Hálka eða hálkublettir eru víða á vegum landsins í morgunsárið. meðal annars á Hellisheiði, í Þrengslum og á Sandskeiði, snjóþekja er á Mosfellsheiði og krapi á Krýsuvíkurvegi og Kjósarskarði.
Snjóþekja er á Holtavörðuheiði. Krapi er á Hringvegi í Borgarfirði. Brattabrekka er ófær og bílar sitja þar fastir en farið verður í aðgerðir til að moka með morginum, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.
Á Norðurlandi er hálka á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði og hálka eða hálkublettir eru frá Mývatni austur á Hérað.
Á Fjarðarheiði er snjóþekja en unnið að mokstri.
Þá er hálka eða snjóþekja á meira eða minna öllum hringveginum á Suðurlandi, frá Höfn í Hornafirði að höfuðborgarsvæðinu.
Nýjustu upplýsingar um færð má finna á umferdin.is.