Fúlsar við Samfylkingunni
Brynjar Níelsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar, staðhæfir að flokkurinn fari ekki í meirihluta með Samfylkingunni. „Ég get ekki gert borgarbúum það,“ segir hann.
Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki mynda meirihluta með Samfylkingunni eftir borgarstjórnarkosningarnar á laugardag, ef marka má yfirlýsingu Brynjars Níelssonar, fyrrverandi þingmanns og frambjóðanda í þriðja sæti lista Sjálfstæðismanna.
Hann sagðist „skynja áhyggjur margra“ yfir því að Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að mynda meirihluta með Samfylkingunni, sem nú hefur yfir að ráða borgarstjórastólnum. „Ég treysti mér til að fullyrða að það verður ekki,“ segir Brynjar á Facebook. „Ég hef engan áhuga á að auka á vandkvæði mín í lífinu og ég get ekki gert borgarbúum það.“
Nú þegar hefur Framsóknarflokkurinn, undir forystu Einars Þorsteinssonar, útilokað samstarf við Samfylkinguna. Flokkur hans mælist þó með lítið fylgi, eða um 3% í síðustu Gallupkönnun.
Í könnun Gallups sem gerð var 17. til 29. apríl mældist Sjálfstæðisflokkurinn með nokkra yfirburði í Reykjavík, eða 30% fylgi gegn 22% fylgi Samfylkingarinnar.