Sigurður Sigurðsson – eða Siggi eins og hann er kallaður – hefur safnað steinum hálfa ævina. „Ég byrjaði þegar ég var fjögurra ára þannig að ég er búinn að safna í fjögur ár,“ segir Siggi.
Steinasafnið hans telur nú um 150 steina frá fjórum löndum og þremur heimsálfum. Á Náttúrusafni Kópavogs fer fram sýning á Steinasafni Sigga, eða allavega á hluta af safninu hans.
„Ég á fleiri heima. Bara það er ekki svo mikið pláss í þessari skúffu þannig að ég gat ekki tekið alla, þannig að ég tók bara flottustu,“ segir Siggi.
„Ég fann flesta í Tyrklandi,“ segir Siggi. „Svo á ég marga flotta steina líka frá Íslandi sem að annaðhvort mamma mín gaf mér eða ég fann sjálfur.“
Steinaáhuginn kviknaði út frá steinamyndböndum á netinu og Minecraft-tölvuleiknum.