Súrálsskipið Koznitza frá Brasilíu lá í tvo daga utan við Straumsvík áður en það var tekið inn til Staumsvíkurhafnar. Þetta staðfestir Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri Hafnafjarðarhafna.
106 kíló af kókaíni voru geymd í sjókistu skipsins.
Talið er að kafari hafi gagngert verið fluttur til landsins til þess að sækja fíkniefnin. Ekki er útilokað að á þeim tíma sem skipið lónaði utan við Straumsvík hafi kafari sótt efnin úr sjókistu skipsins.
Biðu eftir dráttarbát
Lúðvík segir ekkert óeðliegt við það að skip bíði á krók í nokkra daga.
„Það þarf að fá stóran bát til þess að taka inn stærstu skipin inn,“ segir Lúðvík.
Í þá tvo daga sem skipið lá utan við Straumsvík var beðið eftir aðstoð dráttarbáts Faxaflóahafna, sem aðstoðar Hafnafjarðarhafnir við að taka inn stærstu skipin.
Samkvæmt Lúðvík var mikið annríki hjá Faxaflóahöfnum vegna umferðar skemmtiferðaskipa um höfnina og því fékkst dráttarbátur ekki í verkið fyrr en eftir tvo daga.
Níu manns eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Meðal þeirra sem voru handteknir eru Brasilíumenn, Rúmeni og að minnsta kosti þrír Íslendingar.