Sunnudagskvöldið 10. maí var grínistinn Kevin Hart grillaður (roasted) í beinni útsendingu á Netflix.
Það er óhætt að segja að margir brandararnir hafi verið virkilega grófir og mikið um þekkta og beitta grínista sem mættu og létu allt flakka.
Það var þó grínistinn Tony Hinchcliffe sem olli mestu fjaðrafoki en brandari hans um George Floyd fer sem eldur í sinu um samfélagsmiðla þessa dagana og hefur farið fyrir brjóstið í mörgum, en dauði Floyd var kveikjan að Black Lives Matter (BLM) hreyfingunni.
Hinchcliffe er svokallaður insult comic, stýrir einu vinsælasta hlaðvarpi heims, Kill Tony, og þrífst á að fara oft langt yfir strikið í bröndurum sínum. Hann kallaði stiga meðal annars versta óvin söngkonunnar Lizzo, sem sprakk úr hlátri.
Þar gaf Hinchcliffe í skyn að Floyd væri í helvíti, en réttast er að hver dæmi fyrir sjálfan sig. Of grófur eða í fínu lagi?