Þetta er niðurstaða kærunefndar húsamála í máli íbúðareiganda í fjölbýli gegn húsfélagi sínu.
Þó féllst nefndin ekki á aðrar kröfur íbúans, sem reyndi einnig að fá það viðurkennt að ólögmætt væri að skylda eigendur og íbúa til persónulegs líkamlegs vinnuframlags, að húsfélaginu bæri að kaupa ræstiþjónustu fyrir sameign og sorpgeymslu sem sameiginlegan kostnað ef svo færi að ekki næðist samkomulag um sjálfviljugt vinnuframlag og að húsfélaginu væri óheimilt að koma fyrir öryggismyndavélum í sameign nema gætt væri lögmæts tilgangs og ákvæða persónuverndarlaga.
Baksaga málsins er sú að á húsfundi í nóvember 2024 hafi húsfélagið samþykkt breytingu á reglum um þrif á sorpgeymslu og sorptunnum samkvæmt tilteknu vaktaplani. Þvo skyldi lífrænu tunnuna eftir hverja tæmingu en svörtu tunnurnar eftir þörfum.
Íbúðareigandinn taldi að samkvæmt lögum um fjöleignarhús ættu eigendur að taka þátt í sameiginlegum kostnaði en ekki að vinna verkin sjálfir. Ekki mætti skylda fólk til vinnu gegn vilja þess, enda gætu heilsa, aldur eða aðrar persónulegar aðstæður komið í veg fyrir það. Hann taldi húsfélagið einnig skorta lagaheimild til að sekta íbúa og hvað myndavélarnar varðaði væri óljóst hvaða svæði ætti að vakta, hvernig myndefnið yrði geymt og hver fengi að skoða það. Það bryti gegn friðhelgi einkalífs íbúa.
Var það álit nefndarinnar að skylda til þrifa væri heimil og samkvæmt lögum færi húsfélagið með rekstur sameignar og mætti í húsreglum skipta verkum milli íbúa. Húsfundur ákveddi sömuleiðis hvort keypt væri ræstiþjónusta og nefndin kvaðst ekki geta skyldað húsfélagið til þess.
Gjöldin væru aftur á móti óheimil. Lög veittu enga heimild til að innheimta gjald af eigendum sem sinntu ekki þrifum eða mættu ekki á tiltektardaga.
Kröfunni um myndavélarnar var þó hafnað og vísaði nefndin þar til fyrra álits síns í fyrra máli íbúðareigandans þar sem sams konar kröfu hafði verið hafnað en minnti þó á að vöktunin þyrfti að samræmast persónuverndarlögum.