Greint var frá því þann 5. mars árið 2024 að miðlæg rannsóknardeild lögreglu hefði lagst í umfangsmiklar aðgerðir víða um land vegna gruns um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi. Aðgerðir fóru fram á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðurnesjum og Norðurlandi.
Quang sætti upprunalega gæsluvarðhaldi í rúma þrjá mánuði fram til 13. júní. Hann hefur síðan þá, í rúm tvö ár, sætt farbanni og mun gera áfram næstu þrjá mánuði.
Talin er hætta á að Quang flýi land til að forðast fullnustu refsingar sæti hann ekki farbanni. Í úrskurðinum segir að rökstuddur grunur sé um að hann hafi framið brot sem fangelsisrefsing liggi við.
Þar kemur einnig fram að rannsókn málsins sé á lokametrunum og að málið sé afar umfangsmikið. Grunur sé um skipulagða glæpastarfsemi sem teygi anga sína yfir landamæri og stóð yfir um margra ára skeið. Þá hafi fjöldi einstaklinga annaðhvort stöðu brotaþola, alls tuttugu og níu, eða stöðu sakbornings.
Það sé af slíkum ástæðum sem leyfi sé veitt fyrir áframhaldandi farbanni þrátt fyrir að það hafi staðið yfir í rúm tvö ár en farbann er þvingunarráðstöfun sem ekki má standa yfir lengur en nauðsynlegt er miðað við eðli og umfang máls.