Læknir sem greindist með ebólu í Frakklandi í júní er búinn að jafna sig og hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi, segir heilbrigðisráðherra Frakklands. Þetta var fyrsta ebólusmitið í Frakklandi í tólf ár.
Hann greindist eftir að hafa verið í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, þar sem skæður ebólufaraldur hefur geisað að undanförnu. Rúmlega 1.400 hafa smitast frá 15. maí og nærri 440 látið lífið.