Til stendur að rífa skyggni og setusvæði stúkunnar í Laugardalnum fyrst og mögulegt er að mannvirkið víki að fullu á einhverjum tímapunkti. Heitir pottar og svæði við áhorfendastúku í Laugardalslaug verða lokuð í að minnsta kosti í hálft ár.
Hætta er talin geta stafað af stúkunni, segir í nýju áhættumati Verkís sem kynnt var í gær.
Mesta og bráðasta hættan, að mati Verkís, er að steypubrot gætu fallið á gesti eða starfsfólk og mögulegt burðarþolshrun. Sérstaklega ef súlur eða hnútpunktar gefa sig undan eigin þunga eða ytra álagi á borð við snjó, vind eða jarðskjálfta.
Hvatt er til tafarlausra aðgerða, þar á meðal niðurrifs þar sem stúkan er verst farin. Ekki er talið að stúkan eins og hún leggur sig sé að hruni komin en afleiðingar hruns gætu verið lífshættulegar og valdið fjöldaslysi, segir í skýrslunni. Svæðum við stúkuna verður lokað í dag og þau girt af.
„Sem nær til og fram yfir pottana inni á laugarsvæðinu og svo svæði hinum megin við mannvirkið,“ segir Guðni Guðmundsson, skrifstofustjóri framkvæmda og fasteignaþjónustu hjá Reykjavíkurborg.
„Við erum í rauninni bara að kortleggja svo næstu skref í samráði við ráðgjafa og fara yfir og kynna málið hérna innanhúss. Það á eftir að áætla stærðargráðuna á þessu og hvað þetta þýðir í tíma og kostnaði,“ segir hann. „Þetta fer sinn farveg hérna í kerfinu og í raun og veru er markmiðið að koma þessu í innkaupaferli og rífa það sem þarf að rífa niður.“
Lokanir standa yfir í minnst hálft ár
Guðni segir að eftir að búið sé að rífa skyggni og setusvæði myndi gufubað og aðstaða starfsfólks undir stúkunni sjálfri standa eftir. Þörf sé á frekari greiningu á mannvirkinu.
„Í framhaldi má alveg gera ráð fyrir því að allt mannvirkið víki en það ræðst af starfsemi laugarinnar,“ segir hann.
Áætlanir séu um breytingar á lauginni og þær þurfi að taka mið af breytingum á stúkunni eða brotthvarfi hennar. Ekki er búið að ákveða hvenær niðurrif hefst en ljóst er að afgirt svæði verða ekki opnuð aftur í sumar.
„Nei, ég held að það sé alveg útséð með það að það verði ekki, þetta er að lágmarki, algjöru lágmarki, hálft ár en það er bjartsýni, sko, þetta er lengri tíma mál,“ segir hann.