Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum hefur hafnað kröfu manns um bætur úr ábyrgðartryggingu ónefnds rekstraraðila ónefnds flugvallar en ljóst er að það er aðeins einn aðili sem rekur flugvelli á Íslandi, Isavia eða dótturfélag þess Isavia innanlandsflugvellir. Krafðist maðurinn bóta í kjölfar slyss sem hann lenti í, við vinnu sína á umræddum flugvelli, en slysið varð til þess að maðurinn hlaut varanlega sjónskerðingu á öðru auganu.
Sakaði Isavia um vanrækslu eftir alvarlegt slys