Undir lok júnímánaðar sendi innviðaráðuneytið frá sér úrskurði í fjórum málum er snúa að þremur sveitarfélögum. Öll málin snúast um beiðni landeigenda um að viðkomandi sveitarfélög myndu smala ágangsfé af landi þeirra. Niðurstaða ráðuneytisins er að í þremur málanna hafi sveitarfélögið tekið ólögmæta ákvörðu en í því fjórða hafi orðið óhóflegar tafir á málsmeðferð sem stangist á við stjórnsýslulög. Hins vegar munu þessar niðurstöður ekki hafa neinar afleiðingar fyrir viðkomandi sveitarfélög af hálfu ríkisins meðal annars vegna þess hversu langt er um liðið síðan málsatvik áttu sér stað.
Þrjú sveitarfélög brugðust skyldum sínum - Afleiðingar af hálfu ríkisins verða engar