Rússar hafa skotið rúmlega 1.500 drónum og 56 flugskeytum að Úkraínu síðustu tvo daga. Þetta er umfangsmesta árásarhrina Rússa á svo skömmum tíma frá upphafi stríðsins. Árás Rússa í gær var einnig ein sú lengsta í stríðinu hingað til.
Forseti Úkraínu segir áframhaldandi stuðning bandalagsríkja vera forsendur þess að nær öllum drónunum hafi verið grandað.
Sprengjum hefur rignt yfir Úkraínu í dag og í gær og flestum þeirra er beint að höfuðborginni Kiyv. Að minnsta kosti átta voru drepnir í borginni í dag, þar á meðal þrettán ára drengur, og 44 til viðbótar særðir, að sögn úkraínskra yfirvalda.
Aðeins örfáir dagar eru síðan Bandaríkjaforseti sagði að friðarsamkomulag væri handan við hornið. Rússlandsforseti sagði líka á dögunum að stríðinu lyki senn.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði árásirnar bera þess merki að Rússar hefðu safnað vopnum í einhvern tíma til að setja mikið álag á loftvarnir Úkraínu í einu.
Loftvarnir og úkraínski herinn hafa grandað nær öllum drónunum og meirihluta flugskeytanna – sem hann sagði sýna hve mikilvægt væri að Úkraína hlyti áfram stuðning bandalagsríkja í Evrópu.