Nýr vefur Veðurstofu Íslands fól ekki einungis í sér endurhönnun á notendaviðmóti eða útliti vefjarins heldur umfangsmikla endurnýjun á innviðum tengdum honum. Þetta kemur fram í svari Veðurstofunnar við fyrirspurn fréttastofu um sundurliðun á kostnaði vegna nýja vefsins.
Alls var útlagður kostnaður við verkefnið 446 milljónir króna. Í svarinu segir einnig að vefur Veðurstofunnar sé ólíkur flestum vefjum. Hann verði að vera aðgengilegur alla daga ársins, allan sólarhringinn og sé hluti af öryggisþjónustu.
Það sem notendur sjái þegar þeir skoða vefinn sé fremsti hlekkurinn í mjög langri og flókinni keðju gagna.
Alls streyma gögn til Veðurstofunnar frá yfir 900 mælitækjum. Vinna þarf úr gögnunum í margþættum kerfum áður en þau gagnast notendum. Umfangsmikil vinnsla á þeim fer fram áður en þau birtast á vefnum.
Gerð vefsins fól í sér umfangsmikla uppfærslu kerfa í bakenda, flutning á gögnum og uppbyggingu nýs öryggis- og rekstrarumhverfis.
Sömuleiðis voru byggðar upp vefþjónustur sem þjóna bæði nýja vefnum og auka opið aðgengi að gögnum stofnunarinnar. Því séu upplýsingatækniinnviðir Veðurstofunnar mun betur staddir en þegar verkefnið hófst.
Umfangsmikil endurnýjun á innviðum
Fréttastofa spurði meðal annars hvort einhverjar tafir hefðu orðið á útgáfu vefsins og hvers vegna þær urðu. Í svari Veðurstofunnar kemur fram að þegar verkið var boðið út árið 2022 hafi verið vitað að umfang þess væri óskýrt.
Ástand á gögnum var óljóst og vitað var að eldri vefur Veðurstofunnar geymdi um 3000 undirsíður með efni, hlekkjum og birtingu gagna frá hundruðum ólíkra gagnastrauma. Þessu hafði verið púslað saman á eldri vefinn síðustu 20 árin.
Því hafi verið ákveðið í samráði við Ríkiskaup að bjóða út þróunarsamstarf um endurgerð á vefnum. Árið 2023 hafi svo orðið ljóst að ráðast þyrfti í umfangsmeiri endurnýjun á innviðum tengdum vefnum. Sú niðurstaða byggði á greiningu sérfræðinga á rekstraröryggi og veikleikum mæli- og upplýsingatækniinnviða Veðurstofunnar og fyrstu greiningu sérfræðinga Origo á vefumhverfi og bakenda.
Stórir náttúruváratburðir ollu töfum
Stórir náttúruváratburðir höfðu þá áhrif á framvindu verkefnisins. Níu eldgos, kvikuhlaup og snjóflóðahrinur áttu sér stað á meðan unnið var að vefnum.
Vegna þeirra voru lagðar fram auknar kröfur um þróun á tæknilausnum til miðlunar og upplýsingagjafar.
„Þeir vörðuðu aðgengi að fjölbreyttum gögnum og getu kerfanna til að vinna með stór gagnasöfn og miðla upplýsingum með áreiðanlegum hætti. Endurteknar truflanir ollu töfum í miðlun og juku álag sem erfitt var að mæta,“ segir í svari Veðurstofunnar.
Þá hafi veikleikar í upplýsingakerfum Veðurstofunnar komið fram eftir að eldsumbrotin á Reykjanesi hófust sem nauðsynlegt var að bregðast við.