Á Íslandi hefur legið fárveikur sjúklingur á gjörgæslu áratugum saman. Læknarnir eru enn bjartsýnir, bankarnir birta feitar afkomutölur en aðstandendurnir eru að fara á hausinn.Sjúklingurinn heitir íslenska krónan.Blóðþrýstingurinn fer reglulega upp fyrir hættumörk. Sjúklingurinn er þá lagður í rúmið, vafinn í bómull og honum bönnuð öll áreynsla. Þegar blóðþrýstingurinn lækkar lítillega hrósa læknarnir sjálfum sér fyrir árangurinn og heimila sjúklingnum að stíga fram úr rúminu.Blóðþrýstingurinn rýkur samstundis upp.
Vilhelm Jónsson skrifar: Krónan má ekki deyja – þjóðin má fara á hausinn