Mikilli hátíðardagskrá í tilefni 250 ára afmælis Bandaríkjanna sem stendur nú yfir í Washington-almenningsgarðinum í Washington hefur verið frestað.
Það er þó ekki vegna hitabylgju, sem hefur sett hátíðarhöld úr skorðum víða í Bandaríkjunum í dag – heldur vegna þrumuveðurs. Þrumuveður er að byggjast upp samkvæmt ratsjármyndum og hætta er á að þrumuveður fari yfir borgina.
NBC News segir að um 10.000 manns séu á svæðinu. Verið er að vísa fólki burt frá garðinum til bygginga í grenndinni.
The New York Times segir nokkra óreiðu á svæðinu. Fleiri hundruð manns neituðu fyrst að yfirgefa svæðið þrátt fyrir skipun lögreglu og gæslumanna á svæðinu.
Óvíst er hvort eða hvernig þetta mun raska dagskrá það sem eftir lifir dags. Til stóð að Donald Trump Bandaríkjaforseti flytti hátíðarhöldunum ræðu klukkan tíu að staðartíma og dagskránni átti svo að ljúka með mikilli flugeldasýningu.