Karla má banna í kvennaíþróttun – er það frétt?

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Kvennaíþróttir eru fyrir konur. Það liggur í skilgreiningunni. Af ástæðum sem liggja í augum uppi eru íþróttir kynjaskiptar. Ef ekki yrðu konur hornreka, sætu í besta falli á varamannabekk í liðsíþróttum og ættu enga möguleika í einstaklingskeppni. Jafnvel skákíþróttin, þar sem lítt reynir á líkamsburði, er kynjaskipt.
Sumir karlar ímynda sér að þeir eru konur. Minna er um að konur trúi að þær séu karlar, þótt slík dæmi finnist. Ímyndun fellur undir hugsanafrelsi. Maður má tileinka sér hvaða sjálfsmynd sem vera skal. Veruleikinn, auk siða, reglna og laga, setur mönnum skorður hvar ímynd lýkur og reynd tekur við. Tilfallandi má ímynda sjálfan sig sem forsætisráðherra. En reyndi hann að framkvæma hugarfóstrið og mætti í stjórnarráðið að sinna verkefnum ráðherra yrði honum ekki kápan úr klæðinu. Í huga sér geta menn hannað einkaveröld en hún hefur ekkert gildi fyrir aðra. Þannig gerast kaupin á eyrinni í mannlífinu. Siðir, lög og reglur leyfa sumt en banna annað.
Í umferðinni gilda reglur um hámarkshraða. Sumir ökumenn telja sig betri en aðra. Ættu þeir ekki að fá heimild til að aka hraðar en nemur hámarkshraða? Reglur almannatrygginga mæla fyrir um lágmarksaldur við töku ellilífeyris. En sumum fimmtugum finnst þeir hundgamlir. Ættu þeir ekki að eiga rétt á ellilífeyri? Sjálfsmynd og tilfinningar veita ekki afslátt frá reglum um hámarkshraða og lífeyristöku. Enginn kvartar enda augljóst að sjálfsmynd og tilfinningar eru eitt en sameiginlegir hagsmunir almennings annað.
Í viðtengdri frétt segir að hæstiréttur Bandaríkjanna leyfi ríkjum að banna karla í kvennaíþróttum. Það þykja tíðindi. Hæstiréttur Bretlands staðfesti á síðasta ári að kynin eru tvö og meðfædd. Þótti líka frétt.
Sígild skilgreining á frétt er að ekki teljist markvert að hundur bíti mann. Aftur er uppsláttur að maður bíti hund. Karlabann í kvennaíþróttum er ekki-frétt sem sætir tíðindum þar sem karlar komast víða upp með svindl, að þykjast konur. Tilfinningar fáeinna karla bera ofurliði hagsmuni kvenna.
Stórar ósagðar fréttir um karla í kvennaíþróttum má setja fram með spurningum. Hvers vegna var körlum leyft að skrá sig til leiks sem konur? Hvers vegna láta femínistar yfir sig ganga að karlar hasli sér völl í kvennaíþróttum?