Héraðsdómur Vestfjarða hefur sakfellt sjómann fyrir að skjóta úr haglabyssu á dróna Fiskistofu sem notaður var til eftirlits með veiðum. Taldi dómurinn að sjómaðurinn hafi með þessu reynt að hindra veiðieftirlitið.Þetta kemur fram á vef Fiskistofu en dómurinn hefur ekki verið birtur á vef héraðsdómstólanna og í tilkynningu Fiskistofu er ekkert minnst á hver málsvörn sjómannsins var eða hvort hann játaði brot sín.
Vestfirskur sjómaður beitti vopni til að hindra veiðieftirlit