Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir nýlega umfjöllun um einkunnagjöf í grunnskólum sýna að skortur á samræmi í íslenska skólakerfinu hafi legið fyrir árum saman.
Tilefni færslu hans er frétt um að árið 2019 hafi foreldrar við Grunnskóla Seltjarnarness mótmælt einkunnagjöf skólans og talið hana gefa skakka mynd af námsárangri nemenda. Nú, sjö árum síðar, fá um 42 prósent nemenda við sama skóla hæstu einkunn, A, sem hefur vakið umræðu um hvort matsviðmið hafi breyst og hversu sambærilegar einkunnir séu milli skóla.
Í færslu á samfélagsmiðlum segir Jón Pétur að þetta sé ekkert nýtt og vísar til skýrslu MMR frá árinu 2019 sem hann segir hafa bent skýrt á vandann.
Hann gagnrýnir sveitarstjórnarmenn, sem bera ábyrgð á grunnskólunum, fyrir að hafa um árabil endurtekið að þeir treysti skólunum og þar með firrt sig ábyrgð á kostnaðarsamasta málaflokki sveitarfélaganna.
Að mati Jóns Péturs hafa íslenskir skólar búið við meira sjálfræði og minna eftirlit en aðrir vestrænir skólar. Hann segir afleiðinguna vera skort á samræmi og jafnræði, þar sem hver skóli geti farið sínar eigin leiðir án þess að metið sé hvort þær skili raunverulegum árangri.
Þingmaðurinn beinir einnig gagnrýni að Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Kennarasambandinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, menntamálaráðuneytinu, Miðstöð menntunar og því sem hann kallar „menntaelítuna“.
Hann segir þessa aðila þegja á meðan „milljarðar brenna“ og námsárangur íslenskra barna fari sífellt versnandi, þróun sem hann rekur til aðalnámskrár grunnskóla.
Ekkert nýtt hér heldur. Skýrsla MMR frá 2019 segir þetta alveg skýrt.
Sveitarstjórnarmenn, sem bera ábyrgð á grunnskólanum hafa kyrjað möntruna:
,,Við treystum skólunum”
Og þar með firrt sig allri ábyrgð af kostnaðarsamasta útgjaldalið sveitarfélagsins.
Íslenskir skólar… pic.twitter.com/9TeSm5qhj0
— Jon Petur Zimsen (@JPZimsen) July 1, 2026