Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi á Facebook.
Lögreglunni barst tilkynning um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum um hádegisbil í gær. Lögregla og sjúkralið voru þegar send á vettavang.
„Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir var karlmaður á áttræðisaldri úrskurðaður látinn á vettvangi. Kona á sjötugsaldri var flutt á gjörgæsludeild þungt haldin,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
Málið er rannsakað sem slys og er meðal annars til skoðunar um hvort gaseitrun hafi verið að ræða.