Narraðir í rúss­neska herinn en launin enduðu hjá svikahröppum - Vísir

Narraðir í rúss­neska herinn en launin enduðu hjá svikahröppum - Vísir

Narraðir í rúss­neska herinn en launin enduðu hjá svikahröppum - Vísir
„Þeir lofa þér tunglinu og stjörnunum en raunveruleikinn er hræðilegur.“

Þetta sagði einn mannanna í samtali við blaðamenn New York Times. Hann heitir Igor Pereira Santos og sagði áhuga sinn á því að ganga í rússneska herinn hafa fyrst kviknað við að sjá myndband á YouTube. Hann hafi langað í meiri spennu í sitt líf.

Í myndbandinu kom fram að Santos gæti fengið fúlgur fjár fyrir að ganga í herinn, samkvæmt áðurnefndum mönnum sem sögðust vera frá Brasilíu.

Þeir sögðu Santos svo seinna að fyrir smá greiðslu gætu þeir gengið úr skugga um að hann yrði ekki sendur á víglínuna og myndi þess í stað vinna í eldhúsi eða við að þrífa byssur. Hann ákvað að skrifa undir samning við rússneska varnarmálaráðuneytið.

Eftir nokkrar vikur var hann þó sendur á víglínuna án viðeigandi þjálfunar, segir hann, og peningarnir sem hann hafði fengið greidda þegar hann skrifaði undir voru horfnir af reikningi hans. Það voru rúmar þrjár milljónir króna.

Hann særðist á endanum alvarlega og var sendur heim.

Blaðamenn NYT segja tugi Brasilíumanna hafa skráð sig í rússneska herinn, að áeggjan milliliðanna tveggja. Talað var við nokkra þeirra og fjölskyldur annarra sem sneru aldrei aftur heim, sem sögðu að þegar þeir hefðu komið til Rússlands hefðu þeir verið látnir skrifa undir skjöl sem þeir skyldu ekki. Þau skjöl hafi veitt mönnunum tveimur stjórn á bankareikningum þeirra og launum frá hernum.

Plataðir til að gefa frá sér peningana

Milliliðirnir tveir, sem heita Artur Michel Kreff Avalone og Antônio Aguiar Neto, hafa samkvæmt NYT birt nokkur myndbönd þar sem þeir hvetja brasilíska menn til að skrá sig í rússneska herinn. Meðal annars halda þeir því fram að mennirnir gætu þénað allt að 12,5 milljónir króna fyrir að skrifa undir samning við varnarmálaráðuneytið til eins árs.

Í einu myndbandinu segir annar þeirra að engrar reynslu sé krafist.

„Komið og skráið ykkur í öflugasta her heimsins. Þið þurfið ekki að tala rússnesku eða hafa reynslu af hernaði.“

Mennirnir sögðu að það eina sem áhugasamir þyrftu að gera væri að kaupa sér flugmiða til Moskvu og hafa samband við þá á Telegram, sem er samskiptaforrit og samfélagsmiðill sem er sérstaklega vinsæll í Austur-Evrópu.

Avalone og Neto sögðust sækja mennina á flugvöllinn og kynna þá fyrir rússneskri menningu.

Santos fór með öðrum manni til Rússlands og voru þeir tveir sóttir af Avalone og Neto. Þeim var skutlað á stað þar sem reynt var að tala við þá á rússnesku en Santos segir að Neto hafi túlkað fyrir þá.

Mennirnir fengu skjöl til að skrifa undir sem Neto sagði að snerust um inngöngu þeirra í herinn svo þeir skrifuðu undir. Þá var farið með þá í banka þar sem þeir skrifuðu undir fleiri skjöl, sem áttu að tryggja að þeir fengju laun sín og bónusgreiðslur.

Í rauninni höfðu þeir skrifað undir skjöl sem veittu Avalone og Neto stjórn á bankareikningum þeirra. Því komust þeir þó ekki að fyrr en of seint þegar þeir voru í þjálfun skammt frá Moskvu.

Eftir einungis tuttugu daga þjálfun í grunnmeðhöndlun skotvopna, drónaflugi og rússnesku, voru þeir sendir til Úkraínu.

Hengdu jarðsprengju á mann frá Afríku

Menn frá fjölmörgum ríkjum heims hafa skráð sig í heri bæði Rússlands og Úkraínu síðan innrás Rússa hófst árið 2022. Margir berjast sem málaliðar en fregnir hafa lengi borist af því að Rússar hafi platað eða þvingað fólk frá Afríku, Kúbu, Nepal og fleiri stöðum til að skrá sig í herinn. Þeim hafi jafnvel verið lofað góðri vinnu í Rússlandi og ríkisborgararétti en við komuna þangað hafi þeir verið þvingaðir í herinn.

Sjá einnig: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni

Í janúar birtu rússneskir hermenn myndband á netinu sem sýndi Francis Ndung‘u Ndarua frá Kenía. Hann hafði farið til Rússlands í fyrra og ætlaði að fá vinnu sem rafvirki. Fjölskylda hans í Kenía missti fljótt sambandið við hann en í desember fékk móðir hans senda mynd af honum þar sem hann varaði aðra frá Afríku við að fara til Rússlands.

Skömmu síðar var áðurnefnt myndband birt á netinu en þar mátti sjá Francis í herbúningi og var búið að festa stóra jarðsprengju framan á hann.

Francis virtist hræddur á myndbandinu þar sem rússneskumælandi maður jós rasískum fúkyrðum yfir hann og sagði að hann yrði notaður sem dósaopnari á varnir Úkraínumanna. Svo virðist sem Francis hafi verið þvingaður til að hlaupa óvopnaður og með sprengju fasta framan á sér í átt að víglínu Úkraínumanna.

Myndbandið af Francis má sjá hér að neðan. Hvar hann er í dag er ekki vitað. Rætt var við fjölskyldumeðlimi hans fyrir frétt PBS sem birt var í sumar en þau höfðu ekkert frétt frá því myndbandið var birt.

Myndbandið getur vakið óhug hjá lesendum.

Ráðamenn í Rússlandi þvertaka fyrir það að fólk sé þvingað eða platað til herþjónustu.

Gífurlegt mannfall

Rússar hafa orðið fyrir gífurlegu mannfalli í Úkraínu en nýlegur gagnaleki benti til þess að rúmlega sjö hundruð þúsund Rússar hefðu fallið í Úkraínu frá febrúar 2022. Það er samkvæmt rússneskum blaðamönnum sem hafa frá upphafi reynt að halda utan um fjölda fallinna hermanna en yfirvöld í Rússlandi hafa ekkert viljað gefa upp um mannfall.

Enn skrá menn sig þó í rússneska herinn en það er að miklu leyti vegna þess að stjórnvöld Rússlands lofa sjálfboðaliðum fúlgum fjár. Þessar upphæðir hafa hækkað töluvert á þessu ári, sem sérfræðingum þykir til marks um að erfiðara sé að finna sjálfboðaliða.

Sjá einnig: Hundruð þúsunda liggja í valnum en Rússar ganga enn í herinn

Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, var spurður út í lekann í vikunni. Hann kallaði eftir því að fólk „hunsaði“ fregnir af þessu mikla mannfalli.

Peskóv sagði að þeir einu sem gætu gefið út raunverulegar tölur um mannfall væru forsvarsmenn varnarmálaráðuneytisins. Annað mætti hunsa.

Varnarmálaráðuneyti Rússlands gaf síðast út upplýsingar um mannfall í september 2022. Þá sagði Sergei Shoigu, þáverandi varnarmálaráðherra, að 5.937 rússneskir hermenn hefðu fallið.

Meiri harka

Á þessu ári hafa rússneskir lögmenn og aðgerðasinnar vakið athygli á sífellt auknu harðræði við að þvinga menn í herinn í ýmsum héruðum Rússlands. Menn eru handteknir á götu úti, teknir af vinnustöðum sínum og fluttir þaðan til hersins, þar sem þeir munu vera þvingaðir til að bjóða sig fram.

Sjá einnig: Plata hermenn í hjónaband og hirða svo bæturnar

Meðal annars hafa yfirvöld verið sökuð um að leggja sérstaka áherslu á jaðarsetta menn sem auðveldara er að þvinga til að bjóða sig fram. Þá fá menn greiðslur fyrir að fá aðra til að skrá sig í herinn.

Rússneski útlagamiðillinn Mediazona sagði í sumar sögu hins 51 árs gamla Vladimirs Podkovyrkin, frá Penza-héraði í Rússlandi. Hann var handtekinn um haustið í fyrra, fluttur á skráningarstað fyrir herinn og sendur til Úkraínu samdægurs.

Hann hafði enga reynslu af hernaði og særðist illa á fæti. Eftir einn og hálfan mánuð á sjúkrahúsi var hann sendur aftur heim.

Þar bað hann yfirvöld um að rannsaka það hvernig honum var rænt og hann þvingaður í herinn, gegn vilja sínum. Honum var sagt að hann hefði skrifað sjálfviljugur undir samning og engin rannsókn var framkvæmd.

Podkovyrkin var handtekinn aftur í sumar og endaði aftur í Úkraínu.

Það var þann 25. júlí en nokkrum dögum síðar kom hann þeim skilaboðum til vinar síns að verið væri að senda hann aftur á víglínuna. Í lok júlí sendi hann vini sínum kveðjubréf þar sem hann sagði að verið væri að senda hann í árás gegn vörnum Úkraínumanna.

#enduðu #herinn #launin #narraðir #rússneska

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262969216d/narradir-i-russneska-herinn-en-launin-endudu-hja-svikahroppum

📰 Aðrar fréttir

Ministers consider new funding to support terror victims
📅 29.11.2026 👁️ 1
Ministers consider new funding to support terror victims
The PM has promised to improve financial support offered to victims, with a new compensation scheme as one option.
Abbas segir óbeint að Hamas séu hryðjuverkasamtök
📅 28.11.2026 👁️ 1
Abbas segir óbeint að Hamas séu hryðjuverkasamtök
Mansour Abbas, leiðtogi arabaflokksins Ra'am í Ísrael, hefur viðurkennt óbeint að Hamas flokkist sem hryðjuverkasamtök. Þetta staðfesti Abbas óbeint í...
JoJo Siwa segir skilið við Love Island-stjörnuna - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 1
JoJo Siwa segir skilið við Love Island-stjörnuna - Vísir
„JoJo er mjög sár. Hún elskaði hann og gaf honum allt sem hún gat til þess að sambandið gæti gengið upp,“ er haft eftir vini Siwa í umfjöllun People. ...
'They just kept killing': Ex-president Duterte's murder trial re-opens memories of his violent drug war
📅 28.11.2026 👁️ 1
'They just kept killing': Ex-president Duterte's murder trial re-opens memories of his violent drug war
It offers thousands of victims the accountability they have been denied since the killings began.
Netanjahú í sæng með sínum helsta keppi­nauti - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 1
Netanjahú í sæng með sínum helsta keppi­nauti - Vísir
Eisenkot er einn helsti andstæðingur Netanjahú og var hans stærsti keppinautur í nýliðnum þingkosningum. Mánuður er liðinn frá þingkosningum í Ísrael ...
Queen Camilla speaks of 'joy and magic' of reading in festive message
📅 28.11.2026 👁️ 1
Queen Camilla speaks of 'joy and magic' of reading in festive message
The Queen shares an open letter warning that children are "missing out on the joy and magic" of reading.
Netanyahu proposes Israeli unity government where rival Eisenkot becomes PM first
📅 28.11.2026 👁️ 1
Netanyahu proposes Israeli unity government where rival Eisenkot becomes PM first
Eisenkot has responded by inviting Netanyahu to "genuine and accelerated negotiations" at his hotel.
Mál gegn leikskólastarfsmanni á Akranesi fellt niður
📅 28.11.2026 👁️ 2
Mál gegn leikskólastarfsmanni á Akranesi fellt niður
Mál þar sem leikskólastarfsmaður á Akranesi er grunaður um kynferðisbrot gegn barni hefur verið fellt niður. Ákvörðun ákærenda um að fella niður málið...
100. þakkargjörðarskrúðganga Macy's
📅 28.11.2026 👁️ 2
100. þakkargjörðarskrúðganga Macy's
Árleg þakkargjörðarskrúðganga var gengin í New York í Bandaríkjunum í dag. Þakkargjörðarhátíðin var reyndar á fimmtudag en þá gekk mikið óveður yfir b...
Getur ekki svarað fyrir um­deild um­mæli Frederik­sen - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Getur ekki svarað fyrir um­deild um­mæli Frederik­sen - Vísir
Frederiksen olli nokkrum úlfaþyti í dönskum stjórnmálum í vikunni með ummælum um útlendingamál í hlaðvarpi fjölmiðilsins B.T. Sérstaklega fór tilvísun...
Eisenkot þyggur boð Netanjahús um stjórnarmyndun
📅 28.11.2026 👁️ 2
Eisenkot þyggur boð Netanjahús um stjórnarmyndun
Gadi Eisenkot, leiðtogi Yashar-flokksins í Ísrael, hefur þegið boð Benjamíns Netanjahús, starfandi forsætisráðherra, um stjórnarmyndunarviðræður. Neta...
Eisenkot þiggur boð Netanjahús um stjórnarmyndun

Mál leikskólastarfsmannsins á Akra­nesi fellt niður - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Mál leikskólastarfsmannsins á Akra­nesi fellt niður - Vísir
Þetta kemur fram í svari Karls Inga Vilbertssonar varahéraðssaksóknara við fyrirspurn Vísis. Málið fór til ákærenda þann 14. september og var hans hlu...
Man Utd: A defence with relegation all over it as Pochettino suffers nightmare start
📅 28.11.2026 👁️ 1
Man Utd: A defence with relegation all over it as Pochettino suffers nightmare start
Mauricio Pochettino has suffered a nightmare start as Manchester United manager, conceding 10 goals in three matches. Is there a way out of this mess ...
Hópur gegn hatri gagnrýndur fyrir gróft persónuníð – jafnvel skoðanaandstæðingar ritstjóra Fréttarinnar mótmæla framgöngunni
📅 28.11.2026 👁️ 3
Hópur gegn hatri gagnrýndur fyrir gróft persónuníð – jafnvel skoðanaandstæðingar ritstjóra Fréttarinnar mótmæla framgöngunni
Hópur gegn hatri gagnrýndur fyrir gróft persónuníð – jafnvel skoðanaandstæðingar ritstjóra Fréttarinnar mótmæla framgöngunni Fréttin28. nóvember 2026I...
„Það verður ekki einn einasti dagur eftir þetta sem ég þakka ekki fyrir“
📅 28.11.2026 👁️ 2
„Það verður ekki einn einasti dagur eftir þetta sem ég þakka ekki fyrir“
Markús Már Eldjárn Arnórsson, 22 ára sjómaður, segir að hann hafi ekki óttast að hann myndi farast þegar Jökull ÞH sökk á miðvikudagskvöldið austur af...
Neita að borga meira fyrir hest sem þurfti að fella
📅 28.11.2026 👁️ 2
Neita að borga meira fyrir hest sem þurfti að fella
Ónefnt tryggingafélag hefur neitað að fara eftir úrskurði úrskurðarnefndar í vátryggingamálum um að því beri að greiða eiganda hests frekari bætur en ...
Stærðarinnar skjálfti skekur Los Angeles - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Stærðarinnar skjálfti skekur Los Angeles - Vísir
Skjálftinn reið þar yfir um klukkan 9.30 að staðartíma, eða 17.30 að íslenskum tíma. Upptök skjálftans voru um 30 kílómetrum suðvestur af miðborg Los ...
Hvað eru gervigreindarárásir?
📅 28.11.2026 👁️ 3
Hvað eru gervigreindarárásir?
Berjast verður við gervigreind með gervigreind. Þetta er niðurstaða Defend Iceland, fyrirtækis sem sérhæfir sig í net-, tölvu- og hugbúnaðarárásum.Með...
Aðventustemning í Kópa­vogi - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Aðventustemning í Kópa­vogi - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bænum. Í menningarhúsum Kópavogs var boðið upp á tónleika, jólaverkstæði, dans og heitt kakó. Í Salnum var opnuð...
Saka Ísrael um að koma viljandi í veg fyrir fæðingar á Gaza
📅 28.11.2026 👁️ 3
Saka Ísrael um að koma viljandi í veg fyrir fæðingar á Gaza
Mannréttindasamtökin Amnesty International segja Ísrael viljandi koma í veg fyrir fæðingar á Gaza og eyða Palestínumönnum. Það sé gert með því að bein...
Krefjandi aksturs­skil­yrði á Reykja­nes­braut - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Krefjandi aksturs­skil­yrði á Reykja­nes­braut - Vísir
„Akstur um Reykjanesbraut, sem og aðra vegi, getur verið nokkuð krefjandi við þær aðstæður sem nú eru uppi. Slydda og krapi á akbrautum geta valdið þv...
Hús­fé­lag mátti ekki sekta í­búa vegna fjar­veru á tiltektardögum - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 4
Hús­fé­lag mátti ekki sekta í­búa vegna fjar­veru á tiltektardögum - Vísir
Þetta er niðurstaða kærunefndar húsamála í máli íbúðareiganda í fjölbýli gegn húsfélagi sínu. Þó féllst nefndin ekki á aðrar kröfur íbúans, sem reyndi...
Mikið að baki endurnýjun á vef Veðurstofunnar
📅 28.11.2026 👁️ 3
Mikið að baki endurnýjun á vef Veðurstofunnar
Nýr vefur Veðurstofu Íslands fól ekki einungis í sér endurhönnun á notendaviðmóti eða útliti vefjarins heldur umfangsmikla endurnýjun á innviðum tengd...
Vilhelm Jónsson skrifar: Krónan má ekki deyja – þjóðin má fara á hausinn
📅 28.11.2026 👁️ 4
Vilhelm Jónsson skrifar: Krónan má ekki deyja – þjóðin má fara á hausinn
Á Íslandi hefur legið fárveikur sjúklingur á gjörgæslu áratugum saman. Læknarnir eru enn bjartsýnir, bankarnir birta feitar afkomutölur en aðstandendu...
Ferð á N1 reyndist Íslendingi heldur betur til lukku
📅 28.11.2026 👁️ 3
Ferð á N1 reyndist Íslendingi heldur betur til lukku
Meðal vinningshafa í útdrætti gærkvöldsins í Euro-Jackpot var Íslendingur en hann keypti miðann hjá N1 á Ártúnshöfða.Þetta kemur fram í tilkynningu fr...
Líkt og „ein­hverjir komi með stóra sleggju og lemji í húsið“ - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 5
Líkt og „ein­hverjir komi með stóra sleggju og lemji í húsið“ - Vísir
Greint var frá skjálftanum í  tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar um fimmtán mínútur gengnar í tólf á hádegi en þar sagði einnig að mjög lít...
Myanmar: Dozens killed in air strikes, including at wedding
📅 28.11.2026 👁️ 3
Myanmar: Dozens killed in air strikes, including at wedding
Air strikes by Myanmar's military government have killed dozens of civilians across the South East Asian nation in recent days.
Myanmar: Dozens killed in military strikes on wedding venue and school

Mennirnir sem fórust með Jökli ÞH 299 - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Mennirnir sem fórust með Jökli ÞH 299 - Vísir
Fjórtán öðrum skip­verjum var bjargað í um­fangs­miklum björgunar­að­gerðum. Kristinn Hrannar Hjalta­son, skip­stjóri á Jökli ÞH 299, minntist skips­b...
Icelandair til­kynnir síðasta á­ætlunar­flug á Boeing 757 - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Icelandair til­kynnir síðasta á­ætlunar­flug á Boeing 757 - Vísir
Boeing 757-þotan hefur þegar skapað sér sess sem einhver merkasta flugvél íslenskrar flugsögu. Engin önnur farþegaflugvél hefur þjónað Íslendingum jaf...
DWP confirms confirms cyber attack forced it to take pension and benefits systems offline
📅 28.11.2026 👁️ 2
DWP confirms confirms cyber attack forced it to take pension and benefits systems offline
Work and Pensions Secretary Pat McFadden says services would be restored as soon as possible but could not confirm when that may be.
DWP confirms cyber attack forced it to take pension and benefits systems offline

Why having enough space to sleep comfortably matters for your wellbeing
📅 28.11.2026 👁️ 3
Why having enough space to sleep comfortably matters for your wellbeing
Most conversations about sleep focus on how long we sleep and when. The amount of physical space we sleep in gets far less attention, yet it affects h...
Burnham's No 10 influencer row shows reach matters - but so does scrutiny
📅 28.11.2026 👁️ 3
Burnham's No 10 influencer row shows reach matters - but so does scrutiny
Prime ministers have always chased audiences - but does the backlash over Max Balegde’s video show Burnham’s strategy has gone too far?
Two tourists caught illegally climbing Roque Nublo at night
📅 28.11.2026 👁️ 4
Two tourists caught illegally climbing Roque Nublo at night
Two foreign tourists have been reported by the Guardia Civil after climbing Roque Nublo in Gran Canaria at night without the necessary authorisation.T...
Fékk að heyra það eftir að hafa sent samúðarkveðjur vegna hinna látnu á Jökli
📅 28.11.2026 👁️ 3
Fékk að heyra það eftir að hafa sent samúðarkveðjur vegna hinna látnu á Jökli
Paul Watson sem barist hefur gegn hvalveiðum Íslendinga áratugum sáman og eldað grátt silfur við t.d. Kristján Loftsson og Landhelgisgæsluna fékk ekki...
Lögreglumenn sáu ungling í gulri hettupeysu - Það sem gerðist næst dró dilk á eftir sér
📅 28.11.2026 👁️ 2
Lögreglumenn sáu ungling í gulri hettupeysu - Það sem gerðist næst dró dilk á eftir sér
Nefnd um eftirlit með lögreglu minnir lögregluna á Suðurnesjum á að mikilvægt sé að hún eigi að hafa samband við foreldra eða forráðamenn einstaklinga...
Netárásir ein helsta ógnin í dag
📅 28.11.2026 👁️ 5
Netárásir ein helsta ógnin í dag
Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra, segir netárásir á mikilvæga innviði eina helstu ógnina sem steðjar að íslensku sam...
Byggja þurfti traust á milli lögreglu og héraðssaksóknara
📅 28.11.2026 👁️ 4
Byggja þurfti traust á milli lögreglu og héraðssaksóknara
Fulltrúar Landssambands lögreglumanna áttu sáttafund í gær með Ólafi Þór Haukssyni héraðssaksóknara og Karli Inga Vilbergssyni varahéraðssaksóknara um...
Ör­verpið sem hún kvaddi bannaði henni að fara um borð - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Ör­verpið sem hún kvaddi bannaði henni að fara um borð - Vísir
Jónína hóf sjómennskuferil sinn rétt eftir að yngsti sonur hennar fæddist og átti sami sonur eftir að ráðleggja henni að fara ekki um borð í Jökul ÞH....
„Hlýtur að vera lognið á undan storminum“ - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 1
„Hlýtur að vera lognið á undan storminum“ - Vísir
„Staðan er þannig að viðbragðsaðilar eru að tala sig saman og við erum að undirbúa okkur undir þennan veðurhvell sem kemur í kvöld,“ segir Jóhann í sa...
Hefja undir­búning fyrir enn einn storminn - Vísir

Spurt á förnum vegi: „Hvað er eðlilegt að gefa maka dýra gjöf?“
📅 28.11.2026 👁️ 2
Spurt á förnum vegi: „Hvað er eðlilegt að gefa maka dýra gjöf?“
DV fór á stúfana í síðustu viku og forvitnaðist um hvað fólk telur eðlilega upphæð fyrir jólagjöf til maka. Svörin voru áhugaverð. Sumir nefndu upphæð...
Talíbanar banna nöfn kvenna á lyfseðlum: Konur kallaðar „amma“
📅 28.11.2026 👁️ 3
Talíbanar banna nöfn kvenna á lyfseðlum: Konur kallaðar „amma“
Talibanar í Balkh-héraði í norðurhluta Afganistan fyrirskipuðu í maí 2026 að nota orðið „Bibi“ í stað nafna kvenna á sjúkrahúsum, einkastofum og heils...
Swinney insists Scotland's NHS is safe despite hospital scandal
📅 28.11.2026 👁️ 1
Swinney insists Scotland's NHS is safe despite hospital scandal
The first minister urged people to attend medical appointments after a leaked report highlighted avoidable deaths at NHS Grampian.
Gagnrýnir fréttaflutning RÚV og spyr hvort sömu viðmiðum sé beitt gagnvart öllum ríkjum í Eurovision
📅 28.11.2026 👁️ 3
Gagnrýnir fréttaflutning RÚV og spyr hvort sömu viðmiðum sé beitt gagnvart öllum ríkjum í Eurovision
Gagnrýnir fréttaflutning RÚV og spyr hvort sömu viðmiðum sé beitt gagnvart öllum ríkjum í Eurovision Fréttin28. nóvember 2026Fjölmiðlar, Innlent, Mið-...
Man arrested on suspicion of murder of girl in east London
📅 28.11.2026 👁️ 5
Man arrested on suspicion of murder of girl in east London
The girl was found at a property in east London on Friday afternoon after fears about her welfare.
Sigmundur Ernir skrifar: Það er stórt orð stórveldi
📅 28.11.2026 👁️ 5
Sigmundur Ernir skrifar: Það er stórt orð stórveldi
Það er stórt orð Hákot, eins og löngum hefur verið rætt og ritað, og það sama verður líka sagt um stórveldi, enda hefur okkur staðið ógn af því fyrirb...
Yfirbuguðu mann vopnaðan hnífi - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 4
Yfirbuguðu mann vopnaðan hnífi - Vísir
Sigrún Jónasdóttir lögreglufulltrúi sagði frá því í samtali við fréttastofu að betur hefði farið en á horfðist en hún greindi einnig frá því að útkall...