Að minnsta kosti 5.000 hafa þurft að yfirgefa heimili sín í nágrenni höfuðborgar Haítí síðan á sunnudag vegna ólgu af völdum aukinna umsvifa glæpagengja. Þetta segir Alþjóðlega fólksflutningastofnunin. Þetta er til viðbótar við um 8.000 sem Sameinuðu þjóðirnar áætla að hafi þurft að flýja heimili sín í mars og apríl.
Vopnaðir hópar hafa að undanförnu herjað á hverfi norðan höfuðborgarinnar Port au Prince. Samtökin Læknar án landamæra segja að fjöldi fólks hafi leitað á sjúkrahús með skotsár í vikunni.
Sameinuðu þjóðirnar samþykktu í fyrra að skipuleggja alþjóðlega öryggissveit til að hjálpa lögregluyfirvöldum á Haítí að ná tökum á ofbeldisöldunni. Stefnt var að því að hún yrði mönnuð um 5.500 hermönnum frá þátttökuríkjum en hingað til telur hún um 400 hermenn frá Chad.