Jónína hóf sjómennskuferil sinn rétt eftir að yngsti sonur hennar fæddist og átti sami sonur eftir að ráðleggja henni að fara ekki um borð í Jökul ÞH.
Skömmu áður en síðasti veiðitúr skipsins hófst skemmdist báturinn hennar Jónínu í höfninni í Sandgerði þar sem hún er búsett ásamt eiginmanni sínum.
„Ég varð fyrir þessu áfalli að missa bátinn minn niður og það var eiginlega út af því sem ég fer ekki þennan túr.“
„Ég hafði lofað mér að fara þennan túr áður en báturinn minn sekkur og svo kom að vondu veðri hvert á fætur öðru, bryggjan fer þarna í tætlur og skemmir hjá mér bátinn. Ég beið í einhverja daga eftir að fá að vita hvenær ég fengi einhvern til að koma að skoða bátinn áður en ég hringdi um borð í Jökul og lét vita að ég gæti ekki farið þennan túr út af þessu sem ég hafði lent í,“ segir Jónína í samtali við Vísi.
„Ég þurfti að bíða eftir tryggingum og þess háttar út af bátnum og það svona tók smá tíma af því að sá sem hafði séð um skoðanir á skemmdum var ekki á landinu.“
Hún hafi ráðið sig sem stýrimann á Jökul eftir að skipstjórinn Kristinn Hrannar Hjaltason hafði samband við hana.
„Menn þekkja menn og ég sagði einmitt við hann að mér þætti leitt að þurfa að beila á honum út af þessu sem hafði hent mig. En hann hafði fullan skilning á því.“
Sá sem leysti hana af var hinn 59 ára gamli Aðalsteinn Steinþórsson frá Húsavík. Hann er einn þriggja sem fórust í slysinu á miðvikudag.
Jónína vill votta öllum aðstandendum skipverjanna þriggja innilega samúð sína.
„Ég vona að Guð styrki þau og þau sjái ljósið.“
Aldrei sagt þetta við hana áður
Fyrir túrinn hafði 28 ára sonur Jónínu reynt að fá hana ofan af því að fara um borð í Jökul.
„Það var einhver tilfinning, hann sagði bara: „Mamma, ég vil ekki að þú farir þennan túr. Ekki fara.“ Þetta var alltaf svona í honum. Hann hefur aldrei sagt svona við mig áður en hann hafði einhverja slæma tilfinningu fyrir þessu.“
Jónína hefur einu sinni áður farið á túr með sama skipi en aldrei frá Íslandi. Þetta var fyrir fimm eða sex árum þegar skipið var gert út frá Grænlandi undir heitinu Nanoq.
Hún er þakklát fyrir að hafa ekki farið um borð í þetta skipti og segir að maður nokkur hafi komið að máli við hana og þakkað fyrir að trillan hennar hafi sokkið svo Jónína hafi ekki farið.
„Þannig að það hafa einhver örlög gripið inn í þetta.“
Áfallið komi síðar
Það hefur verið átakanlegt að lesa fréttir um slysið og heyra lýsingar skipverja, að sögn Jónínu.
„Ég skil vel að þeir þurfi að tala en þá finnst mér að þeir eigi bara að fá áfallahjálp. Í blöðin eiga þeir síst að fara strax, af því að það á eftir að fara fram sjópróf.
Ég skil vel að þeir þurfi að tjá sig. Það er náttúrulega hluti af áfallinu. En mér finnst að það eigi að fara svolítið varlega í þessa menn vegna þess að áfallið er ekkert endanlega komið. Það á eftir að koma aftur og það kýlir þá hressilega þegar að því kemur. Ég veit þetta af því að bróðir minn lenti í því sama, að skipið hans fór niður, en þeim var öllum bjargað þá. Áfallið á eftir að koma hjá þessum mönnum.“
Þar á Jónína við Theódór K. Hansen heitinn sem var um borð í Tungufossi þegar skipið sökk 19. september 1981.
Frásögnin komið á óvart
Jónína segir að það hafi komið á óvart að heyra frásögn skipverja af því að einungis fjórtán fullbúnir flotgallar hafi verið um borð í skipinu og þrír æfingargallar. Þeir hefðu í raun átt að vera sautján auk þriggja æfingargalla til viðbótar.
„Ég kann engar skýringar á því af hverju þetta hefur verið svona en á línunni erum við yfirleitt fjórtán menn. Það er eina skýringin sem ég hef.“ Áhöfn Jökuls ÞH taldi sautján manns þennan afdrifaríka dag.
„En æfingagallarnir eru jafnnothæfir og hinir gallarnir. Þetta geta oft verið bara einhverjir eldri. Það þarf ekkert að vera að þeim göllum í sjálfu sér.“
Ásgeir Elí Gerðarson, átján ára háseti sem var um borð í Jökli ÞH, sagði í viðtali við fréttastofu í gær að tveir þeirra sem hafi verið í æfingagöllum hafi blotnað eftir að þeir yfirgáfu skipið og fóru í sjóinn. Þá hafi engin ljós verið á æfingagöllunum.
„Ég veit náttúrlega ekki af hverju þetta var svona þarna um borð. Mér fannst þetta æðislega gott skip þegar ég var á því,“ segir Jónína og bætir við að henni hafi liðið mjög vel um borð í því á sínum tíma þegar það var gert út frá Grænlandi.
Óhrædd við að fara út á sjó aftur
Jónína bíður enn eftir því að báturinn hennar, sem ber nafnið Trilla, verði lagfærður. Næst á dagskrá sé að fá matsmenn frá tryggingafélaginu og meta hvað viðgerð kosti. Óljóst sé hvort um altjón sé að ræða.
Hún segir engan fiskveiðitúr á dagskránni í augnablikinu.
„Þannig að ég ætlaði að vera á ufsanum á Trillu minni en hún fór sem fór þannig að ég verð að bíða aðeins með það.“
Ertu eitthvað hræddari en áður við að fara aftur út eða er eitthvað sem fer í gegnum hugann?
„Nei, nei, auðvitað hugsar maður alltaf til þeirra sem hafa farið á sjó og þetta getur náttúrlega hent hvern sem er í raun og veru. En þetta er það sem ég elska að gera, það er bara þannig.“
Hún hafi verið að í hartnær þrjátíu ár og fengið að sigla um allan heim. Jónína fór á sinn fyrsta túr um það leyti sem yngsti sonur hennar fæddist.
„Hann var bara nokkurra mánaða þegar ég fór. Ég er búin að vera meira og minna samfellt í þessu síðan þá.“
Þessi sami sonur vildi einmitt koma í veg fyrir að móðir hans færi um borð í síðasta fiskveiðitúr Jökuls ÞH.