Sjómannasamband Íslands segir að leita þurfi til ríkissáttasemjara ef ekki tekst að blása lífi í viðræður við Landssamband smábátaeigenda um kjarasamning smábátasjómanna. Þeir hafa verið samningslausir í tólf ár.
„Staðan er einkennileg. Það eru engar samræður eða viðræður í gangi,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands. Eftir að samningur náðist við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi um stærri skipin árið 2024 hafi viðræður farið af stað en svo runnið út í sandinn.
Nýr formaður, Kjartan Páll Sveinsson, tók við stjórnartaumunum hjá Landssambandi smábátaeigenda í haust og segist Valmundur hafa vonast til þess að hjólin færu þá að snúast.
„Síðan hefur í raun og veru ekkert skeð,“ segir Valmundur. Stjórn sjómannasambandsins hafi samþykkt ályktun í gær þar sem hún krafðist þess að viðræður færu af stað. Takist það ekki þurfi að vísa viðræðunum til sáttasemjara.
„Ég skil vel sjónarhorn sjómanna. Þetta er ólíðandi ástand,“ segir Kjartan. „Nú er ég bara búinn að vera formaður í sex mánuði og ég er allur af vilja gerður til að semja og hef sett mig í samband við sjómannasambandið út af þessu máli.“
Engir fundir hafi hins vegar verið settir á dagskrá síðan hann varð formaður. Hvorki Valmundur né Kjartan segjast vera með tiltekinn tímaramma í huga en báðir eru þeir bjartsýnir á að viðræður hefjist á næstunni.
Engir þekktir ásteytingarsteinar
„Nú er ég kominn í þessa stöðu og er að sjálfsögðu tilbúinn að setjast að samningaborðinu og vinna þetta hratt og vel,“ segir Kjartan. Þó að smábátasjómenn hafi verið samningslausir í tólf ár sér hann fyrir sér að hægt verði að ná saman. Hann segist ekki vita til þess að sérstakir ásteytingarsteinar séu til staðar.
„Mér skilst að Sjómannasambandið hafi viljað bíða með samninga við okkur þangað til að þeir væru búnir að semja við SFS. Þeir samningar tókust 2024. Síðan þá hafa náttúrulega verið viðræður, en hvers vegna þær hafa dregist svona á langinn, það veit ég ekki.“
Hefurðu áhyggjur af því að þetta endi hjá ríkissáttasemjara?
„Við skulum nú vona ekki. Ég held að þetta sé ekki komið á þann stað núna, en ef sú staða kemur upp þá er það náttúrulega bara eitthvað sem við tökum á. En ég sé enga ástæðu til þess akkúrat núna en það væri bara hið besta mál, sko.
Gæti þurft að neyða fólk að samningaborðinu
Valmundur segir helstu áhersluatriði sjómannanna vera lífeyrisréttindi og kostnað við fæði og hlífðarfatnað.
„Það vantar mjög mikið núna inn í þennan samning fyrir smábátana, sem er komið inn í stóra samninginn sem við gerðum við SFS fyrir stærri skipin,“ segir Valmundur.
„Ef við förum ekki að ná saman þá held ég að aðilar geti alveg verið sáttir við að þessu verði vísað til sáttasemjara. Þar er verklagið þannig að við þurfum að hittast allavega hálfsmánaðarlega. Þar er kominn grundvöllur til að finna einhvern flöt ef við erum neydd til að tala saman, ef ekkert annað gengur.“