Kjörstaðir voru opnaðir á Spáni í morgun í þingkosningum þar sem meira en 38 milljónir manna eru á kjörskrá.
Kannanir benda til þess að stjórn Pedro Sanchez og Sósíalistaflokks hans muni falla og Lýðflokkurinn (Partido Popular) og pópúlíski þjóðernisflokkurinn Vox fái meirihluta þingsæta.
Ef svo fer verður Alberto Núñez Feijóo næsti forsætisráðherra Spánar. Margir telja þó að stjórnarmyndunarviðræður gætu orðið flóknar og strembnar.
Ef Vox verður hluti af næstu samsteypustjórn verður það í fyrsta sinn sem hægri harðlínuflokkur kemst að völdum á Spáni síðan fasistastjórn Fransisco Francos leið undir lok árið 1975.
Sanchez hefur setið í sæti forsætisráðherra síðustu átta ár og staðið af sér margan storminn, meðal annars ásakanir um spillingu, en ríkisstjórn hans sprakk í haust vegna deilna um húsnæðismál.
Grannt er fylgst með framvindunni á Spáni, enda gætu úrslit gefið tóninn fyrir komandi ár þar sem flokkar yst af hægri jaðri gætu komist til valda eða bætt við sig, einna helst í Frakklandi, þar sem Marine Le Pen gæti orðið næsti forseti, en líka í Póllandi og Ítalíu þar sem kosið verður til þings.