Greint var frá skjálftanum í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar um fimmtán mínútur gengnar í tólf á hádegi en þar sagði einnig að mjög lítil eftirskjálftavirkni hafi fylgt og að Veðurstofu hafi ekki borist neinar tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist í byggð.
Húsið lamið með stórri sleggju
Skjálftar sem þessir séu óalgengir en þó ekki óeðlilegir á þessu svæði. Miðað við samtöl sem blaðamaður átti við tvo íbúa í Hveragerði fannst vel fyrir skjálftanum þar.
„Við sátum hérna hjónin og vorum að ræða um málin og þá bara kom allt í einu svakaleg höggbylgja á húsið og það hristist og skalf alveg endanna á milli og það datt úr bókahillu á ganginum hjá okkur,“ segir Jóhann Z. Karlsson en hann og eiginkona hans búa í útjaðri bæjarins, næst Reykjadal.
Hann segir þeim hafa brugðið svolítið mikið enda hafi þau ekki átt von á skjálftanum, sem hafi verið ansi snarpur. Sem betur fer hafi ekkert brothætt farið á flakk og þau hafi því ekki tapað neinum verðmætum.
„Við gátum gengið frá aftur en þetta var svona rosalega mikið högg,“ lýsir hann og ítrekar: „Þetta virkar bara einhvern veginn eins og að einhverjir komi bara með stóra sleggju og lemji í húsið.“
Rædduð þið eitthvað við nágrannana?
„Nei, við höfum ekkert farið út, það er svo leiðinlegt veður hérna,“ segir hann og bætir við að hann hafi hugsað til fólks sem sé nýflutt í götuna en hafi áður búið í Grindavík.
„Ég var bara að hugsa um nágranna mína, þeir eru búnir að vera hérna í hvað, hálfan mánuð, hérna beint á móti, þau eru nýflutt en þau komu úr Grindavík.“
Jóhann sagðist áður hafa lent í stórum skjálfta en það hafi verið þann 29. maí 2008 þegar öflugur skjálfti suðaustur af Hveragerði reið yfir um klukkan korter í þrjú síðdegis en sá var 6,3 að stærð.
„Þá skemmdist húsið okkar mjög mikið. Það tók okkur um þrjá mánuði að gera við það,“ sagði hann og bætti svo við að „við erum búin að vera hérna í 22 ár sko. Við erum búin að vera að hrista svona annað slagið.“
Stökk á fætur
Annar íbúi sem býr einnig í Hveragerði líkti skjálftanum við það að það væri verið að draga svona kassa fram af tröppum. Hann hafi verið heima hjá sér og séð allar glerskápadyr nötra.
„Ég var nú búinn að finna nokkra skjálfta hérna en aldrei fundið svona svakalegt högg og ég er með glerhurðir hérna úti á svölunum og þær titruðu og diskar og glös í glerskápnum hérna í eldhúsinu, það lék allt á reiðiskjálfi,“ segir Matthías Ottóson í samtali við blaðamann.
Það hafi blessunarlega ekkert brotnað en hann haldi að það hafi myndast pínulítil sprunga í gangvegginn við anddyrið á heimilinu.
„Þetta var bara snöggt og svo var það búið. Ég átti nú von á einhverju aftur en það kom ekki neitt,“ segir hann og bætir við að hann hafi stokkið á fætur þegar skjálftinn varð.
„Ég sat og var að lesa hérna í bók og ég stóð upp bara alveg ósjálfrátt,“ segir hann og bætir við: „Þetta var viðbragð, þetta var svo snöggt og mikið högg.“