Sigrún Jónasdóttir lögreglufulltrúi sagði frá því í samtali við fréttastofu að betur hefði farið en á horfðist en hún greindi einnig frá því að útkallið hefði borist um fjögurleytið í gær. Þá hafði verið tilkynnt um mann sem var vopnaður hnífi í austurbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið í Grafarholti.
Hún segir hann hafa verið yfirbugaðan og að aðgerðin hafi gengið hratt og vel fyrir sig.
Í gær staðfesti varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu að einn sjúkrabíll hefði verið kallaður út en honum snúið við. Sigrún staðfesti, sem fyrr segir, að enginn hefði særst í aðgerðinni.