Frá og með mánaðamótum fá aðrir en íbúar í þjónustuíbúðum við Vitatorg ekki að borða hádegismat um helgar í félagsmiðstöðinni þar. Skrifstofustjóri öldrunar hjá Reykjavíkurborg segir breytinguna í takt við það sem þekkist í öðrum félagsmiðstöðvum í borginni.
Gestum hefur í þó nokkurn tíma staðið til boða hádegismatur á Vitatorgi um helgar. Einhverjir hafa lýst yfir óánægju með breytinguna, sér í lagi þar sem í þjónustunni felist mikilvægt tækifæri til að rjúfa félagslega einangrun og hitta annað fólk.
Fyrst og fremst vegna lokunar eldhússins
Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri öldrunar hjá Reykjavíkurborg, segir lokun eldhússins á Vitatorgi fyrr í vetur vera meginástæðuna fyrir því að helgarþjónustan standi einungis íbúum til boða.
„Þetta er í rauninni fyrst og fremst að síðan eldhúsinu var lokað hefur ekki verið mönnun um helgar. Það þurfti þá að opna eldhúsið sérstaklega og þetta er stuttur tími yfir daginn,“ segir Berglind.
„Að auki var ekki lengur ástæða til þegar eldhúsið var ekki til staðar. Þetta er auðvitað kostnaðarsöm þjónusta og auðvitað hefur því verið velt upp í gegnum tíðina hvort það ætti að vera opið einhvers staðar annars staðar um helgar og svo framvegis en þetta er niðurstaðan.“
Ekki ætlunin að koma í veg fyrir að fólk njóti félagsskapar
Að sögn Berglindar er breytingin í takt við það sem þekkist í öðrum félagsmiðstöðvum á vegum borgarinnar sem eru sautján talsins. Það sé ekki ætlunin að skerða tækifæri fólks til að sækja í félagsskap á Vitatorgi.
„Það er auðvitað áfram opið á virkum dögum þannig að þetta eru helgarnar og við vonum að fólk komi áfram á virkum dögum og njóti félagsskapar, því það er auðvitað alveg rétt að markmiðið með þessu er líka að fólk komi saman og borði,“ segir Berglind.
„Það má þá segja að það sé fimm daga vikunnar en ekki sjö daga vikunnar sem það er í boði. Engu að síður viljum við vekja athygli á því að fólk getur sótt um og fengið heimsendan mat um helgar.“