„Forsetarnir ræddu vitaskuld um lausn á deilunni í Úkraínu, meðal annars í ljósi væntanlegrar þátttöku Donalds Trump á leiðtogafundi NATO í Tyrklandi 7. og 8. júlí,“ er haft eftir Júrí Úsjakov, utanríkisráðgjafa Rússlandsforseta, í frétt RIA Novosti.
Hann sagði að Pútín og Trump tveir hefðu einnig rætt mál á borð við Íran og Mið-Austurlönd í 85 mínútna símtali.
Fyrr í dag hafði Selenskí sagt að hann og Trump hefðu einnig rætt stríðið í Úkraínu, sem staðið hefur yfir í meira en fjögur ár í landi hans, og kallaði það „mjög gott símtal“.
„Trump forseti og ég ræddum stöðuna sem nú er uppi á víglínunni sem og diplómatískar tilraunir okkar. Það eru raunverulegar líkur á að binda enda á þetta stríð og einbeitni Bandaríkjanna skiptir sköpum. Við höfum samþykkt að halda þessum viðræðum áfram á leiðtogafundi NATO í Ankara [höfuðborg Tyrklands],“ skrifaði Selenskí á X í dag.
Búist er við að þjóðhöfðingjar og erindrekar frá 32 löndum, þar á meðal Trump, komi til Ankara frá og með þriðjudegi vegna leiðtogafundarins.
Að sögn Úsjanovs lýsti Pútín „raunverulegri stöðu á vígvellinum“ í Úkraínu, þar sem „rússneskar hersveitir sækja örugglega fram“.
Á víglínunum hafa rússneskar hersveitir náð nánast engum árangri undanfarna mánuði, aðallega vegna dróna sem hafa hindrað för þungra farartækja og valdið miklu mannfalli beggja vegna.
Í dag greindi Selenskí frá því að Úkraínumenn hefðu ráðist á orkuinnviði í Rússlandi til þess að svara árásum Rússa frá því í gær, þar sem 30 manns féllu.
Samningaviðræður eru í pattstöðu þar sem stjórnvöld í Moskvu krefjast þess að úkraínskar hersveitir hörfi frá öllu Donetsk-héraði en því hafa Úkraínumenn alfarið hafnað.