Við það að ein stoðanna gaf sig keyrðist einn bollinn ofan í jörðina með þeim afleiðingum að tvö börn skullu nokkuð harkalega til. Í kjölfarið leituðu foreldrar annars barnsins með það á slysadeild. Samkvæmt Lögreglunni á Suðurlandi er barnið á leikskólaaldri. Lögreglunni barst tilkynning um slysið um þrjúleytið í gær.
Tækið var stöðvað samstundis eftir að slysið hafði orðið. Meiðsli barnanna teljast ekki alvarleg.
Öllum nærstöddum var brugðið við slysið að sögn Inga Þórs Jónssonar, skipuleggjanda hátíðarinnar.
„Það voru krakkar í tækinu og þeim var brugðið. Strákunum tveimur sem sáu um tækið var líka illa brugðið.“
Tækið hafði nýlega hlotið skoðun frá Vinnueftirlitinu og hafði síðast verið í notkun vikuna á undan. Ingi Þór segir atvikið leiðinlegt og tækinu hafi að sjálfsögðu strax verið pakkað saman.
Ingi lýsir atvikinu þannig að armarnir fjórir sem tækið hvíli á standi ofan á stöplum. Splitti sem haldið hafi örmunum stöðugum á stöplunum hafi brotnað þannig að armurinn hafi afskorðast á stöplinum sem olli því að högg kom á tækið með þeim afleiðingum að barnið skall á járnstöng.
Bryggjuhátíðin fór fram á Stokkseyri í gær og var meðal annar boðið upp á sýningu frá Leikhópnum Lottu, trúbador og framkomu Kristmunds Axels, svo eitthvað sé nefnt.