Við munum fá sterka niðurstöðu varðandi sjávarútveg í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Einnig varðandi landbúnað. Það er mikið hagsmunamál fyrir bændur, ekki síst þá sem hafa fjárfest af myndarskap eða þá sem vilja komast inn í greinina að lækka fjármagnskostnað hér á landi með því að tengjast eða taka upp evru. Við eigum að gera ríkar kröfur um að við fáum að styrkja íslenskan landbúnað markvisst og þar þurfum við að forgangsraða. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Aðild að ESB getur styrkt stöðu íslenskra bænda og eflt nýliðun í greininni