Greiningardeild Arion banka spáir því að Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti um 0,25% á morgun og segir forsendur kjarasamninga að öllum líkindum brostnar. Verðbólga hafi aukist frá síðasta fundi nefndarinnar og horfurnar síst batnað.
Spurningin sé því ekki hvort heldur hversu mikið stýrivextir verði hækkaðir á morgun.
„Við spáum því að nefndin kjósi að hækka vexti um 25 punkta í þeirri von að aukið taumhald peningastefnunnar muni koma böndum á verðbólguna og verðbólguvæntingar.“
Vextir voru hækkaðir í mars og sagði peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands að hún væri reiðubúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum.
Mótun peningastefnunnar myndi þó sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.
Tilbúin að leyfa hagkerfinu að njóta vafans
„Við túlkum þessa litlu en veigamiklu breytingu á þann hátt að nefndin sé tilbúin að leyfa hagkerfinu að njóta vafans – reiðbúin til að taka frekara tillit til stöðu raunhagkerfisins en áður, þó verðbólgan trompi alltaf hagkerfið ef í harðbakkann slær,“ segir í greiningu Arion banka.
Greiningardeildir Landsbankans og Íslandsbanka hafa einnig spáð 0,25% hækkun. Aðalhagfræðingur Kviku spáir óbreyttum vöxtum, samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins í síðustu viku.