Forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir og utanríkisráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sendu í dag bandarísku þjóðinni hlýjar hamingjuóskir í tilefni 250 ára afmælis sjálfstæðisyfirlýsingarinnar.
Í myndskeiði sem birt var á samfélagsmiðlum leggja þær ríka áherslu á söguleg tengsl Íslands og Bandaríkjanna og mikilvægi samstarfs ríkjanna.
Rifja upp gömul og traust tengsl
„Innilegar hamingjuóskir frá íslensku þjóðinni til okkar kæru vina í Bandaríkjunum, nú þegar þið fagnið 250 ára sjálfstæði,“ segir Kristrún í upphafi ávarpsins.
Þorgerður rifjar þar upp að tengsl þjóðanna nái langt aftur í aldir og nefnir að Leifur Eiríksson hafi siglt til Norður-Ameríku um árið 1000.
Kristrún bendir jafnframt á að Bandaríkin hafi verið fyrsta ríkið til að viðurkenna íslenska lýðveldið árið 1944.
„Við munum ávallt vera þakklát fyrir stuðning Bandaríkjanna árið 1944, þegar þau urðu fyrsta ríki heims til að viðurkenna lýðveldið sem við stofnuðum þann 17. júní sama ár,“ segir hún.
Þá dregur Þorgerður fram sameiginlega aðild ríkjanna að NATO og varnarsamninginn frá 1951.
View this post on Instagram
Kemur á óvart í ljósi nýrrar stefnu
Ávarpið vekur athygli í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur frá upphafi lagt megináherslu á nánari tengsl við Evrópusambandið og endurvakningu aðildarviðræðna, á sama tíma og gagnrýnendur hafa bent á að hefðbundið Atlantshafssamstarf Íslands hafi fengið minni áherslu.
Sérstaklega hefur verið bent á að samskipti við Washington hafi verið fátíð og lítt sýnileg, þrátt fyrir að öryggi Íslands hafi í meira en átta áratugi byggst að stórum hluta á varnarsamstarfi við Bandaríkin.
Á sama tíma hafa stjórnvöld lagt aukna áherslu á samstarf við Evrópu í öryggis- og varnarmálum, sem sumir telja fela í sér ákveðna stefnubreytingu frá þeirri utanríkisstefnu sem lengi hefur verið hornsteinn íslenskra hagsmuna.
Minna á mikilvægi bandalagsins
Það vekur því sérstaka athygli að í sjálfu ávarpinu er lögð áhersla á einmitt þau atriði sem gagnrýnendur segja að ríkisstjórnin hafi dregið úr vægi í framkvæmd: tvíhliða varnarsambandið, sögulegan stuðning Bandaríkjanna og mikilvægi náins samstarfs bandamanna.
„Í þessum ólgutímum og krefjandi aðstæðum er sterkt samband milli bandamanna mikilvægara en nokkru sinni fyrr,“ segir Kristrún.
Þá ljúka þær ávarpinu með sameiginlegri áherslu á samstöðu:
„Fyrir þjóðir okkar, fyrir frelsi okkar og farsæld. Með samstöðu erum við sterkari saman.“
Fyrir marga gæti því þessi afmæliskveðja virst vera tilraun til að minna á, eða jafnvel endurvekja, mikilvægi sambands sem sumir telja að hafi setið á hakanum undanfarna mánuði.
Hér fyrir neðan má síðan sjá myndband sem tengist fréttinni ekki beint en fangar vel þann mikla fögnuð sem fylgir 250 ára afmæli sjálftæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna.
— Marc Andreessen 🇺🇸 (@pmarca) July 4, 2026