Rúanda veðjar á Formúlu 1

Rúanda veðjar á Formúlu 1

Rúanda veðjar á Formúlu 1

Margir íþróttaáhugamenn kannast við auglýsinguna „Visit Rwanda“ eða heimsækið Rúanda. Þessi einfalda auglýsing hefur verið á búningum þekktra knattspyrnufélaga og á auglýsingaskiltum á stórum íþróttaviðburðum, fyrir augum milljóna áhorfenda. Að baki þessum skilaboðum liggur mikil fjárfesting. Stjórnvöld hafa notað íþróttir til að vekja áhuga á landinu og laða að ferðamenn og fjárfesta. Nú er komið að einu metnaðarfyllsta verkefninu til þessa, að fá Formúlu 1 til Rúanda.

En það eru skarpar andstæður í þessari fyrirætlun. Rúanda er fátækt ríki þar sem stjórnvöld þurfa að mæta brýnum þörfum íbúa fyrir heilbrigðisþjónustu, húsnæði og aðra grunnþjónustu. Formúla 1 er hins vegar heimur mikilla peninga, alþjóðlegra stórfyrirtækja og gesta sem greiða himinhátt verð fyrir að komast sem næst brautinni. Stjórnvöld vilja tengja þessa tvo heima saman.

Þá kemur að stóru spurningunni: Hversu miklu á ríki að verja til að sýna heiminum glansmynd af sjálfu sér og hvað skilar sér í raun og veru til almennings heima fyrir?

Málið var tekið fyrir í Heimskviðum sem má hlusta á í spilaranum hér að neðan.

Kappaksturinn snýr aftur til Afríku eftir rúmlega þrjátíu ára bið

Lengi vel var Evrópa þungamiðja Formúlu 1. Þar liggja rætur mótaraðarinnar. Á síðustu áratugum hafa auðug ríki við Persaflóa hins vegar fjárfest af krafti í keppnishaldi. Barein, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía og Katar eru nú meðal gestgjafa. Afríka hefur aftur á móti staðið utan keppnisdagatalsins frá árinu 1993, þegar síðast var keppt í Suður-Afríku.

Í október 2026 var tilkynnt um tíu ára samning um keppnishald í Rúanda. Fyrsti kappaksturinn er fyrirhugaður snemma á næsta áratug. Fyrst þarf þó að byggja nýja braut nærri höfuðborginni Kigali.

„Þetta snýst náttúrlega bara um peninga, eins og í öðrum íþróttum. Peningar skipta sérstaklega miklu máli í Formúlu 1 sem er rándýrt sport. Ástæðan fyrir því að við höfum ekki haft kappakstur í Afríku í rúm þrjátíu ár er einfaldlega vegna þess að það eru ekki til brautir í Afríku sem uppfylla kröfur,“ segir Bragi Þórðarson, einn af lýsendum Formúlu 1.

„Það var keppt síðast á Kyalami-brautinni í Suður-Afríku. Ástæðan fyrir því að keppnin hætti í Kyalami á sínum tíma er bara fjárhagsleg. Í fyrsta lagi þarf að borga mjög háar upphæðir til að mega halda Formúlu 1 keppni og svo er kostnaður við að reka brautina gríðarlegur ár frá ári.“

Það getur kostað milljarða króna á ári að tryggja sér réttinn til að halda keppni. Ofan á það bætist kostnaður við brautina og sjálft mótshaldið. Gestgjafarnir þurfa því að sjá fram á töluverðan ávinning.

„Um keppnishelgina ertu að fá þrjú til fjögur hundruð þúsund manns í borgina þína, sem auðvitað hjálpar öllum þeim sem eru í rekstri, þetta hjálpar túrismanum mjög mikið í borginni. Rúanda er frábært dæmi um þetta, þeir vilja kynna landið sitt og vilja að túrismi aukist þar í landi,“ segir Bragi.

Ímynd og uppbygging eftir þjóðarmorð

Rúanda vonast eftir fleiri ferðamönnum, nýjum störfum og aukinni fjárfestingu. En stjórnvöld vilja líka breyta ímynd lands sem margir tengja enn við þjóðarmorðið árið 1994.

Á um hundrað dögum voru þá um átta hundruð þúsund manns myrt. Öfgamenn úr röðum hútúa skipulögðu og frömdu þjóðarmorð á tútsum. Þar gegndu stjórnvöld, stjórnarherinn og vígasveitir lykilhlutverki. Hútúar sem voru taldir andstæðingar öfgamannanna voru einnig myrtir. Herlið undir stjórn Pauls Kagame batt enda á þjóðarmorðið og tók völdin. Eftir stóð sundurtætt samfélag.

Síðan hefur Rúanda gengið í gegnum mikla uppbyggingu. Efnahagurinn hefur vaxið hratt og stjórnvöld lagt áherslu á erlenda fjárfestingu og ferðaþjónustu. Kagame hefur verið forseti frá árinu 2000. Hann hefur hlotið lof fyrir framfarirnar, en jafnframt sætt harðri gagnrýni fyrir kúgun stjórnarandstöðu. Í forsetakosningunum árið 2024 hlaut hann rúmlega 99 prósent atkvæða samkvæmt opinberum niðurstöðum. Nokkrum frambjóðendum, þar á meðal þekktum gagnrýnendum hans, hafði verið meinað að bjóða sig fram.

Kagame lýsir samningnum sem tímamótum fyrir Afríku í heild og vonast til að fleiri ríki álfunnar geti haldið Formúlu 1 keppni.

Hver borgar brúsann?

Fyrirhuguð braut verður í Bugesera-héraði, um fjörutíu kílómetra sunnan við Kigali. Þar er þegar verið að byggja nýjan alþjóðaflugvöll. Brautin verður því hluti af uppbyggingu á svæðinu, en flugvöllurinn er sjálfstætt verkefni. Auk keppnisbrautarinnar þarf aðstöðu fyrir lið, áhorfendur og fjölmiðla.

Í frétt AFP er rætt um að bygging nútímakappakstursbrautar geti kostað hundruð milljóna bandaríkjadala. Það jafngildir tugum milljarða íslenskra króna. Þetta er þó ekki heildarkostnaðaráætlun fyrir verkefnið í Rúanda. Við framkvæmdirnar bætast mótshaldsgjöld, rekstur og viðhald. Í þeim gögnum sem hafa verið kynnt er ekki skýrt hversu stór hluti reikningsins lendir á ríkinu og hversu mikið einkafjárfestar leggja fram.

Spurningar um fjármögnun íþróttasamninga Rúanda eru ekki nýjar af nálinni. Árið 2018 spurði breski þingmaðurinn Neil Coyle um þróunaraðstoð Breta við Rúanda í ljósi kostnaðarsams auglýsingasamnings við enska knattspyrnuliðið Arsenal. Breska ríkisstjórnin svaraði því að ekkert fé úr þróunaraðstoð Breta hefði farið í samninginn. Samkvæmt stjórnvöldum í Rúanda var auglýsingasamningurinn greiddur með tekjum af ferðaþjónustu. Þau bentu sérstaklega á að ferðamenn greiddu háar fjárhæðir fyrir að fá að skoða fjallagórillur og nefndu það sem dæmi um þær tekjur sem landið hefur til ráðstöfunar.

Íþróttir og ímynd

Gagnrýnin snýst ekki aðeins um peninga. Amnesty International segir samninginn gefa stjórnvöldum í Rúanda tækifæri til íþróttaþvottar, sem sagt að nota íþróttir til að fegra ímynd sína og draga athyglina frá mannréttindabrotum. Samtökin benda á handahófskenndar fangelsanir, pyntingar og skerðingu tjáningarfrelsis í Rúanda. Þau saka stjórnvöld einnig um að kynda undir átökunum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, bæði með stuðningi við uppreisnarhópinn M23 og beinni þátttöku rúandska hersins.

Rúanda er ekki fyrsta ríkið sem sætir slíkri gagnrýni. Í Heimskviðum var meðal annars fjallað um fjárfestingar Sádi-Arabíu í íþróttum í janúar 2024. Bæði Sádi-Arabía og Katar héldu sína fyrstu Formúlu 1 keppni árið 2021. Í aðdraganda þessara keppna vakti breski ökuþórinn og sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton máls á réttindum hinsegin fólks og ábyrgð Formúlu 1 á að vekja athygli á mannréttindabrotum.

Hvað situr eftir fyrir almenning?

Formúla 1 er þó að einu leyti frábrugðin heimsmeistaramóti eða Ólympíuleikum, kappaksturinn á að koma aftur ár eftir ár. Það getur skapað endurteknar tekjur, en kallar líka á áframhaldandi útgjöld.

„Reynslan sýnir okkur yfirleitt að það situr mjög lítið eftir nema viðvarandi kostnaður. Þetta eru yfirleitt mót sem standa í tiltölulega skamman tíma, þegar við erum að skoða þessi stórmót, Ólympíuleika og heimsmeistaramót í boltaíþróttum. Kröfurnar eru mjög ríkar varðandi innviði þannig að það er verið að eyða verulega miklum peningum í partí sem stendur í fáeinar vikur,“ segir Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi, en hann hefur fjallað mikið um íþróttir og fjármál.

„Til dæmis sjáum við það á reynslu Brasilíumanna, sem er mjög áhugavert dæmi vegna þess að þeir fengu bæði heimsmeistaramót og Ólympíuleika með skömmu millibili. Þetta varð að verulegri byrði á sveitarfélögunum og ríkissjóði. Það er erfitt að sjá að þetta hafi skilið eftir sig nokkuð annað en kostnað,“ bætir Björn við.

Björn gefur þó einnig dæmi um mót sem geti haft jákvæð áhrif líkt og í tilfelli Barcelona 1992 þegar borgin hélt Ólympíuleika.

En það eru ekki aðeins tekjur og störf sem ríkin sækjast eftir. Stórmót gefa þeim líka tækifæri til að vekja athygli á sér og styrkja ímynd sína innanlands og á alþjóðavettvangi eins og Björn gefur dæmi um.

„Stundum er það þannig að það er verið að reyna að senda einhver skilaboð út í heim. Þá er verið að sýna umheiminum ákveðna mynd, þetta hefur verið stundum rökstuðningur hjá löndum á borð við Brasilíu, Suður-Afríku, Rússland og önnur lönd sem vilja sýna að þau geti þetta. Að það sé óhætt að koma þangað og óhætt að stunda viðskipti við viðkomandi land. Þarna er þá litið svo á að kostnaðurinn muni skila miklu meiru,“ segir Björn.

Rúanda sækist eftir meiru en einni keppnishelgi. Stjórnvöld vilja fá ferðamenn og fjárfestingu, skapa störf og breyta því hvernig heimurinn sér landið. Fari keppnin fram munu myndir frá Rúanda birtast á skjám um allan heim. Hvort athygli heimsbyggðarinnar skilar betri lífskjörum ræðst þó af mörgu, meðal annars kostnaðinum, störfunum sem verða til og hvernig ávinningurinn skiptist.

Það verður hægt að telja gestina, bókaðar hótelnætur og selda aðgöngumiða. Erfiðara verður að meta hvað hefði orðið til ef fjármununum hefði verið varið með öðrum hætti.

#formúlu #rúanda #veðjar


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-11-29-ruanda-vedjar-a-formulu-1-493646

📰 Aðrar fréttir

Íslandsferðin endaði sem sár vonbrigði – „Það eina sem er fjólublátt eru tærnar á mér“
📅 29.11.2026 👁️ 1
Íslandsferðin endaði sem sár vonbrigði – „Það eina sem er fjólublátt eru tærnar á mér“
Íslandsferð breska grínistans Alan Carr endaði sem sár vonbrigði. Carr kom til Íslands til að sjá norðurljósin en það fór ekki eins og hann hafði ætla...
Lucy Powell says curriculum changes will widen routes to success
📅 29.11.2026 👁️ 1
Lucy Powell says curriculum changes will widen routes to success
The revamp means teenagers can choose creative or technical options and drop some humanities subjects.
Tvær magnaðar bækur í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar.
📅 29.11.2026 👁️ 1
Tvær magnaðar bækur í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar.
Út eru komin merk verk í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Bókin Lækningalán Jóns Jónssonar prests og læknis í Árskógi og á Grenjaðarsta...
Orðið á götunni: Eflum hlutabréfamarkaðinn með skattaafslætti einstaklinga
📅 29.11.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Eflum hlutabréfamarkaðinn með skattaafslætti einstaklinga
Allt of rólegt er yfir hlutabréfamarkaði á Íslandi. Fyrir því eru ekki gild rök.Hlutabréfamarkaðir á Vesturlöndum hafa dafnað mun betur en hér á umlið...
Lög­reglan komin með nokkuð skýra mynd af slysinu - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Lög­reglan komin með nokkuð skýra mynd af slysinu - Vísir
Samkvæmt heimildum fréttastofu eru myndbandsupptökur frá aðdraganda þess að skipið sökk meðal gagna sem lögregla hefur sankað að sér. Myndbönd frá sly...
Albanir hleypi Ís­lendingum í glæpa­hópa sína - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Albanir hleypi Ís­lendingum í glæpa­hópa sína - Vísir
Þetta kom fram í máli þeirra Fjölnis Sæmundssonar, formanns Landsambands lögreglumanna, og Hildigunnar Einarsdóttur lögreglukonu, sem voru gestir Páls...
Murder suspect on bail before girl's death in East Ham
📅 29.11.2026 👁️ 1
Murder suspect on bail before girl's death in East Ham
A candlelit vigil was held for the girl in Grosvenor Gardens on Saturday evening.
Fjöl­skyldur skip­verja á Jökli þiggi á­bendingar - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Fjöl­skyldur skip­verja á Jökli þiggi á­bendingar - Vísir
Þetta skrifar Linda Björk Markúsardóttir, móðir hins 22 ára Markúsar Más Eldjárns Arnórssonar sem var bjargað þegar Jökull ÞE 299 fórst austur af land...
Katrín Jakobs­dóttir er kona með for­tíð - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Katrín Jakobs­dóttir er kona með for­tíð - Vísir
Erfitt reynist að ná í Katrínu til að fá hana í viðtal, hún er önnum kafin kona og ekki með fjölda fólks í vinnu eins og hún átti lengi að venjast. Ka...
Ingimar Jónsson forstjóri Pennans: Þurfum að passa upp á jólabókaflóðið
📅 29.11.2026 👁️ 1
Ingimar Jónsson forstjóri Pennans: Þurfum að passa upp á jólabókaflóðið
Það hefur enginn hagvöxtur verið á Íslandi síðastliðin þrjú ár. Það þrengir að í hagkerfinu en slíkt ástand getur eflt bókina. Það sýndi sig í Covid o...
Jónína miðlar málum í nágrannaerjum: „Þið þurfið bara að haga ykkur eins og fullorðið fólk“
📅 29.11.2026 👁️ 1
Jónína miðlar málum í nágrannaerjum: „Þið þurfið bara að haga ykkur eins og fullorðið fólk“
Dæmi eru um að fólk hafi búið við stöðugt partýstand og neyslu í fjölbýlishúsum í áraraðir áður en það leitar sér aðstoðar. Þá koma reglulega upp dæmi...
Engin útköll þrátt fyrir slæma veðurspá
📅 29.11.2026 👁️ 1
Engin útköll þrátt fyrir slæma veðurspá
Engin útköll voru í gær og í nótt vegna veðurs þrátt fyrir appelsínugular veðurviðvaranir á Norðurlandi.Gular og appelsínugular veðurviðvaranir tóku g...
Hefur safnað steinum hálfa ævina
📅 29.11.2026 👁️ 2
Hefur safnað steinum hálfa ævina
Sigurður Sigurðsson – eða Siggi eins og hann er kallaður – hefur safnað steinum hálfa ævina. „Ég byrjaði þegar ég var fjögurra ára þannig að ég er búi...
Kosið á Spáni í skugga mót­mæla - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Kosið á Spáni í skugga mót­mæla - Vísir
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Kosningarnar fara fram í skugga mikilla mótmæla á Spáni vegna stöðunnar á húsnæðismarkaðnum. Mikil rei...
Minntist Íslandsvinar sem tengdist bresku konungsfjölskyldunni
📅 29.11.2026 👁️ 1
Minntist Íslandsvinar sem tengdist bresku konungsfjölskyldunni
Í nýjasta þætti Veiðarinnar með Gunnari Bender er Haraldi Eiríkssyni fylgt eftir við veiðar í Hítará á Mýrum. Í veiðinni minnist Haraldur látins vinar...
299 fréttir um úrræði fyrir konur – tvær um karlaathvarf
📅 29.11.2026 👁️ 1
299 fréttir um úrræði fyrir konur – tvær um karlaathvarf
299 fréttir um hjálparúrræði fyrir konur og tvær um karlaathvarf. Það er niðurstaða talningar Samtaka um karlaathvarf á fréttum RÚV frá október 2021 t...
Kosið á Spáni: Er Sanchez á útleið?
📅 29.11.2026 👁️ 1
Kosið á Spáni: Er Sanchez á útleið?
Kjörstaðir voru opnaðir á Spáni í morgun í þingkosningum þar sem meira en 38 milljónir manna eru á kjörskrá.Kannanir benda til þess að stjórn Pedro Sa...
Óttast að á­rásar­maðurinn komist upp með allt saman - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Óttast að á­rásar­maðurinn komist upp með allt saman - Vísir
Ísak Leó Freysson og kærasti hans og nafni Ísak Leon Júlíusson, þremur árum eldri, settust niður með blaðamanni. Kærastinn Ísak Leon er í meistaranámi...
Þyrlufeðgin, of­beldi gegn lög­reglu og „tóm vit­leysa“ um Njálu - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Þyrlufeðgin, of­beldi gegn lög­reglu og „tóm vit­leysa“ um Njálu - Vísir
Feðginin verða meðal gesta í Sprengisandi á Bylgjunni sem hefst klukkan tíu í dag. Fyrstur texta er þó Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og þingma...
Gæslu­feðgin ræða sjó­slysið - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Gæslu­feðgin ræða sjó­slysið - Vísir
Feðginin verða meðal gesta í Sprengisandi á Bylgjunni sem hefst klukkan tíu í dag. Fyrstur gesta er þó Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og þingma...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að gera mikið mál úr litlu
📅 29.11.2026 👁️ 2
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að gera mikið mál úr litlu
Mynd Í þessu lífi er yfirleitt best að reyna að halda
Röm­buðu á eftir­lýstan mann - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Röm­buðu á eftir­lýstan mann - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að par hafi verið handtekið í Grafarholti eða Úlfarsárdal vegna óspekta...
Hand­tóku aftur par - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Hand­tóku aftur par - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að par hafi verið handtekið í Grafarholti eða Úlfarsárdal vegna óspekta...
Israeli leadership rivals begin talks to break election deadlock
📅 29.11.2026 👁️ 1
Israeli leadership rivals begin talks to break election deadlock
Caretaker Prime Minister Benjamin Netanyahu and Gadi Eisenkot are meeting after the former proposed a unity government.
Israeli leadership rivals hold talks to break election deadlock
📅 29.11.2026 👁️ 1
Israeli leadership rivals hold talks to break election deadlock
Caretaker Prime Minister Benjamin Netanyahu and Gadi Eisenkot have met after the former proposed a unity government.
14 people die during ten-day crossing to the Canary Islands
📅 29.11.2026 👁️ 2
14 people die during ten-day crossing to the Canary Islands
Fourteen migrants have died during a ten-day Atlantic crossing after their boat was discovered drifting approximately 72 kilometres south of El Hierro...
Split Decisions, Draws and Scorecards: What boxing fans should know before betting
📅 29.11.2026 👁️ 2
Split Decisions, Draws and Scorecards: What boxing fans should know before betting
Big fights draw crowds to bars across the Canaries, and the post-fight arguments are almost as much a part of the night as the boxing. More often than...
Kólnar heldur - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Kólnar heldur - Vísir
Þessi lægð fjarlægist síðan landið og þá dregur úr vindi norðvestantil. Annars víða suðaustan gola eða kaldi með éljum eða slydduéljum en lengst af úr...
Virkja stuðningsnetið og ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Virkja stuðningsnetið og ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
Til að byrja með var þjónustan á Akureyri afmörkuð fyrir þau sem missa í sjálfsvígi en nú sinnir teymið einnig skyndilegum og ótímabærum missi og þega...
Ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
Til að byrja með var þjónustan á Akureyri afmörkuð fyrir þau sem missa í sjálfsvígi en nú sinnir teymið einnig skyndilegum og ótímabærum missi og þega...
Hálka á vegum víða um land
📅 29.11.2026 👁️ 2
Hálka á vegum víða um land
Hálka eða hálkublettir eru víða á vegum landsins í morgunsárið. meðal annars á Hellisheiði, í Þrengslum og á Sandskeiði, snjóþekja er á Mosfellsheiði ...
Christmas Markets open across Gran Canaria
📅 29.11.2026 👁️ 2
Christmas Markets open across Gran Canaria
Christmas markets are bringing festive cheer to Gran Canaria this weekend, with stalls selling handmade gifts, decorations, local produce and seasonal...
Polls open in Spanish general election
📅 29.11.2026 👁️ 2
Polls open in Spanish general election
Millions of Spaniards are set to vote in the snap election, which was called eight months early by the country's prime minister.
Fólk kannski úr sveit sem keypti sér ekki popp í bíó - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Fólk kannski úr sveit sem keypti sér ekki popp í bíó - Vísir
Svo æst erum við í það. Að fá sér popp og kók hefur einfaldlega verið nánast eins og órjúfanlegur partur af bíóhúsamenningunni. Um allan heim. Söguhor...
Hékkst þú í sjoppu á unglingsárunum?
📅 29.11.2026 👁️ 2
Hékkst þú í sjoppu á unglingsárunum?
Frétt af endurkomu Burger King til landsins vakti athygli í vikunni. Nærri 20 ár eru liðin frá því staðnum var lokað í Smáralind skömmu eftir hrun. St...
Hinn umdeildi Mike Love er látinn - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Hinn umdeildi Mike Love er látinn - Vísir
Love hafði aflýst fjölda tónleika Beach Boys á þessu ári og lést í gær, að sögn Katie Altman, kynningarfulltrúa hans. Ekki voru veittar upplýsingar um...
Two People Injured in Dog Attack in Los Cristianos
📅 29.11.2026 👁️ 2
Two People Injured in Dog Attack in Los Cristianos
Two people have been injured after being bitten by a dog in Los Cristianos, in the south of Tenerife, shortly before midnight on Friday (27th November...
Spáin gerir ráð fyrir kólnandi veðri
📅 29.11.2026 👁️ 2
Spáin gerir ráð fyrir kólnandi veðri
Á Vestfjörðum er enn gul veðurviðvörun í gildi og þar verður sunnan hvassviðri eða stormur fyrir hádegi.Veðurspá gerir ráð fyrir sunnan 13-20 metrum á...
SUNDAY WEATHER: Sunshine and scattered showers across the Canary Islands
📅 29.11.2026 👁️ 2
SUNDAY WEATHER: Sunshine and scattered showers across the Canary Islands
The Canary Islands are expecting another changeable day today (Sunday, 29th November), with a mixture of sunshine, cloud and occasional showers.Accord...
Mike Love í Beach Boys látinn 85 ára að aldri
📅 29.11.2026 👁️ 2
Mike Love í Beach Boys látinn 85 ára að aldri
Bandaríski tónlistarmaðurinn Mike Love er látinn 85 ára að aldri. Bandarískir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær en ekki hefur verið gefið upp hvar ha...
Spain approves nationwide ban on flavoured vapes
📅 29.11.2026 👁️ 4
Spain approves nationwide ban on flavoured vapes
Spain has approved new restrictions banning flavoured electronic cigarettes and vaping liquids, a move that will affect vape shops and consumers throu...
Drög að gjaldþroti: Starfsmaður Fabrikkunnar segir frá
📅 29.11.2026 👁️ 2
Drög að gjaldþroti: Starfsmaður Fabrikkunnar segir frá
Nítján ára gamall fyrrverandi starfsmaður Hamborgarafabrikkunnar við Höfðatorg í Reykjavík lýsir aðdragandanum að lokun staðarins fyrr í nóvember. Han...
Fárveikt fólk vistað í fangelsum
📅 29.11.2026 👁️ 2
Fárveikt fólk vistað í fangelsum
Norrænar rannsóknir sýna, að verulegur hluti fanga er með geðrænar áskoranir, eða fíknisjúkdóma. Heilbrigðisstarfsmönnum hefur fjölgað í fangelsum end...
Markús lifði af þegar Jökull sökk: „Ég hugsaði bara til mömmu minnar“
📅 29.11.2026 👁️ 2
Markús lifði af þegar Jökull sökk: „Ég hugsaði bara til mömmu minnar“
Markús Már Eldjárn Arnórsson, 22 ára sjómaður sem lifði af þegar Jökull ÞH 299 sökk, segir að hann hafi oft hugsað til móður sinnar meðan hann var í s...
Það er vanda­málið – hvað pabbi og mamma eru ung - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Það er vanda­málið – hvað pabbi og mamma eru ung - Vísir
Í þættinum Um land allt kynnumst við mannlífi í Vatnsdal og Þingi. Þátturinn er sýndur á Sýn+ í dag, sunnudag, klukkan 13:00. Einn besti útsýnisstaður...
Vanda­mál hvað pabbi og mamma eru ung - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Vanda­mál hvað pabbi og mamma eru ung - Vísir
Í þættinum Um land allt kynnumst við mannlífi í Vatnsdal og Þingi. Þátturinn er sýndur á Sýn+ í dag, sunnudag, klukkan 13:00. Einn besti útsýnisstaður...
Rosie O'Donnell 'in shock' after Russell Brand guilty verdict
📅 29.11.2026 👁️ 1
Rosie O'Donnell 'in shock' after Russell Brand guilty verdict
The actor and comedian Rosie O’Donnell has told the BBC that she was “in shock” when she heard the Russell Brand verdict.
Handtekinn vegna dauða 400 frumbyggja
📅 29.11.2026 👁️ 5
Handtekinn vegna dauða 400 frumbyggja
Otto Noack, fyrrverandi ofursti í gvatemalska hernum, var handtekinn á föstudaginn vegna dauða um 400 frumbyggja í Gvatemala árið 1982.Frá árinu 1960 ...
Krakkatía vikunnar: Kettir, jóla­lög og mogging - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Krakkatía vikunnar: Kettir, jóla­lög og mogging - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Harsh winter in Europe could drive energy prices 'even higher', agency boss warns
📅 29.11.2026 👁️ 2
Harsh winter in Europe could drive energy prices 'even higher', agency boss warns
The International Energy Agency's Dr Fatih Birol say it is "impossible" to imagine the energy system will return to how it was pre-war.