Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla hafi fundið hann skömmu síðar og komist að því að hann var búinn að brjótast inn á nokkrum stöðum í dag og stunda þjófnað. Einstaklingurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins en atvikið átti sér stað í Reykjavík.
Einnig var tilkynnt um vinnuslys í dag þar sem grafa valt á hliðina á vinnusvæði í umdæmi lögreglustöðvar þrjú sem sinnir Kópavogi og Breiðholti. Ökumaður gröfunnar var fluttur á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar en hann var ekki alvarlega slasaður, að sögn lögreglu.