Fulltrúar Landssambands lögreglumanna áttu sáttafund í gær með Ólafi Þór Haukssyni héraðssaksóknara og Karli Inga Vilbergssyni varahéraðssaksóknara um rannsóknir á ofbeldi og hótunum gegn lögreglumönnum.
Fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um það á þriðjudag að lögreglumenn teldu margir hverjir að slík brot væru ekki rannsökuð nægilega vel.
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segir héraðssaksóknara hafa átt frumkvæði að fundinum vegna gagnrýni lögreglu.
„Hann óskaði eftir að fá að skýra sína hlið. Hann fór yfir tölfræði síðustu ára og það voru bara mjög hreinskiptar og góðar umræður á þessum fundi. Það er alveg rétt, eins og kom fram í Kveik, að það hefur verið gerð bragarbót á þessu ári og embættið sagðist hafa farið yfir verklagið hjá sér og breytt því í byrjun árs.“
Það megi skilja svo að brotalamir hafi verið í verklaginu áður.„Þeir svo sem alveg gengust við því að þeir hefðu þurft að breyta einhverju hjá sér, en sögðust vera komnir á betri leið með þetta núna.“
Fjölnir segir lögreglumenn vona að verklagið breytist til hins betra.
„Við ákváðum að hittast reglulega og við komum með ýmsar ábendingar,“ segir Fjölnir.
„Það til dæmis kom nú í fréttum í vikunni að það var lögreglumaður sem breytti framburði sínum fyrir dómi. Hann sagðist halda að ákveðinn einstaklingur hefði ekkert lamið sig viljandi. Þá kom í ljós að héraðssaksóknari hafði í raun aldrei boðað hann til skýrslutöku heldur bara tekið frumskýrsluna. Þarna var greinilegt að það þurfti að breyta verklaginu.“
Menn skildu sáttir eftir fundinn.
„Við bentum þeim á að þetta snerist um traust. Þegar 130 lögreglumenn kvarta yfir rannsóknum félaga sinna þá er auðvitað eitthvað mikið að og þá þarf að byggja upp traust. Þetta snýst ekki endilega bara um lögfræði. Ef þetta er sönnunarbyrði í málum – hún verður að vera sú sama þegar það er brotið á lögreglumönnum og öðrum.“