Rúv segir heimildir sínar herma að Lúther Ólason sé meðal þeirra níu sem handteknir voru vegna rannsóknar á innflutningi á 106 kílógrömmum af kókaíni sem komu til landsins með álflutningaskipi í Straumsvík 22. júní.
Þrír íslenskir ríkisborgarar eru í varðhaldi vegna málsins og sex erlendir ríkisborgarar, að sögn lögreglu.
Sjá einnig: Straumsvíkurmálið
Greint var frá því á miðvikudag að Lárus Freyr Einarsson, sem sakfelldur hefur verið fyrir morð í Danmörku, væri meðal þeirra sem handteknir voru.
Lúther var árið 2024 dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir meiriháttar skattalagabrot. Hann hafði staðið skil á röngum skattframtölum og -skýrslum fyrir félagið sitt, Stapafell ehf. Honum var einnig gert að greiða 55 milljóna króna sekt en Landsréttur mildaði sektina niður í 51 milljón.
Lögreglan metur virði kókaínsendingarinnar, sem er sögð hafa verið falin í sjóbúri skipsins Koznitza, upp á hátt í þrjá milljarða króna og því ljóst að ekki sé um neina smápeninga að ræða.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.