Blóðdropann. Þannig að þetta er alveg ótrúlega fjölbreyttur sko heimur höfunda. Afskaplega ólíkir höfundar.“

Katrín hefur verið að kenna námskeið núna um glæpasögur og þar vorum þau að lesa Satu Rämö sem hefur slegið í gegn með sitt glögga gestsauga.

„Og við vorum að lesa Lilju Sigurðar sem skrifaði glæpasögu sem gengur út á að blanda saman gervigreind og mannlífi. Hún kom út um síðustu jól. Þannig að ég segi að þetta er alveg ótrúlega fjölbreyttur heimur og ég gæti nefnt fleiri sko.“

Hvernig er með þýðingar á þessari bók? Ætlarðu eitthvað að reyna að koma henni út fyrir þetta örmálsvæði sem íslenskan er?

„Ég hef svona stillt væntingum mínum í kringum þetta allt mjög í hóf.“

Útgefandinn metnaðarfullur fyrir hönd Katrínar

En þú ert með grjótharðan útgefanda, hann Pétur Má Ólafsson, sem er væntanlega metnaðarfullur fyrir þína hönd?

„Jú. Hann skammar mig ákaft fyrir þessar litlu væntingar mínar. En ég skrifaði þessa bók náttúrulega fyrst og fremst mér til skemmtunar. Það er bara þannig. Mér fannst svo gaman að skrifa og hlakkaði til í hvert skipti sem ég settist niður og byrjaði að hugsa þetta. Og ég var oft að hugsa um bókina þegar ég var ekki að skrifa. Þá dró ég upp símann og skrifaði í nótu: Muna þetta. 

Katrín segir að sér hafi alltaf þótt afskaplega erfitt að láta annað fólk skrifa fyrir sig ræður.vísir/vilhelm

Þannig að það var nú fyrst og fremst tilgangurinn. Ég er búin að heyra fullt frá ánægðum lesendum og það er gaman og gleður mig. Þá er tilgangi mínum náð en ég hef ekkert gert til að hreyfa mig í þá átt að fá hana þýdda. En ég geri það kannski svona bara eftir jól.“

Það er glæsilegur stíllinn á þessu hjá þér. Hérna, ertu svona pennafær?

„Þú ert eitthvað svo almennilegur.“

Ég er náttúrlega voðalega sætur spyrill.

„Já, þú ert afar huggulegur. Ég náttúrulega hef skrifað alla ævi, bara ekki í skáldskap. Ég var náttúrulega alltaf að skrifa þegar ég var í háskólanum og svo fer maður í stjórnmál og maður skrifar ræður og nefndarálit alla daga. Ég hef reynt að fá aðra til að svona hjálpa mér að skrifa ræður en það fannst mér erfitt af því að einhvern veginn hefur maður svo sterka skoðun á því.“

Já, er það ekki svolítið vesen?

„Jú, það er mjög erfitt þannig að ég skrifaði nú mestmegnis mínar ræður sjálf. Og þannig að þú veist, ég hef skrifað alla ævi. Ég hef fengist við þýðingar og sitthvað. Mér finnst gaman að texta.“

Ambögur í texta geta rústað lestrarupplifun

Katrín keppist við að nánast afsaka af hverju stíllinn á bókinni er svona fínn. En þannig kona er hún.

„En það er erfitt að skrifa skáldskap. Það er aðeins önnur virkni sem þarf að eiga sér stað þar. Annar galdur að koma inn. En þú ert huggulegur að segja að ég sé ritfær. Ég er strax byrjuð að hugsa hvernig sé hægt að gera þetta betur. Svo vann ég náttúrulega um tíma sem yfirlesari á bókaforlagi.“

Þannig að þú ert kona með fortíð?

„Já,“ segir Katrín og hlær. „Ég er kona með mjög mikla fortíð.“

Hún segir þetta skipta máli. Það geti alveg eyðilagt lestrarupplifun að lesa einhverjar ambögur eða villur í texta. Þá geti fólk truflast illa.

„Og það er líka hérna, þegar við Ragnar vorum að skrifa saman þá reyndum við náttúrulega að lesa töluvert mikið hvort yfir hjá öðru.“

En þú ert miklu betri stílisti en Ragnar, slær spyrillinn fram skelmislega.

„Nei, láttu nú ekki svona. Þetta er ekki rétt hjá þér. En við, sko, við skrifum ólíkt. Við vorum að samræma stílinn okkar. Ragnar sagði einhvern tímann þar sem við vorum saman: „Ef það er brandari í bókinni hefur Katrín skrifað.“ Og líklega var það rétt. Hann skrifar miklu alvarlegri stíl. Það er bara svoleiðis.“

Hefur haldið sig markvisst frá opinberri pólitískri umræðu

Við höfum rætt um bókmenntir í hartnær klukkutíma. Hvernig líst þér á þjóðarskútuna okkar um þessar mundir verandi þessi kona með fortíð sem þú ert?

„Eins og þú hefur kannski tekið eftir hef ég nú ekki mikið blandað mér í pólitíska umræðu.“

Þú komst nú samt inn á þarna þessa þjóðaratkvæðagreiðslu sem að virðist nú ætla að verða býsna harðvítug?

„Heldur betur. Það var nú svo stórt mál – þegar málum er vísað til þjóðarinnar þá tilheyrir maður nú henni. Þannig að það er annað mál. En mér finnst náttúrulega rétt að stjórnmálamenn, talandi um að gjalda keisaranum það sem keisarans er, sinni þjóðarskútunni. 

Katrín segist ekki trúa öðru en hver og einn sem gefur sig að stjórnmálum sé að gera það því hann vilji samfélaginu vel.vísir/vilhelm

Ég var um daginn stödd erlendis en ég hef ferðast mikið starfa minna. Þetta var fyrir Alþjóðaheilbrigðisstofnunina. Svo hef ég verið aðeins að fara um og heimsækja háskóla erlendis þar sem maður hefur verið fenginn til að kenna aðeins og fara yfir mál; það er alltaf mjög gaman. Þú veist að margir héldu að ég myndi vilja bara flytja af landi brott og fara annað.“

Sú var kenningin.

„Sú var kenningin og hún var hávær. Og mikið spurt. En mér finnst þetta, þetta er mitt samfélag og mitt land. Það er bara þannig. Hér líður mér óskaplega vel.“

En þú hefur gætt þess að vera ekki að skipta þér neitt af?

„Nei, ég er meira í nærumhverfinu. Það er svoleiðis.“

Býrðu enn í blokk?

„Já, já. Það er nú eitt sem hugleiðslan kennir manni, að ef maður hefur verið í stjórnmálum, staðið í stafni og auðvitað reynt að hafa áhrif á samfélagið þá trúi ég að stjórnmálamenn almennt séu að reyna að hafa áhrif til góðs. En maður má aldrei gleyma nærumhverfi sínu. Þar vara áhrifin lengst.“

Það fer að gjósa, það koma heimsfaraldrar

En það hefur verið í mörg horn að líta, ég átti fullt í fangi með að ná í þig.

„Já, svo svara ég náttúrlega ekki símanum ef ég þekki ekki númerið.“

Ha? Er númerið mitt ekki vistað?

„Maðurinn minn er alltaf að segja að ég ætti að fá mér app sem birtir nöfn þeirra sem hringja. Nei, þú varst ekki vistaður hjá mér og ég biðst afsökunar á því. En ég er búinn að vista þig núna. Þannig að …“

Ef ég hringi?

„Þá mun ég ávallt svara!“

Eins gott fyrir þig. En þú hefur verið að stefna ótrauð í atið, virðist vera, komin í ótal stjórnir?

„Ég get bara ekki hætt að skipta mér af. Nei, þetta eru forréttindin við stjórnmálin, að maður er settur til verka. Og maður þarf að sinna því sem að höndum ber ásamt því auðvitað að reka sína stefnu og ýta þeim málum áfram sem maður vill ýta á eftir. En ég ræð ekki alltaf minni dagskrá. Það fer að gjósa, það koma heimsfaraldrar og hlutir bara gerast. En þegar maður er frjáls og sjálfstætt starfandi getur maður upp að ákveðnu marki valið sér verkefni. Þannig að ég hef helgað mig verkefnum sem ég tel mikilvæg. Mér finnst gaman að sinna málum sem tengjast menntun og menningu. Það hefur alltaf verið ástríða hjá mér, og svo verkefnum sem tengjast jafnréttismálum og loftslagsmálum.“

Eins og stödd í vísindaskáldsögu að ræða loftslagsmál

Þau hafa ekki verið mikið á dagskrá að undanförnu, þessi loftslagsmál?

„Nei, þau hafa ekki verið það. Ég fór nú á loftslagsráðstefnuna sem endaði í algjöru þroti fyrir nokkrum dögum. Ég var þar fyrir hönd Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar að ræða áhrif loftslagsbreytinga á heilsu okkar. Við erum nýkomin úr heitasta sumri í Evrópu. Tölurnar eru á borðinu og ótímabær dauðsföll eru mikil. 

Það vefst ekki fyrir Katrínu að lesa upp í jólabókaflóði, þar nýtur hún reynslu sinnar sem stjórnmálamaður.vísir/vilhelm

Gróðureldar og rosaleg heilsufarsleg áhrif af þeim, svo ég tali nú ekki um áhrifin á efnahagslífið og framleiðnina. En því miður hefur þetta farið niður á hinni alþjóðlegu dagskrá. Á sama tíma sjáum við vaxandi stríðsátök og vopnavæðingu. Þessar sjálfstýrðu vígavélar og ég hygg að margir séu uggandi yfir þróuninni. Ég tók þetta mál einhverju sinni upp á þingi, fyrir allmörgum árum og öllum fannst eins og ég væri stödd í einhverri vísindaskáldsögu.“

Einmitt.

„En þetta er nú veruleikinn sem við erum að horfa framan í núna. Þannig að það er kannski ekki skrýtið að þegar áskoranir eru svona stórar og koma úr mörgum áttum láti eitthvað undan. En því miður er nú þannig að loftslagsbreytingarnar hafa ekki farið neitt og við sjáum það sérstaklega hér á norðurslóðum.“

Já, þetta er dapurlegt. Ég er orðinn hálf þunglyndur.

„Já, fyrirgefðu. Þetta er kannski ástæðan fyrir því að það er erfitt að finna lausnir.“

Og þetta er kannski ástæðan fyrir því að fólk nennir ekki eða vill ekki almennilega fylgjast með fréttum eða hvað?

„Já, en þá er náttúrulega hlutverk leiðtoganna að færa fólki einhverja von í svona málum.“

Vel undir hundrað mættir

Ég get ekki samvisku minnar vegna haldið þér öllu lengur hér. Þú ert að fara að lesa fyrir gamla fólkið?

„Já. Ég fer víða og les upp. Mér finnst það gaman.“

Að lesa úr nýútkomnum bókum er heilmikill hluti þess að senda frá sér bók; að vera þátttakandi í jólabókaflóði?

„Já, það finnst ekki öllum gaman, hef ég heyrt. Sumum finnst þetta alveg hræðilegt. 

Katrín kvartar ekki undan því að þurfa að lesa upp úr bókinni, þar nýtur hún reynslunnar úr stjórnmálunum.vísir/vilhelm

Þá kemur sér nú vel að hafa verið í stjórnmálum og líka, af því við erum alltaf á fundum, við erum alltaf að fara um landið og mæta á fundi og stundum mæta hundrað og stundum mæta kannski þrír. Og maður lærir það mjög fljótt og örugglega að láta ekkert á sig fá þegar það eru þrír mættir.“

Katrín hugsar sig um eitt andartak.

„Ögmundur Jónasson sagði alltaf: Hér voru vel undir hundrað, þegar það voru kannski bara þrír. Og þú veist, maður lærir bara að upplestrar eru alls konar. Maður er þannig skólaður. Ég held að ég muni sko aldrei upplifa neinn ótta í tengslum við þetta. Það eru tveir mættir og þá hugsa ég alltaf bara: Vel undir hundrað hér. Þetta verður gaman.“

#fortíð #jakobsdóttir #katrín #kona #með


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262968608d/katrin-jakobs-dottir-er-kona-med-for-tid

📰 Aðrar fréttir

Íslandsferðin endaði sem sár vonbrigði – „Það eina sem er fjólublátt eru tærnar á mér“
📅 29.11.2026 👁️ 1
Íslandsferðin endaði sem sár vonbrigði – „Það eina sem er fjólublátt eru tærnar á mér“
Íslandsferð breska grínistans Alan Carr endaði sem sár vonbrigði. Carr kom til Íslands til að sjá norðurljósin en það fór ekki eins og hann hafði ætla...
Lucy Powell says curriculum changes will widen routes to success
📅 29.11.2026 👁️ 1
Lucy Powell says curriculum changes will widen routes to success
The revamp means teenagers can choose creative or technical options and drop some humanities subjects.
Tvær magnaðar bækur í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar.
📅 29.11.2026 👁️ 1
Tvær magnaðar bækur í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar.
Út eru komin merk verk í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Bókin Lækningalán Jóns Jónssonar prests og læknis í Árskógi og á Grenjaðarsta...
Orðið á götunni: Eflum hlutabréfamarkaðinn með skattaafslætti einstaklinga
📅 29.11.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Eflum hlutabréfamarkaðinn með skattaafslætti einstaklinga
Allt of rólegt er yfir hlutabréfamarkaði á Íslandi. Fyrir því eru ekki gild rök.Hlutabréfamarkaðir á Vesturlöndum hafa dafnað mun betur en hér á umlið...
Lög­reglan komin með nokkuð skýra mynd af slysinu - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Lög­reglan komin með nokkuð skýra mynd af slysinu - Vísir
Samkvæmt heimildum fréttastofu eru myndbandsupptökur frá aðdraganda þess að skipið sökk meðal gagna sem lögregla hefur sankað að sér. Myndbönd frá sly...
Albanir hleypi Ís­lendingum í glæpa­hópa sína - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Albanir hleypi Ís­lendingum í glæpa­hópa sína - Vísir
Þetta kom fram í máli þeirra Fjölnis Sæmundssonar, formanns Landsambands lögreglumanna, og Hildigunnar Einarsdóttur lögreglukonu, sem voru gestir Páls...
Murder suspect on bail before girl's death in East Ham
📅 29.11.2026 👁️ 1
Murder suspect on bail before girl's death in East Ham
A candlelit vigil was held for the girl in Grosvenor Gardens on Saturday evening.
Fjöl­skyldur skip­verja á Jökli þiggi á­bendingar - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Fjöl­skyldur skip­verja á Jökli þiggi á­bendingar - Vísir
Þetta skrifar Linda Björk Markúsardóttir, móðir hins 22 ára Markúsar Más Eldjárns Arnórssonar sem var bjargað þegar Jökull ÞE 299 fórst austur af land...
Ingimar Jónsson forstjóri Pennans: Þurfum að passa upp á jólabókaflóðið
📅 29.11.2026 👁️ 1
Ingimar Jónsson forstjóri Pennans: Þurfum að passa upp á jólabókaflóðið
Það hefur enginn hagvöxtur verið á Íslandi síðastliðin þrjú ár. Það þrengir að í hagkerfinu en slíkt ástand getur eflt bókina. Það sýndi sig í Covid o...
Jónína miðlar málum í nágrannaerjum: „Þið þurfið bara að haga ykkur eins og fullorðið fólk“
📅 29.11.2026 👁️ 1
Jónína miðlar málum í nágrannaerjum: „Þið þurfið bara að haga ykkur eins og fullorðið fólk“
Dæmi eru um að fólk hafi búið við stöðugt partýstand og neyslu í fjölbýlishúsum í áraraðir áður en það leitar sér aðstoðar. Þá koma reglulega upp dæmi...
Engin útköll þrátt fyrir slæma veðurspá
📅 29.11.2026 👁️ 1
Engin útköll þrátt fyrir slæma veðurspá
Engin útköll voru í gær og í nótt vegna veðurs þrátt fyrir appelsínugular veðurviðvaranir á Norðurlandi.Gular og appelsínugular veðurviðvaranir tóku g...
Hefur safnað steinum hálfa ævina
📅 29.11.2026 👁️ 3
Hefur safnað steinum hálfa ævina
Sigurður Sigurðsson – eða Siggi eins og hann er kallaður – hefur safnað steinum hálfa ævina. „Ég byrjaði þegar ég var fjögurra ára þannig að ég er búi...
Kosið á Spáni í skugga mót­mæla - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Kosið á Spáni í skugga mót­mæla - Vísir
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Kosningarnar fara fram í skugga mikilla mótmæla á Spáni vegna stöðunnar á húsnæðismarkaðnum. Mikil rei...
Minntist Íslandsvinar sem tengdist bresku konungsfjölskyldunni
📅 29.11.2026 👁️ 1
Minntist Íslandsvinar sem tengdist bresku konungsfjölskyldunni
Í nýjasta þætti Veiðarinnar með Gunnari Bender er Haraldi Eiríkssyni fylgt eftir við veiðar í Hítará á Mýrum. Í veiðinni minnist Haraldur látins vinar...
299 fréttir um úrræði fyrir konur – tvær um karlaathvarf
📅 29.11.2026 👁️ 1
299 fréttir um úrræði fyrir konur – tvær um karlaathvarf
299 fréttir um hjálparúrræði fyrir konur og tvær um karlaathvarf. Það er niðurstaða talningar Samtaka um karlaathvarf á fréttum RÚV frá október 2021 t...
Kosið á Spáni: Er Sanchez á útleið?
📅 29.11.2026 👁️ 2
Kosið á Spáni: Er Sanchez á útleið?
Kjörstaðir voru opnaðir á Spáni í morgun í þingkosningum þar sem meira en 38 milljónir manna eru á kjörskrá.Kannanir benda til þess að stjórn Pedro Sa...
Óttast að á­rásar­maðurinn komist upp með allt saman - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Óttast að á­rásar­maðurinn komist upp með allt saman - Vísir
Ísak Leó Freysson og kærasti hans og nafni Ísak Leon Júlíusson, þremur árum eldri, settust niður með blaðamanni. Kærastinn Ísak Leon er í meistaranámi...
Þyrlufeðgin, of­beldi gegn lög­reglu og „tóm vit­leysa“ um Njálu - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Þyrlufeðgin, of­beldi gegn lög­reglu og „tóm vit­leysa“ um Njálu - Vísir
Feðginin verða meðal gesta í Sprengisandi á Bylgjunni sem hefst klukkan tíu í dag. Fyrstur texta er þó Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og þingma...
Gæslu­feðgin ræða sjó­slysið - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Gæslu­feðgin ræða sjó­slysið - Vísir
Feðginin verða meðal gesta í Sprengisandi á Bylgjunni sem hefst klukkan tíu í dag. Fyrstur gesta er þó Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og þingma...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að gera mikið mál úr litlu
📅 29.11.2026 👁️ 2
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að gera mikið mál úr litlu
Mynd Í þessu lífi er yfirleitt best að reyna að halda
Röm­buðu á eftir­lýstan mann - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Röm­buðu á eftir­lýstan mann - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að par hafi verið handtekið í Grafarholti eða Úlfarsárdal vegna óspekta...
Hand­tóku aftur par - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Hand­tóku aftur par - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að par hafi verið handtekið í Grafarholti eða Úlfarsárdal vegna óspekta...
Israeli leadership rivals begin talks to break election deadlock
📅 29.11.2026 👁️ 1
Israeli leadership rivals begin talks to break election deadlock
Caretaker Prime Minister Benjamin Netanyahu and Gadi Eisenkot are meeting after the former proposed a unity government.
Israeli leadership rivals hold talks to break election deadlock
📅 29.11.2026 👁️ 1
Israeli leadership rivals hold talks to break election deadlock
Caretaker Prime Minister Benjamin Netanyahu and Gadi Eisenkot have met after the former proposed a unity government.
14 people die during ten-day crossing to the Canary Islands
📅 29.11.2026 👁️ 2
14 people die during ten-day crossing to the Canary Islands
Fourteen migrants have died during a ten-day Atlantic crossing after their boat was discovered drifting approximately 72 kilometres south of El Hierro...
Split Decisions, Draws and Scorecards: What boxing fans should know before betting
📅 29.11.2026 👁️ 2
Split Decisions, Draws and Scorecards: What boxing fans should know before betting
Big fights draw crowds to bars across the Canaries, and the post-fight arguments are almost as much a part of the night as the boxing. More often than...
Kólnar heldur - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Kólnar heldur - Vísir
Þessi lægð fjarlægist síðan landið og þá dregur úr vindi norðvestantil. Annars víða suðaustan gola eða kaldi með éljum eða slydduéljum en lengst af úr...
Virkja stuðningsnetið og ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Virkja stuðningsnetið og ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
Til að byrja með var þjónustan á Akureyri afmörkuð fyrir þau sem missa í sjálfsvígi en nú sinnir teymið einnig skyndilegum og ótímabærum missi og þega...
Ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
Til að byrja með var þjónustan á Akureyri afmörkuð fyrir þau sem missa í sjálfsvígi en nú sinnir teymið einnig skyndilegum og ótímabærum missi og þega...
Hálka á vegum víða um land
📅 29.11.2026 👁️ 3
Hálka á vegum víða um land
Hálka eða hálkublettir eru víða á vegum landsins í morgunsárið. meðal annars á Hellisheiði, í Þrengslum og á Sandskeiði, snjóþekja er á Mosfellsheiði ...
Christmas Markets open across Gran Canaria
📅 29.11.2026 👁️ 3
Christmas Markets open across Gran Canaria
Christmas markets are bringing festive cheer to Gran Canaria this weekend, with stalls selling handmade gifts, decorations, local produce and seasonal...
Polls open in Spanish general election
📅 29.11.2026 👁️ 3
Polls open in Spanish general election
Millions of Spaniards are set to vote in the snap election, which was called eight months early by the country's prime minister.
Fólk kannski úr sveit sem keypti sér ekki popp í bíó - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Fólk kannski úr sveit sem keypti sér ekki popp í bíó - Vísir
Svo æst erum við í það. Að fá sér popp og kók hefur einfaldlega verið nánast eins og órjúfanlegur partur af bíóhúsamenningunni. Um allan heim. Söguhor...
Hékkst þú í sjoppu á unglingsárunum?
📅 29.11.2026 👁️ 3
Hékkst þú í sjoppu á unglingsárunum?
Frétt af endurkomu Burger King til landsins vakti athygli í vikunni. Nærri 20 ár eru liðin frá því staðnum var lokað í Smáralind skömmu eftir hrun. St...
Hinn umdeildi Mike Love er látinn - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Hinn umdeildi Mike Love er látinn - Vísir
Love hafði aflýst fjölda tónleika Beach Boys á þessu ári og lést í gær, að sögn Katie Altman, kynningarfulltrúa hans. Ekki voru veittar upplýsingar um...
Two People Injured in Dog Attack in Los Cristianos
📅 29.11.2026 👁️ 2
Two People Injured in Dog Attack in Los Cristianos
Two people have been injured after being bitten by a dog in Los Cristianos, in the south of Tenerife, shortly before midnight on Friday (27th November...
Spáin gerir ráð fyrir kólnandi veðri
📅 29.11.2026 👁️ 3
Spáin gerir ráð fyrir kólnandi veðri
Á Vestfjörðum er enn gul veðurviðvörun í gildi og þar verður sunnan hvassviðri eða stormur fyrir hádegi.Veðurspá gerir ráð fyrir sunnan 13-20 metrum á...
SUNDAY WEATHER: Sunshine and scattered showers across the Canary Islands
📅 29.11.2026 👁️ 2
SUNDAY WEATHER: Sunshine and scattered showers across the Canary Islands
The Canary Islands are expecting another changeable day today (Sunday, 29th November), with a mixture of sunshine, cloud and occasional showers.Accord...
Rúanda veðjar á Formúlu 1
📅 29.11.2026 👁️ 3
Rúanda veðjar á Formúlu 1
Margir íþróttaáhugamenn kannast við auglýsinguna „Visit Rwanda“ eða heimsækið Rúanda. Þessi einfalda auglýsing hefur verið á búningum þekktra knattspy...
Mike Love í Beach Boys látinn 85 ára að aldri
📅 29.11.2026 👁️ 2
Mike Love í Beach Boys látinn 85 ára að aldri
Bandaríski tónlistarmaðurinn Mike Love er látinn 85 ára að aldri. Bandarískir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær en ekki hefur verið gefið upp hvar ha...
Spain approves nationwide ban on flavoured vapes
📅 29.11.2026 👁️ 5
Spain approves nationwide ban on flavoured vapes
Spain has approved new restrictions banning flavoured electronic cigarettes and vaping liquids, a move that will affect vape shops and consumers throu...
Drög að gjaldþroti: Starfsmaður Fabrikkunnar segir frá
📅 29.11.2026 👁️ 2
Drög að gjaldþroti: Starfsmaður Fabrikkunnar segir frá
Nítján ára gamall fyrrverandi starfsmaður Hamborgarafabrikkunnar við Höfðatorg í Reykjavík lýsir aðdragandanum að lokun staðarins fyrr í nóvember. Han...
Fárveikt fólk vistað í fangelsum
📅 29.11.2026 👁️ 3
Fárveikt fólk vistað í fangelsum
Norrænar rannsóknir sýna, að verulegur hluti fanga er með geðrænar áskoranir, eða fíknisjúkdóma. Heilbrigðisstarfsmönnum hefur fjölgað í fangelsum end...
Markús lifði af þegar Jökull sökk: „Ég hugsaði bara til mömmu minnar“
📅 29.11.2026 👁️ 2
Markús lifði af þegar Jökull sökk: „Ég hugsaði bara til mömmu minnar“
Markús Már Eldjárn Arnórsson, 22 ára sjómaður sem lifði af þegar Jökull ÞH 299 sökk, segir að hann hafi oft hugsað til móður sinnar meðan hann var í s...
Það er vanda­málið – hvað pabbi og mamma eru ung - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Það er vanda­málið – hvað pabbi og mamma eru ung - Vísir
Í þættinum Um land allt kynnumst við mannlífi í Vatnsdal og Þingi. Þátturinn er sýndur á Sýn+ í dag, sunnudag, klukkan 13:00. Einn besti útsýnisstaður...
Vanda­mál hvað pabbi og mamma eru ung - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Vanda­mál hvað pabbi og mamma eru ung - Vísir
Í þættinum Um land allt kynnumst við mannlífi í Vatnsdal og Þingi. Þátturinn er sýndur á Sýn+ í dag, sunnudag, klukkan 13:00. Einn besti útsýnisstaður...
Rosie O'Donnell 'in shock' after Russell Brand guilty verdict
📅 29.11.2026 👁️ 1
Rosie O'Donnell 'in shock' after Russell Brand guilty verdict
The actor and comedian Rosie O’Donnell has told the BBC that she was “in shock” when she heard the Russell Brand verdict.
Handtekinn vegna dauða 400 frumbyggja
📅 29.11.2026 👁️ 6
Handtekinn vegna dauða 400 frumbyggja
Otto Noack, fyrrverandi ofursti í gvatemalska hernum, var handtekinn á föstudaginn vegna dauða um 400 frumbyggja í Gvatemala árið 1982.Frá árinu 1960 ...
Krakkatía vikunnar: Kettir, jóla­lög og mogging - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Krakkatía vikunnar: Kettir, jóla­lög og mogging - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Harsh winter in Europe could drive energy prices 'even higher', agency boss warns
📅 29.11.2026 👁️ 2
Harsh winter in Europe could drive energy prices 'even higher', agency boss warns
The International Energy Agency's Dr Fatih Birol say it is "impossible" to imagine the energy system will return to how it was pre-war.