Árekstrar hafa orðið víða um land í dag og verkefni lögreglu hafa verið fjölmörg vegna þungrar umferðar, enda fjöldi fólks á ferðalagi.
Tveggja bíla árekstur varð á Norðurlandi vestra, á mótum Hálsabæjarvegar og Norðurlandsvegar, um þrjúleytið í dag. Lögregla segir fjóra hafa slasast en þó ekki alvarlega. Lögregla og sjúkraflutningamenn voru send á vettvang.
Talsverðar tafir eru á umferð vegna slyssins. Pétur Björnsson, yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra, segir að umferð sé stýrt um vettvang slyssins.
Ef til vill hefur verið mest að gera hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Í umdæminu hafa í dag verið tveir tveggja bíla árekstrar, bíll valt í öðrum þeirra. Fyrir hádegi var ekið á gangandi vegfaranda í Vík í Mýrdal.
Öll meiðsli voru minni háttar, segir Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri á Suðurlandi. Hann hvetur fólk til að aka varlega.
Nokkuð um akstur undir áhrifum
Umferð hefur verið nokkuð þung á Austurlandi en þó gengið vel. Svipaða sögu er að segja af Vesturlandi og Norðurlandi eystra og vestra.
Að vísu hefur verið nokkuð um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna á Vesturlandi og á Akureyri. Eitt minni háttar umferðaróhapp varð í bænum.
Lögreglan á Vesturlandi segir töluvert hafa borið á hraðakstri í landshlutanum og þá sérstaklega hjá ungu fólki. Einn ungur ökumaður var tekinn á 140 eða 150 kílómetra hraða.
Ómerktir bílar í hraðaeftirliti
Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir að tekist hafi að hægja á akstri í landshlutanum með markvissum aðgerðum. Hann bendir á að lögregla mæli hraða víða á Vesturlandi og meðal annars með ómerktum bílum.
„Fólk getur átt von á því að hvít Tesla úti í vegkanti sé lögreglubíll,“ segir Ásmundur.