Frétt af endurkomu Burger King til landsins vakti athygli í vikunni. Nærri 20 ár eru liðin frá því staðnum var lokað í Smáralind skömmu eftir hrun. Stefnt er á að opna hér fimm staði og sá fyrsti verður opnaður á næsta ári.
Það er svo spurning hvort sú opnun veki jafn mikla athygli og þegar fyrsti McDonald's staðurinn var opnaður hér á landi árið 1993.
Davíð Oddsson forsætisráðherra fékk þá afhentan fyrsta hamborgarann.
Síðan þá hafa skyndibitakeðjur helst komist í fréttir í tengslum við kjaramál. Í september 1993 var til dæmis sagt frá því í fréttum að McDonald's á Íslandi, eða leyfishafinn Lyst hf, ætlaði að semja beint við starfsfólk sitt, sem yrði þá ekki í verkalýðsfélagi. Fyrirtækið ætlaði ekki heldur að vera í Vinnuveitendasambandinu, forvera Samtaka atvinnulífsins.
Síðar í sama mánuði var svo samið um kaup og kjör á grundvelli almennra kjarasamninga.
Fyrst við erum farin að rifja upp skyndibita, sem einhverjir myndu kalla kjörfæðu unglinga, liggur beinast við að líta aðeins til baka og skoða hvað unglingar voru að gera áður en þessa keðjur komu til landsins.
Stutta svarið er eflaust sjoppan, sem nánast fyrirfinnst ekki lengur. Þær voru úti um allt og þangað fóru unglingar til þess að finna vini sína og hanga þar á kvöldin. Sjoppurnar voru nánast eins og félagsmiðstöðvar og sums staðar þannig að starfsfólki þeirra þótti nóg um.
Sjoppa í Garðabæ komst í fréttirnar fyrir einmitt þetta í febrúar 1999. Eigendurnir höfðu ákveðið að loka fyrr á föstudagskvöldum til að bregðast við því sem þeir kölluðu aðstöðuleysi unglinga í Garðabæ. Þeir söfnuðust saman í sjoppunni um helgar þar sem lítið annað væri um að vera fyrir þá í bænum. Gunnar Einarsson, forstöðumaður fræðslu- og markaðssviðs Garðabæjar, vísaði því á bug í fréttinni. Þar var líka talað við Sófus Gustavsson, eiganda Sælgætis- og videohallarinnar.
Í safni RÚV er hægt að finna helling af myndefni úr sjoppum frá síðustu áratugum. Ómar Ragnarsson fréttamaður kíkti til dæmis út í sjoppu í ferð sinni til Vestmannaeyja 1974, ári eftir eldgosið í Eyjum. Nöfnin á unglingunum eru ekki skráð í safnið þannig að lesendur eru hvattir til að hafa samband til að bæta úr því.
Við sláum botninn í þetta með myndum úr sjoppum, annars vegar í svarthvítu frá því í mars 1978 og svo í lit frá árinu 1981. Þekkir þú einhvern á þessum myndum?