Lögreglan greinir frá því að 32 ára Svíi hafi látið lífið af áverkum sínum eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás á viðburði TV2 og Fanpark á Íslandsbryggju á fimmtudag.
„Í tengslum við ofbeldið á Íslandsbryggju á fimmtudagskvöld, þá lést fórnarlambið á Ríkissjúkrahúsinu,“ segir í fréttatilkynningu lögreglunnar í Kaupmannahöfn í Danmörku.
Þá sé 31 árs maður í haldi vegna málsins og rannsókn standi enn yfir. Maðurinn hafi verið úrskurðaður heiladauður í gær, föstudag.
Maðurinn hlaut þungt högg á hálsinn sem fékk hann til að hníga niður á staðnum, samkvæmt frétt Ekstra bladet, um það leyti sem viðureign Noregs og Fílabeinsstrandarinnar var í útsendingu á skjá við bryggjuna.
Hinn grunaði er sagður hafa gefið sig fram við yfirvöld en lýst yfir sakleysi sínu, að sögn Ekstra bladet.