Viðskiptamaðurinn Michael Rubin heldur árlega svokallað „White Party“ sem mætti íslenska sem „Hvítþvegið teiti“ í Hamptons-höll sinni í New York en nafnið er dregið af því að gestirnir klæðast allir hvítu. Þangað mæta gjarnan stærstu tónlistarstjörnur Bandaríkjanna, leikarar, íþróttastjörnur og annað þotulið.
Ice Spice, réttu nafni Isis Naija Gaston, og Maguire voru bæði gestir í veislunni í ár og náðust myndir af þeim tveimur í nánum samskiptum á svölum hússins. Á einni myndinni mátti sjá tónlistarkonuna halla sér alveg upp að andliti leikarans og töldu margir það sýna að þau væru þar í kossaflensi. Myndirnar má meðal annars sjá í umfjöllun Just Jared hér að neðan.
Fréttirnar vöktu ekki síst athygli vegna aldursmunarins á milli þeirra, Gaston er 26 ára gömul en Maguire 51 árs og því kvartöld sem skilur þau að. En myndir eiga það til að blekkja og eftir að slúður- og dægurmálamiðlar vestanhafs slógu upp fregnum af kossinum hefur Ice Spice hafnað því algjörlega.
Talsmaður Ice Spice tjáði sig við útvarpsþáttinn The Breakfast Club og sagði sjónarhorn myndarinnar vera blekkjandi. Þau hefðu einungis verið að spjalla saman og hún hefði hallað sér upp að honum til að deila rafrettu.
Maguire hefur undanfarið verið orðaður við enn yngri konu en Ice Spice, tvítugu fyrirsætuna Mishku Silva en þau sáust saman á Ofurskálinni í febrúar. Maguire var þar áður í þriggja ára sambandi við fyrirsætuna Tatiönu Dieteman frá 2018 til 2021 en sautján ára aldursmunur er á þeim. Fyrir það var Maguire í níu ára hjónabandi með skartgripahönnuðinum Jennifer Meyer sem hann á tvö börn með.
Sambandssaga Ice Spice, sem sló fyrst í gegn með laginu „Munch“ sumarið 2022, er ekki eins opinber og Maguire en hún deitaði NFL-leikmanninn Sauce Gardner um tíma, Stranger Things-leikarann Caleb McLaughlin og tónlistarpródúsentinn Riot USA. Tónlistarkonan hefur þó haldið þeim samböndum utan sviðsljóssins og ekki viljað tjá sig um sitt persónulega líf.