Otto Noack, fyrrverandi ofursti í gvatemalska hernum, var handtekinn á föstudaginn vegna dauða um 400 frumbyggja í Gvatemala árið 1982.
Frá árinu 1960 til 1996 geisaði borgarastyrjöld í landinu. Í þessum langvarandi átökum á milli hægrisinnaðra ríkisstjórna sem nutu stuðnings Bandaríkjanna og vinstrisinnaðra uppreisnarmanna létust eða hurfu um 200 þúsund manns.
Noack er 73 ára en hann starfaði áfram hjá hinu opinbera eftir að stríðinu lauk, eða allt til ársins 2024. Hann hefur verið sakaður um aðild að dauða eða hvarfi fólks af Maya Ixil-ættbálkinum í bænum San Juan Cotzal árið 1982, þegar stríðið stóð sem hæst.
Einræðisherra dæmdur fyrir þjóðarmorð
Í borgarastríðinu sakaði herinn frumbyggja í Gvatemala oft um að styðja uppreisnarmennina. Noack er sagður hafa haft umsjón með herdeildum sem handtóku karla og konur úr ættbálknum, fluttu þau í herstöð, yfirheyrðu þau með pyntingum og drápu þau. Fólkið var grafið í fjöldagröfum
Árið 2013 komst dómstóll að þeirri niðurstöðu að fyrrverandi einræðisherrann Efraín Ríos Montt væri sekur um þjóðarmorð á fólki af Ixil-ættbálknum á árunum 1982 og 1983.
Dómurinn var síðar ógiltur og Ríos Montt lést árið 2018, 91 árs að aldri, meðan hann beið eftir nýjum réttarhöldum.