Brian Hickerson, fyrrverandi kærasti leikkonunnar Hayden Panettiere, hefur eytt eða lokað Instagram-reikningi sínum eftir að netverjar beindu að honum hörðum ásökunum í kjölfar skyndilegs andláts hennar á sunnudag.Rétt er að taka fram að Hickerson hefur ekki verið sakaður af lögreglu um neitt misjafnt í tengslum við andlát Panettiere. Lögregla hefur þvert á móti sagt að ekkert hafi komið fram við fyrstu rannsókn sem bendi til þess að saknæmt athæfi hafi átt sér stað.
Fyrrverandi kærasti Hayden lokaði Instagram eftir holskeflu athugasemda